Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórdís Björk tjáir sig um ummæli sín og eftirmála: „Hegðum okkur með ábyrgum hætti á samfélagsmiðlum“

Þórdís Björk tjáir sig um ummæli sín og eftirmála: „Hegðum okkur með ábyrgum hætti á samfélagsmiðlum“
Þórdís Björk Þor­finns­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sam­fé­lags­miðlar hafa logað eftir að Þórdís Björk Þor­finns­dóttir, leik- og söng­kona, við­hafði ummæli um Kópasker og Rauf­ar­höfn og veð­ur­farið þar eftir ferð hennar þangað með leik­hópnum Lottu. Þótti mörgum orð Þórdísar Bjarkar niðr­andi og hvöttu fólk til að snið­ganga leik­sýn­ingar hóps­ins, sem alla jafna hafa fallið vel í kramið hjá barna­fjöl­skyldum.

Þórdís Björk, sem og leik­hóp­ur­inn, baðst afsök­unar á ummælum sínum, en það virt­ist ekki duga til.

Þórdís Björk var á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag, þar sem hún greindi frá því að hún hefur fengið hót­anir um líf­lát og nauðgun vegna ummæl­anna.

Sjá einnig: Hótað líf­láti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Rauf­ar­höfn

Í færslu sem Þórdís Björk birti fyrir stuttu á Facebook fer hún yfir málið og síð­ustu daga sem hún segir hafa verið lær­dóms­ríka.

„Það er ótrú­lega skrýtin til­finn­ing að lenda í hakka­vél sam­fé­lags­miðl­anna og sjá ókunn­ugt fólk ríf­ast um hvort að gjörðir mínar hafi verið réttar eða rangar,“ segir Þórdís Björk, sem seg­ist svo­lítið tætt, enda leik­hóp­ur­inn á ferð um landið.

Segist hún ekki bera neinn kala til sam­fé­lag­anna á Kópa­skeri og Rauf­ar­höfn eftir að hafa borist hót­anir í kjöl­far ummæla sinna. „Ég dæmi engan fyrir gjörðir ein­stak­linga sem þurfa greini­lega hjálp. Það væri bæði heimsku­legt og ósann­gjarnt.“

Segir málið kenna okkur samfélagsmiðlahegðun

Þórdís Björk segir málið allt geta kennt fólki hvernig það hagar sér á sam­fé­lags­miðlum, þar sem fólk virð­ist dæla út skoð­unum sínum og gagn­rýni á aðra án þess að hika.

„Jafnvel þó að það viti ekki neitt um þann sem um ræðir eða í hvaða sam­hengi hlutir voru settir fram,“ segir Þórdís Björk og bættir við að hún hafi verið úthrópuð sem hroka­full for­rétt­inda­kona og margt verra vegna tveggja skjá­skota. „Mér ofbauð sér­stak­lega þegar sveit­ar­stjóri var far­inn að stíga fram og saka mig um slíkt í við­tali við fjöl­miðil.“

Sjá einnig: Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Þórdís Björk segir að gott væri ef allir stöldr­uðu við og íhug­uðu hverju það skilar að ata ein­hvern aur á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég held að við séum öll sek um að dæma fólk á sam­fé­lags­miðlum. En ég held að mikið væri unnið ef allir reyndu að staldra við, íhuga hverju það skilar að ata ein­hvern auri og leyfa helst öðrum að njóta vafans,“ segir Þórdís Björk, sem seg­ist áður hafa fengið svip­aðar hót­anir, sem með­limur Reykja­vík­ur­dætra.

„Þessi gagn­rýn­is­stormur sem ég lenti í varð til þess að van­stilltir ein­stak­lingar misstu stjórn á sér. Ég hef áður fengið svip­aðar hót­anir, aðal­lega útaf þeim glæp að búa til tón­list með Reykja­vík­ur­dætrum sem fellur ekki að smekk þeirra.“

Ætlar að kæra

Þórdís Björk greinir frá að hún ætlar að kæra þær hót­anir sem henni bár­ust, og segir hálf­súr­eal­ískt að vera á þeim stað að reyn að hunsa slík skila­boð og halda áfram með lífið.

„Það þurfti því að benda mér á að þetta væri eitt­hvað sem yrði að stöðva og þess­vegna ætla ég að leggja fram kæru. Ég brenn ekki af ein­hverjum hefnd­ar­þorsta gagn­vart þessum ein­stak­lingum. Ég vil að þeir fái alvar­legt til­tal og fræðslu svo að þessi hegðun þeirra þró­ist ekki út í eitt­hvað enn alvar­legra.“

Vonsvikin að afsökunarbeiðni var hunsuð

Þórdís Björk seg­ist ekki hafa áttað sig á því fyrst að ummæli hennar særðu fólk, hún hafi því strax beðist afsök­unar. „Það olli mér von­brigðum að sú afsök­un­ar­beiðni var nán­ast hunsuð.“

Hún segir einnig að hún hafi séð marga verja hana á sam­fé­lags­miðlum með þeim orðum að hún hafi ekki þurft að biðj­ast afsök­unar og henni sé frjálst að hafa sínar skoð­anir.

„Einnig hef ég séð marga verja mig á sam­fé­lags­miðlum með þeim orðum að ég hefði aldrei átt að biðj­ast afsök­unar og mér hafi verið frjálst að hafa skoð­anir á veðri, vindum og þessum bæjum. Að hluta til er það alveg rétt en það sem mér þykir skipta máli er að ég særði greini­lega fólk án þess að gera mér í fyrstu grein fyrir því og það leið mér ein­fald­lega illa með. Ég vildi því gjarnan biðj­ast afsök­unar og gerði það strax. Það olli mér von­brigðum að sú afsök­un­ar­beiðni var nán­ast hunsuð.“

Að lokum nefnir Þórdís Björk atvik frá leik­sýn­ingu eftir ummæli hennar, og segir hún að það hafi verið ótrú­lega skemmti­legt og henni þyki vænt um það.

„Ég tækla helst erf­ið­leika með húmor. Þótt ég segi sjálf frá þá er hann yfir­leitt nokkuð góður og því er tals­verður skellur að ég er að verða þekkt fyrir mislukkað grín. Það sama gildir ekki um skemmti­lega konu sem kom með börnin sín og karl­inn á Lottu-sýn­ingu á meðan storm­ur­inn var í hámarki.

Hún borg­aði fyrir sig og börnin en benti svo á eig­in­mann­inn og sagði: „Fær hann ekki frítt. Hann er frá Kópa­skeri,“ sagði hún og skelli­hló.

Þetta atvik var ótrú­lega skemmti­legt og mér þótti afar vænt um það. Gleymum því ekki gleð­inni og hegðum okkur með ábyrgum hætti á sam­fé­lags­miðlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð