Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Ánægja með kjörsókn en fólk enn í sárum

Ánægja með kjörsókn en fólk enn í sárum
Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands.

Félags­menn í Flug­freyju­fé­lagi Íslands sam­þykktu fyrr í dag kjara­samn­ing milli félags­ins við Icelandair. Formaður félags­ins segir að ánægja sé með góða kjör­sókn en búið sé að skaða það traust sem ríki á milli starfs­fólks og atvinnu­rek­enda. 

„Við erum fyrst og fremst ánægð með mjög góða kjör­sókn. Það er nokkuð ljóst að meiri­hluti félags­manna er sam­mála okkur í því að til að breyta stöð­unni þurfti að ganga til samn­inga,“ segir Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lagi Íslands, í sam­tali við Mannlíf, eftir að félagið sam­þykkti fyrr í dag kjara­samn­ing við Icelandair. Alls kusu 88 pró­sent félags­manna um samn­ing­inn og þar af sögðu 83,5 pró­sent já en 13,42 pró­sent sögðu nei. Þrjú pró­sent kjör­seðla voru auðir.

Þegar Guðlaug Líney er spurð hvernig and­inn hafi verið á fund­inum í dag dregur hún sig við svarið. „Það er nokkuð ljóst að búið er að skaða það traust sem ríkir á milli atvinnu­rek­enda og starfs­fólks. Fólk er auð­vitað enn í sárum eftir 17. júlí þegar öllum var sagt,“ segir hún hrein­skilin. „Icelandair setti líka sam­starfs­fé­laga okkar, flug­menn, í mjög vonda og óþægi­lega stöðu þegar fyr­ir­tækið ætl­að­ist til þess að þeir sinntu okkur störfum. Okkur fannst vont að þeir skyldu vera settir í þá stöðu af Icelandair. Sem betur fer varð ekk­ert úr því.

„Það er nokkuð ljóst að búið er að skaða það traust sem ríkir á milli atvinnu­rek­enda og starfs­fólks.“

Með því að sam­þykkja þennan samn­ing erum við hins vegar að leggj­ast á árar með Icelandair að koma félag­inu upp úr þessum hremm­ingum sem það hefur verið í,“ bendir hún á, „og gæta þess jafn­framt að við höfum eitt­hvað að segja um okkar kaup og kjör til fram­búðar.“

Nú hefur Mannlíf heim­ildir fyrir því að innan félags­ins séu áhyggjur af því að félags­menn verði ekki ráðnir aftur út frá starfs­aldri, eins og tíðkast hefur. Hefurðu heyrt eitt­hvað um það? „Nei, ég hef ekki heyrt um það frá Icelandair,“ segir Guðlaug Líney. „Það hefur tíðkast um áraraðir að þeir sem eru með hæstan starfs­aldur komi inn, ég vona að svo verði áfram.“

Hver eru þá næstu skref? „Ja, nú þurfum við að fá upp­lýs­ingar um áhafna­þörf. Ég von­ast til að fá upp­lýs­ingar um það á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Innlent

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra