Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gott er fyrir þá sem vilja minnka gosneyslu“

„Gott er fyrir þá sem vilja minnka gosneyslu“
Ragna Björk Guð­brands­dóttir og Manuel Utierrez. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Margir þekkja drykk­inn kombucha hér á landi en hann á sér langa sögu í löndum eins og Kína, Japan og Rúss­landi. Í dag þekk­ist hann víða um heim og er vin­sæll í Evrópu og Banda­ríkj­unum sem heilsu­drykkur. Kombucha þykir afar ljúf­fengur og nær­andi auk þess að inni­halda lít­inn sykur og marga gerla sem eru góðir fyrir þarma­flór­una. Hjónin Ragna Björk Guð­brands­dóttir og Manuel Utierrez eru stofn­endur fyrsta kombuchabrugghússins á Íslandi og við fengum að vita meira um þennan heilsu­sam­lega gerjaða drykk.

Fyrstu drykkirnir komu í sölu fyrir um þremur árum og síðan þá hefur Kombucha Iceland notið vax­andi vin­sælda. „Fyrst settum við upp eins­konar kombucha-bari í fjórum versl­unum. Frú Laugu, Bændur í bænum, Mamma veit best og jóga­stöð­inni Sólir. Þar getur fólk komið með eigin umbúðir og dælt sjálft á sínar flöskur. Hugsunin hjá okkur var að koma drykknum á markað sem fyrst og í leið­inni var þetta góð leið til að end­ur­nýta umbúðir sem fellur vel að okkar gildum. Síðan varð þetta bara rosa­lega vin­sælt og við munum halda áfram með bar­ina. Núna er líka hægt að kaupa drykk­inn á flöskum víða, eins og í Krónunni, Mela­búð­inni, Brauð og Co, Gló, Lamb Street Food, Fjarð­ar­kaupum, Háskóla Íslands og fleiri stöðum,“ segir Ragna Björk.

Áhugi frá barn­æsku
Þau hjónin segja okkur frá upp­haf­inu að kombucha-ævin­týr­inu. Manuel hefur haft mik­inn áhuga á gerjun alveg frá barn­æsku. Hann ólst upp á Kúbu og þar fylgd­ist hann með frá unga aldri og af miklum áhuga þegar for­eldrar hans gerj­uðu hefð­bundna drykki sem þar eru vin­sælir.
„Ég ólst upp við að fylgj­ast með alls­konar gerjun. Það þurfti stóran pott og ýmsar græjur til að gera þetta. Hráefni eins og plómur og hrís­grjón var notað við gerj­un­ina og þeir ávextir sem feng­ust úr nærum­hverf­inu. Ég hef alltaf haft áhuga á að gera eitt­hvað sjálfur með þetta og hef prófað alls­konar gerjun í mörg ár, t.d. bruggað bæði blá­berja- og kræki­berja­vín og búið til mínar eigin upp­skriftir. Svo rakst ég á fyrir um sex árum forna aðferð á Netinu við að gerja te, sem sagt kombucha, og ég heill­að­ist af þeirri aðferð,“ segir Manuel.

„Ég ólst upp við að fylgj­ast með alls­konar gerjun.“

Þau hjónin fóru að fikta við þetta heima hjá sér og pönt­uðu sér svo­kall­aðan Scoby erlendis frá sem er lif­andi örveru­þyrp­ing og er grunn­ur­inn í gerj­un­inni og fóru að prófa drykk­inn á sjálfum sér. „Eitt af því sem fékk okkur til að halda áfram var að Manuel fann mikla jákvæða breyt­ingu á sér lík­am­lega við að drekka drykk­inn dag­lega en hann þjá­ist af krónísku maga­vanda­máli. Það kveikti í okkur með áfram­haldið en líka af því okkur fannst hann ein­stak­lega bragð­góður og á þessum tíma var hann hvergi fáan­legur á Íslandi, þannig að við ákváðum að slá til og deila þessu með sem flestum,“ segir Ragna Björk.
Þau nota fersk hrá­efni til að bragð­bæta kombucha-drykk­inn og má þar nefna íslensk ber, rabar­bara og myntu. Einnig nota þau inn­flutta líf­ræna ávexti líkt og engi­fer­rót og app­el­sínur ásamt líf­rænu grænu, svörtu eða hvítu tei í grunn­inn.

„Manuel fann mikla jákvæða breyt­ingu á sér lík­am­lega við að drekka drykk­inn dag­lega en hann þjá­ist af krónísku maga­vanda­máli.“

Á sér langa sögu
Drykk­ur­inn er tal­inn upp­runn­inn í Asíu, lík­lega Kína, eða Rúss­landi. Til eru sögur frá bruggun hans fyrir tíma Krists en hann barst síðan til Evrópu snemma á 20. öld­inni og nú í dag er hann drukk­inn út um allan heim. Gerjuð mat­væli hafa verið til lengi víða í heim­inum en gerjun er einmitt alda­gömul geymslu­að­ferð. „Það sem er svo gott við drykk­inn er að hann inni­heldur engin auka­efni, allt ferlið er nátt­úru­legt og það sem er ein­stakt er að hann er óger­il­sneyddur sem þýðir að hann inni­heldur marga góða gerla sem eru góðir fyrir þarma­flór­una. Kombucha Iceland inni­heldur mjög lít­inn sykur, ekki nema 1,5 g í 100 ml sem telst mjög lítið miðað við marga erlenda fram­leið­endur. Gott er fyrir þá sem vilja minnka gosn­eyslu að fá sér Kombucha Iceland í stað­inn,“ segir Manuel og brosir. Þau benda á góða bók sem upp­lagt er að styðj­ast við ef fólk vill prófa sig áfram heima, hún heitir The Big Book of Kombucha og er eftir Hannah Grum og Alex Lagory.

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

SCOBY-MASSI AF GERLUM
Notuð er lif­andi örveru­þyrp­ing við gerj­un­ina sem kall­ast Scoby (Symbiotic Colony of Bacteria and Yeast) en hann er massi af gerlum og geri sem styðja hvert annað í gerj­un­ar­ferl­inu. Fyrst af öllu er lagað sætt te sem er síðan látið gerj­ast, Kombucha Iceland er látið gerj­ast í allt að sex vikur. Svipað ferli á sér stað við fram­leiðslu á jógúrti, víni og bjór. Scoby-örveru­þyrp­ingin knýr áfram gerj­un­ina og nær­ist á sykrinum og koff­ín­inu sem er í teinu og breytir því í bragð­góðan og hollan drykk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni