Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fórnarlamb hópárásarinnar stígur fram – Árásarmennirnir albanskir – „Ég er svo feginn að vera á lífi“

Fórnarlamb hópárásarinnar stígur fram – Árásarmennirnir albanskir – „Ég er svo feginn að vera á lífi“
Hander Maria seg­ist hafa rétt náð að bera hönd fyrir höf­uðið þannig að hníf­ur­inn gekk í gegnum slag­æð­ina í stað höf­uðs­ins. Mynd/ aðsend

Hander Maria de la Rosa, fórn­ar­lamb hópárásar í Banka­stræti um síð­ustu helgi, seg­ist ótrú­lega feg­inn að hafa sloppið lif­andi frá árásinni. Hann segir að árás­ar­menn­irnir hafi reynt að stinga hann í höf­uðið en hann hafi náð að koma hönd sinni fyrir þannig að hníf­ur­inn rauf þar slagæð. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru árás­ar­menn­irnir af albönskum upp­runa og hafa unnið sem dyra­verðir fyrir skemmti­staði í mið­borg­inni. 

Hander hefur verið búsettur á Íslandi síð­ast­liðin fjórtán ár eða frá því hann kom hingað frá Dom­iníska lýð­veld­inu sjö ára að aldri. Hann er í sam­bandi með íslenskri konu og telur ljóst að húð­litur sinn, en hann er dökkur á hör­und, sé orsök átak­anna. „Þetta byrj­aði þannig að húð­litur minn var orsökin en þeir eru líka að ráð­ast á Íslend­inga. Meðal ann­ars spörk­uðu þeir í og rot­uðu einn sem reyndi að hjálpa mér,“ segir Hander.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi sami hópur karl­manna ræðst á Hander. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum kjálka­brotn­aði hann við árás og þá árás kærði hann til lög­reglu. Hópárásin um síð­ustu helgi varð eftir að hann neit­aði hópnum um að draga kæruna til­baka. Þegar menn­irnir sáu til Hander í mið­bænum, þar sem hann var að fagna afmæli vinar síns, réð­ust þeir á hann. „Ég var búinn að kæra þennan sama hóp eftir að með­limir hans réð­ust að mér með kylfum og ég lá á spít­ala í nokkra daga. Þessi árás sner­ist um að ég dragi kæruna til­baka, þannig byrj­aði þetta. Ég sagði þeim að ég myndi ekki gera það og þá var bara ráð­ist á mig,“ segir Hander.

Ég er hræddur við að fara út úr húsi af ótta við að þetta ger­ist aftur

Í mynd­böndum sem sýnd hafa verið af átök­unum má sjá Hander liggj­andi í göt­unni þar sem hópur manna sparkar í hann. Eins og áður sagði var Hander stung­inn í hand­legg­inn og slagæð fór í sundur. Hann fór í stóra aðgerð til að loka henni en hann þurfti að fara aftur á sjúkra­hús í gær eftir að blæða tók úr skurð­inum. Hann er sann­færður um að stungan var ætluð í höfuð hans. „Þeir reyndu að stinga mig í haus­inn en ég náði að setja hend­ina fyrir. Vinir mínir reyndu að hjálpa mér og sem betur fer kom fólk líka sem náði að stoppa þetta þannig að ég komst á spít­ala. Ég var búinn að missa mikið blóð og ég tel mig ótrú­lega hepp­inn að vera á lífi,“ segir Hander.

Læknar telja ólík­legt að Hander Maria fái aftur fullan mátt í hand­legg­inn eftir stung­una.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur látið hafa eftir sér að slags­málin gætu hafa verið upp­gjör milli tveggja hópa. Sagt er að fjórir séu með stöðu sak­born­ings en eng­inn værið færður í gæslu­varð­hald. Frásögn Hander gefur til kynna að þarna sé vissu­lega upp­gjör á ferð­inni, en það er upp­gjör ofbeld­is­manna gegn honum sem reyndu að berja hann til hlýðni svo kæra um fyrra ofbeldi yrði dregin til­baka.

Þegar Hander lá á sjúkra­húsi til aðhlynn­ingar var hann yfir­heyrður af lög­reglu sem hann vonar að skili sér í ákæru á hendur árás­ar­mönn­unum. Aðspurður hvort hann fái vernd hjá yfir­völdum þá seg­ist hann ekki hafa fengið til­kynn­ingu um neitt slíkt. „Ég var stung­inn í slagæð og nú fæ ég kannski bara 70-80 pró­sent af hreyf­ingu hand­ar­innar til­baka. Ég var virki­lega hræddur á meðan á þessu stóð og ég er hræddur við að fara út úr húsi af ótta við að þetta ger­ist aftur. En ég er umfram allt þakk­látur fyrir að vera á lífi.“

Myndband af árásinni má sjá hér fyrir neðan. Við vörum við að mynd­bandið gæti valdið óhug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ