Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekkert úrræði til fyrir börn foreldra með geðrænan vanda

Ekkert úrræði til fyrir börn foreldra með geðrænan vanda
Sigríður Gísla­dóttir, vara­for­maður Geð­hjálpar. Mynd / Hallur Karlsson

Sigríður Gísla­dóttir, vara­for­maður Geð­hjálpar, segir eitt brýn­asta verk­efni sam­tak­anna vera að efla fræðslu og stuðn­ing við börn sem alast upp hjá for­eldrum með geð­rænan vanda. Nánast engin úrræði séu í boði fyrir þann hóp. Sigríður ólst sjálf upp hjá móður með geð­rænan vanda og þekkir því af eigin raun áhrif þess að alast upp við slíkar aðstæður.

„Ég þekki það að fara í gegnum alla æsk­una án stuðn­ings og fræðslu um geð­rænan vanda,“ segir Sigríður. „Það er ástæðan fyrir því að ég kem inn í stjórn Geð­hjálpar að mér fannst þetta vera mál­efni sem ég þyrfti að taka þátt í að berj­ast fyrir. Upplifun mín í æsku var sú að það ætti ekki að ræða geð­rænan vanda við börn og þess vegna mynd­að­ist hjá mér skömm. Maður átti ekki að spyrja neinna spurn­inga og maður átti eig­in­lega ekki að vita neitt um þetta mál­efni. Á sama tíma var ég með mjög veikt for­eldri heima og vissi ekk­ert hvað var að, hvernig ég ætti að bregð­ast við eða hvert ég ætti að leita.“

Sigríður segir að á þeim tíma hafi ekki verið nein úrræði fyrir börn í hennar stöðu og að eng­inn hafi virst hafa skiln­ing á því að hún þyrfti aðstoð. „Þótt for­eldri mitt væri tvisvar sinnum nauð­ung­ar­vi­stað inni á geð­deild þá var eng­inn sem greip mig, eng­inn heil­brigð­is­starfs­maður sem veitti mér stuðn­ing eða yfir­höfuð spurði hvernig mér liði. Þegar ég var komin á ung­lings­aldur veikt­ist ég sjálf mjög alvar­lega af átröskun og var komin inn á geð­deild átján ára. Ég barð­ist við átrösk­un­ina í fimm ár og eftir að hafa gengið í gegnum þetta allt saman fór ég að hafa mik­inn áhuga á afleið­ingum þess að alast upp við geð­rænan vanda for­eldris. Ég trúi því að átröskun mín hafi verið afleið­ing þess­ara aðstæðna og eftir að hafa lesið margar rann­sóknir hef ég séð það enn betur hversu mik­il­vægt það er að bjóða upp á stuðn­ing og fræðslu.“

Vinna að heimasíðu með fræðslu um geðrænan vanda fyrir börn

Sigríður var kosin í stjórn Geð­hjálpar í mars 2019 og er nú orðin vara­for­maður sam­tak­anna, hverju hefur verið áorkað á þeim tíma sem hún hefur verið í stjórn­inni?
„Já, það er von þú spyrjir,“ segir hún og brosir. „Þetta er erfitt við­fangs­efni og það þarf að byrja á því að spyrja spurn­inga á réttum stöðum. Nú er ég til dæmis orðin þrí­tug og maður veit aldrei nema hlut­irnir hafi batnað síðan ég var barn, en því miður virð­ist það ekki vera. Það sem við höfum gert er að vera í sam­tali við Land­spít­al­ann og reyna að kom­ast að því hvaða fræðslu og stuðn­ing börnin fái þar þegar for­eldri leggst inn á geð­deild og höfum kom­ist að því að það er í raun­inni ekk­ert úrræði til staðar á Íslandi fyrir börn sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda.

„Þótt for­eldri mitt væri tvisvar sinnum nauð­ung­ar­vi­stað inni á geð­deild þá var eng­inn sem greip mig, eng­inn heil­brigð­is­starfs­maður sem veitti mér stuðn­ing eða yfir­höfuð spurði hvernig mér liði.“

Þann 4. júní 2019 voru sam­þykktar laga­breyt­ingar á Alþingi um rétt­indi barna sem aðstand­enda og þar kemur skýrt fram að það er skylda heil­brigð­is­starfs­manna að bjóða upp á við­eig­andi stuðn­ing miðað við þroska­stig barns þegar for­eldri kemur inn á geð­deild. Hins vegar er bara ekk­ert úrræði í boði þannig að þótt heil­brigð­is­starfs­fólk vilji aðstoða börnin er það ekki hægt. Við höfum verið í sam­starfi við bresk sam­tök sem heita Our time og hafa starfað í yfir tutt­ugu ár fyrir þennan hóp, börn sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda. Samtökin hafa verið að aðstoða okkur og fræða og reyna að hjálpa okkur við að koma af stað ein­hverju úrræði hérna á Íslandi. Við höfum verið að vinna að heima­síðu sem er ein­göngu ætluð börnum sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda og á þeirri síðu verður fræðslu­efni og upp­lýs­ingar um hvert er hægt að leita þegar eitt­hvað kemur fyrir. Við erum með fag­að­ila sem aðstoða okkur við gerð fræðslu­efn­is­ins og leið­beina okkur um hvernig eigi að tala um þetta mál­efni við börnin. Hugsun mín er sú að börn nútím­ans eru alltaf í sím­anum og við þurfum að hafa fræðslu­efni á net­inu sem þau geta nálg­ast og fengið þá upp­lifun að þau megi spyrja spurn­inga og tala um geð­rænan vanda. Síðan er ekki komin í gagnið, við erum að vinna í henni og von­andi verður hún komin í gagnið í lok árs­ins. Eins erum við með mál­þing í nóv­em­ber sem fjallar um börn sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda og þar verða bæði reynslu­sögur og fyr­ir­lestrar fag­að­ila sem sýna fram á áhrif þessa ástands á börnin og hversu mik­il­vægt það er að styðja þau. Það er margt sem þarf að hyggja að en við erum að gera okkar besta til að pressa á heil­brigð­is­yf­ir­völd og reyna að koma af stað ein­hverju úrræði fyrir börnin. Mér finnst mik­il­vægt að skoða hvaða stuðn­ingur er í boði fyrir börn þeirra sem grein­ast með aðra sjúk­dóma. Ég held að við getum tekið til fyr­ir­myndar stuðn­ing­inn sem Ljósið hefur verið að veita börnum sem eiga for­eldri með krabba­mein. Þar eru reglu­lega nám­skeið í boði sem eru til að fræða og styðja við þau.“

Börn foreldra með geðrænan vanda í tvöfaldri hættu á að þróa með sér sjúkdóma

Hver eru helstu áhrifin sem það hefur á börn að alast upp hjá for­eldri með geð­rænan vanda? „Far­alds­fræði­legar rann­sóknir hafa leitt í ljós að börn sem eiga for­eldra með alvar­lega geð­rænan vanda eru í marg­falt meiri hættu á að fá geð­rænan vanda á full­orð­ins­árum en börn ann­arra for­eldra,“ útskýrir Sigríður. „Sýnt hefur verið fram á að þau eru í fimm­tíu pró­sent meiri hættu á að fá þung­lyndi og kvíða og þrjá­tíu pró­sent auk­inni hættu á að grein­ast með geð­rofs­sjúk­dóma. Orsakir þess að þau eru í sér­stakri hættu á að verða veik eru marg­þættar og flóknar og tengj­ast erfðum, sál­fræði­legum og félags­legum þáttum, auk þess sem umhverf­is­þættir gera þessi börn við­kvæm­ari fyrir. Í Noregi hefur verið áætlað að börn for­eldra með geð­rænan vanda séu í tvö­faldri hættu á nei­kvæðum afleið­ingum, bæði til skemmri og lengri tíma, miðað við börn for­eldra sem ekki hafa geð­rænan vanda. Þær afleið­ingar eru meðal ann­ars átröskun og alls konar aðrar rask­anir, þannig að það er alveg ljóst að þetta hefur gríð­ar­mikil áhrif á börn. Þessar rann­sóknir hafa líka sýnt fram á það að börn sem hafa verið í þessum aðstæðum vilja fræðslu og stuðn­ing.“

Samfélagið býr til skömm í börnunum

Sigríður segir mik­il­vægt að ná til barn­anna eins ungra og mögu­legt er þar sem þau læri smám saman að skamm­ast sín fyrir ástandið. „Mér finnst sam­fé­lagið vera að búa til skömm í börnum for­eldra með geð­rænan vanda,“ segir hún. „Þess vegna skiptir svo miklu máli að við styðjum við þau í æsku, kennum þeim að það sé í lagi að tala um þetta svo við aukum ekki lík­urnar á því að veik­indin fari áfram til næstu kyn­slóðar. Ég upp­lifði það sem barn að það fylgdi því mikil skömm að tala um sjúk­dóm mömmu og mér fannst ég vera algjör­lega ein í þess­ari stöðu, það hefur mikil áhrif á líð­an­ina bæði í æsku og á full­orð­ins­árum.“

Spurð hvernig sam­starfi Geð­hjálpar við skól­ana sé háttað í þessu verk­efni segir Sigríður að það sé á byrj­un­ar­stigi, en sé næsta skref á leið­inni að úrbótum. „Samtökin sem við erum í sam­starfi við, Our time, eru með pró­gramm fyrir skól­ana sem gengur meðal ann­ars út á að tala við kenn­ar­ana og útskýra hvernig eigi að tala við börn um geð­rænan vanda og hvernig sé hægt að aðstoða þau. Í þessum aðstæðum á skól­inn að vera griða­staður, börn eiga að geta leitað til kenn­ara eða ein­hvers í skól­anum sem þau geta talað við. Ég upp­lifði mik­inn kvíða í skól­anum sem barn. Mamma hringdi mig oft inn veika þegar að það voru miklir erf­ið­leikar hjá henni. Skóla­sókn og ein­kunnir mínar voru mér ekki mik­il­vægar í þeim aðstæðum. Það hefði skipt miklu máli fyrir mig að upp­lifa öryggi og stuðn­ing í skól­anum, en í stað­inn var ég skömmuð fyrir slæma mæt­ingu og frammi­stöðu. Ég var aldrei spurð um mína líðan eða ástandið heima. Þess vegna kveið ég því mikið að mæta í skól­ann því þar upp­lifði ég að ég væri óþekk og lélegur nem­andi. Stuðn­ingur og fræðsla fyrir börn sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda er bæði réttur barn­anna og for­eldra.“

Börnin hafa enga rödd

Þú sagðir áðan að þegar þú komst inn í stjórn Geð­hjálpar hefð­irðu byrjað á því að leita svara við því hvort ein­hverjar úrbætur hefðu orðið í þessum mála­flokki síðan þú varst barn, hver er nið­ur­staðan, hefur eitt­hvað breyst? „Nei,“ segir Sigríður ákveðin. „Þetta hefur ekk­ert breyst, því miður, ég vildi að svo væri en ástandið er enn það sama. Það er ekk­ert úrræði fyrir þessi börn og fólk virð­ist ekki setja börnin í fyrsta sæti. Þau hafa engan tals­mann, þau hafa enga rödd og það hlustar eng­inn á þau. Það var alla vega mín upp­lifun og þess vegna finnst mér svo mik­il­vægt að ég nýti rödd­ina mína, núna þegar ég er orðin full­orðin. Nú er hlustað á mig en það hlustar eng­inn á börnin þegar þau eru lítil. Það er líka mjög algengt í þessum aðstæðum að börn verndi for­eldrið, vilji ekki segja frá og séu hrædd um að verða tekin frá for­eldr­inu. Þess vegna er svo mik­il­vægt að búa til umhverfi þar sem þau upp­lifa að þau geti talað um þetta, fengið ráð, fengið stuðn­ing og finni ekki fyrir þess­ari skömm og hræðslu. Það er umhverfi sem ég tel að sé bara alls ekki til staðar á Íslandi og því þarf að breyta.“

Umræðan í þjóð­fé­lag­inu um geð­rænan vanda hefur orðið miklu opn­ari á und­an­förnum árum, hefur það ekki skilað sér til barn­anna? „Nei, það virð­ist ekki vera,“ full­yrðir Sigríður. „Það er eins og það megi ekki tala um geð­rænan vanda við börn, það er eitt­hvert algjört tabú. Það er eins og við viljum ekki horfa á þá stað­reynd að það er fullt af börnum á Íslandi sem búa hjá for­eldrum með geð­rænan vanda. Það er ekk­ert að því, alls ekki, en þau þurfa mörg hver stuðn­ing og fræðslu. Það skrýtna er að þetta virð­ist vera við­fangs­efni sem rosa­lega fáir þora að snerta á.“

Mikilvægt að hitta önnur börn í sömu stöðu

Þú segir að það þurfi að koma ein­hverjum úrræðum inn í heil­brigð­is­kerfið, hvað áttu við með því? Hvernig úrræðum? „Fræðslu­efni eins og við verðum með á heima­síð­unni er mik­il­vægt en það þarf líka að vera eitt­hvert úrræði þar sem börnin fá, á sínum for­sendum að hitta fag­að­ila og tala við hann. Ekki að það sé háð því að for­eldrið fari fram á það. Barnið er númer eitt, tvö og þrjú og það þarf þennan stuðn­ing og fræðslu. Our time hafa verið með vinnu­stofur einu sinni í mán­uði þar sem börnin hitt­ast, með ein­stak­lingum sem eru þjálfaðir í því að vinna með börnum í þessum aðstæðum. Þar fá þau að hitta önnur börn sem eru í sömu stöðu og það hefur sýnt sig í rann­sóknum hversu mik­il­vægt það er að börnin hitti önnur börn og sjái að það séu fleiri börn á Íslandi sem eigi veikt for­eldri, að þau séu ekki ein í heim­inum. Það skiptir gríð­ar­lega miklu máli. Ég sé fyrir mér úrræði sem bæði fræðir börnin og þau fá að hitta fag­að­ila og tala um sína líðan, ekki alltaf bara veik­indi for­eldris og svo úrræði þar sem börnin hitt­ast og fá að tala saman og leika sér saman.“

Eru börn almennt til­búin til þess að opna á umræðu um veik­indi for­eldra? „Ég held að ef við náum til þeirra nógu snemma þá séu þau til­búin að opna sig,“ segir Sigríður. „Þegar ég lenti fyrst í þessum aðstæðum var ég mjög ung og ég var mjög til­búin til þess að ræða um það og fá stuðn­ing, en eftir því sem á líður og barn er kannski búið að vera í þessum aðstæðum árum saman, upp­lifa höfnun frá heil­brigð­is­starfs­fólki, búin að upp­lifa skömm­ina, búin að upp­lifa hvernig fólk talar um for­eldri þitt þá finn­urðu fyrir þess­ari skömm og þú lok­ast. Þess vegna er svo mik­il­vægt að grípa strax inn í, áður en barnið lærir þessa skömm og lærir að fela ástandið og líðan sína.“

„Það er eins og við viljum ekki horfa á þá stað­reynd að það er fullt af börnum á Íslandi sem búa hjá for­eldrum með geð­rænan vanda.“

Það er sem sagt lærð hegðun, að þínu áliti? „Ég vil meina það, já,“ segir Sigríður ákveðin. „Okkur er kennt að fela geð­rænan vanda. Auðvitað hafa orðið miklar fram­farir varð­andi við­horf til geð­rænan vanda á Íslandi síð­ast­liðin ár, en börnin virð­ast ekki hafa fylgt með í þeirri þróun. Ég get ímyndað mér að börn fái mjög mis­jöfn við­brögð í skólum eftir því hvort þau segi að mamma þeirra sé með geð­klofa eða krabba­mein. Það virð­ist vera meiri skiln­ingur og sam­kennd þegar það kemur að lík­am­legum sjúk­dómum.“

Myndirðu þá vilja að fræðsla um geð­rænan vanda kæmi inn í almenna fræðslu um sjúk­dóma og heil­brigði? „Já, ég myndi vilja það,“ segir Sigríður. „Auðvitað er ein­hver fræðsla um geð­rænan vanda í skóla­kerf­inu, fer eftir skólum hversu mikil hún er, en það er engin fræðsla um þetta hlut­verk að vera barn sem á for­eldri með geð­rænan vanda. Það er eitt af því sem þarf að breyta og við höfum allt í hönd­unum til þess. Við höfum laga­breyt­ingar, við höfum rann­sóknir sem sýna þessi miklu áhrif sem börn verða fyrir og Geðhjálp er komin í sam­starf við sam­tök sem hafa mikla reynslu í þessu, þannig að ég hef fulla trú á að við náum fram breyt­ingum. Það er algjör­lega nauð­syn­legt.“

Viðtalið er að finna í blaði Geð­hjálpar

Á www.39.is getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur