Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þeir sem leita að betra lífsviðurværi eiga ekki erindi inn í verndarkerfið“

„Þeir sem leita að betra lífsviðurværi eiga ekki erindi inn í verndarkerfið“
„Stjórn­málin eru bara þess eðlis að sumir í stjórn­málum nota hvert tæki­færi til þess að höggva í póli­tíska keppi­nauta þannig að það kom ekk­ert á óvart. Ég steig frá til að gefa stjórn­völdum kost á að taka ákvörðun um hvort þau ætl­uðu að óska eftir frek­ari umfjöllun um þetta mál í Strass­borg eða ekki.“

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gagn­rýnt sótt­varna­að­gerðir, hún vill að útlend­inga­lögum sé breytt og stemma stigu við til­hæfu­lausum umsóknum um alþjóð­lega vernd. Hún sté til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far þess að dómur féll í Strass­borg í Lands­rétt­ar­mál­inu og seg­ist í grund­vall­ar­at­riðum vera ósam­mála stefnu Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs.

Þótti vera hörð

Sigríður segir að hún og fleiri í Sjálf­stæð­is­flokknum hafi talað fyrir því að Íslend­ingar þurfi að gæta þess að loka ekki land­inu fyrir fólki utan EES sem vill koma og vinna hér á landi. „Það er nokkuð sem ég tók upp í fyrri rík­is­stjórn­inni sem ég sat í við sam­ráð­herra mína um að hefja end­ur­skoðun á vinnu­lög­gjöf­inni hér á landi með það í huga að hingað geti komið fólk utan EES í atvinnu­leit, á eigin ábyrgð en ekki fyrst í gegnum vernd­ar­kerfið.“ Atvinnu­á­standið getur breyst eins og til dæmis núna vegna Covid-19 þar sem atvinnu­leysi hefur auk­ist hratt. „Þetta yrði gert í sam­hengi við vinnu­mark­að­inn á hverjum tíma og end­ur­skoðun vinnu­lög­gjaf­ar­innar í þessum til­gangi þarf auð­vitað að miða að því að það sé svig­rúm fyrir þetta eftir því hvernig vinnu­mark­að­ur­inn er hér á hverjum tíma.“

Sigríður mælti í maí 2018 þegar hún var dóms­mála­ráð­herra fyrir frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um útlend­inga og lögum um Schengen-upp­lýs­inga­kerfið á Íslandi. Hún sagði þá að við fram­kvæmd á nýjum lögum um útlend­inga, nr. 80/2016, sem tóku gildi 1. jan­úar 2017, hafi komið í ljós að lag­færa, end­ur­skoða og breyta þyrfti all­mörgum ákvæðum lag­anna svo að fram­kvæmd þeirra og máls­með­ferð þeirra mála sem undir þau falla væri skýr og gagnsæ. Í frum­varp­inu, sem sam­þykkt var sem lög, var boðun umsækj­anda um vernd í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun gerð skil­virk­ari. Þá voru tíma­frestir á heim­ild umsækj­anda um dval­ar­leyfi til að dvelja á land­inu á meðan umsókn hans er í vinnslu skýrðir auk þess sem til­tekið var að dval­ar­leyf­is­um­sóknir sem væru í vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun þegar umsækj­anda hefur verið brott­vísað, eða til­kynnt um hugs­an­lega brott­vísun, yrðu felldar úr gildi.

Sumum þótti Sigríður í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra vera hörð þegar kemur að umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. Þess má geta að ekki er búið að afgreiða frum­varp núver­andi dóms­mála­ráð­herra til breyt­inga á útlend­inga­lögum og þykir sumum það frum­varp vera í takt við annað frum­varp sem Sigríður kynnti stuttu áður en hún hvarf úr emb­ætti.

„Það eru ýmsar laga­breyt­ingar enn nauð­syn­legar í þessum mála­flokki en það hefur bara ekki náðst sam­staða um það á Alþingi eða hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum að koma þeim í gegn. Vilji menn auka enn á skil­virkni í þágu þeirra sem þurfa á vernd að halda þá er alveg ljóst að það þarf frek­ari breyt­ingar á lögum. Sú þróun sem á sér stað núna varð­andi hæl­is­leit­endur gengur ekki upp til lengri tíma. Mér tókst í minni tíð sem dóms­mála­ráð­herra að minnsta kosti að stemma stigu við til­hæfu­lausum umsóknum um alþjóð­lega vernd frá öruggum löndum sem létti mjög á kerf­inu og ég skoð­aði líka ýmsa mögu­leika varð­andi landamæra­eft­ir­lit í þessum efnum. Núna þegar í raun­inni er búið að koma á landamæra­eftlir­liti á Íslandi vegna Covid-19 og segja má að landa­mærin séu lokuð, en hingað koma kannski ein til tvær vélar á dag, þá hefði mér fund­ist vera upp­lagt að nota tæki­færið til þess að leita allra leiða til að stöðva komu fólks sem hyggst sækja hér um alþjóð­lega vernd að til­hæfu­lausu, jafn­vel áður en það stígur upp í vél­arnar erlendis. Þannig gætum við tekið upp skil­virkara eft­ir­lit á landa­mær­unum. Ég vona að það sé ekki útséð með að menn geri það og nota tæki­færið á hálf­tómum flug­völlum þessa dag­ana til að koma í veg fyrir til­efn­is­lausar og til­hæfu­lausar umsóknir um alþjóð­lega vernd hér á landi. Síðan er ESB að íhuga mikla end­ur­skoðun á sínum reglum og í Schengen-sam­starf­inu og eru uppi áform um að efla enn frekar ytri landa­mæri Schengen-svæð­is­ins og það er jákvætt.

Ég hef tekið eftir að það gengur svo­lítið hægt að flokka lönd sem örugg lönd. Við fengum til dæmis á tíma­bili furðu­lega bylgju af umsóknum um alþjóð­lega vernd frá Venezuela. Auðvitað er ástandið þar hörmu­legt vegna komm­ún­ism­ans sem þar ríkir en í hefð­bundum flótta­manna­skiln­ingi þá held ég að það séu ekki for­sendur til að veita fólki frá Venezuela hæli á Íslandi.“

Sigríður segir að hún vilji að Íslend­ingar ein­beiti sér að mót­töku flótta­manna sem koma hingað eftir und­ir­bún­ing og í sam­starfi við Alþjóða flótta­manna­stofn­un­ina og sam­bæri­legar stofn­anir sem Ísland vinnur með í þessum mála­flokki. „Við getum staðið okkur vel í því og eigum að taka á móti flótta­mönnum. En fólk sem er að leita sér að betra lífs­við­ur­væri á ekki erindi inn í vernd­ar­kerfið í kringum flótta­menn og þá sem óska eftir dval­ar­leyfi vegna mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Það er ósann­gjart gagn­vart þeim sem raun­veru­lega þurfa á vernd­ar­kerf­inu að halda og einnig ósann­gjarnt gagn­vart þeim sem hér búa og hafa fallið milli skips og bryggju í vel­ferð­ar­kerf­inu okkar og þurfa oft að bíða lengi lausn sinna mála. Móttaka flótta­fólks og jákvæð afgreiðsla umsókna um alþjóð­lega vernd, sem nú er orðin miklu umfangs­meiri en mót­taka flótta­fólks, er mikil áskorun fyrir vel­ferð­ar­þjón­ust­una. Það verður ekki fram hjá því horft. Við viljum standa okkur vel gagn­vart þeim sem eiga rétt á þjón­ustu á hverjum tíma. Áhlaup á þessa þjón­ustu gagn­ast engum. “

Umsókn um alþjóð­lega vernd kallar á mikla rann­sókn stjórn­valda. Það þarf að sann­reyna að fólkið sé það sem það seg­ist vera en þess má geta að sumir eru ekki með skil­ríki eða koma jafn­vel með fölsuð eða stolin skil­ríki. Sigríður segir að þeir sem fram­vísa fölsuðum eða stolnum skil­ríkjum séu ákærðir en það hefur ekki komið í veg fyrir að umsókn­ar­ferli um alþjóð­lega vernd sé hætt. „Hinn langi dráttur á afgreiðslu þess­ara mála má oft rekja til þess að menn eru ekki sam­vinnu­þýðir með að veita upp­lýs­ingar um hverjir þeir eru. Oft líður líka langur tími þar til nið­ur­staða fæst vegna þess að fólk kærir nið­ur­stöð­una og málin ganga fram og til baka í kerf­inu. Þetta þarf auð­vitað að laga.

Ef fólk seg­ist til dæmis vera frá Sýrlandi þá er gengið mjög langt í því að sann­reyna það og njótum við aðstoðar erlendra rann­sókna­stofa í þeim efnum. Ég tala nú ekki um ef börn eru í spil­inu en þá er mjög brýnt að sann­reyna að börnin séu þau sem for­eldr­arnir segja að þau séu og að það sé hafið yfir allan vafa að barnið sé raun­veru­lega barn fólks­ins sem kom með það. Það er ekki hægt að slá neitt af kröfum í þeim efnum. Þetta getur tekið tíma og útskýrir stundum þennan óhóf­lega langa drátt. Stundum er það þannig þegar fréttir eru fluttar af óhóf­lega löngum drætti á afgreiðslu ein­hverrar umsóknar að þá er það ekki svo; fólk hefur kannski komið til lands­ins á öðrum for­sendum og dvalið hér á landi kannski í nokkur ár þegar það svo loks sækir um hæli.“

„Það herðir mann auð­vitað að vera í póli­tík. Ætli ég myndi ekki segja að það hafi komið mér á óvart hvað maður róast við hvert ruglið sem maður verður vitni að í stjórn­mál­unum; með hverju nýju rugl­inu herð­ist maður og slakar því meira á.“

Börn hæl­is­leit­enda sem fæð­ast hér á landi verða ekki sjálf­krafa íslenskir rík­is­borg­arar eins og er sums staðar ann­ars staðar. Þess má geta að í frétt á ruv.is 5. nóv­em­ber í fyrra segir: „Kjartan Hreinn Njálsson, upp­lýs­inga­full­trúi emb­ættis Land­læknis, segir að lækn­is­skoð­anir á þung­uðum hæl­is­leit­endum sé orð­inn stór hluti af þeirri vinnu sem fari fram á Mæðra­vernd.“

„Það að umsækj­andi um alþjóð­lega vernd eign­ist barn á Íslandi á meðan málið er til umfjöll­unar veitir engan sér­stakan rétt sjálf­krafa, jafn­vel þótt börn hafi dvalið hér í nokkur ár þótt vissu­lega sé litið til hags­muna barna í hverju til­viki fyrir sig. Það þarf að vera eitt­hvað mjög sér­stakt til að börn fái sér­af­greiðslu. Það er stundum talað um að börn hafi sér­stök tengsl við landið. Íslend­ingar eign­ast börn út um allan heim, dvelja erlendis við nám eða vinnu í mörg ár en það skapar ekki börnum sér­stakan rétt eða því­lík tengsl við landið að það sé hægt að rétta­læta það að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd séu í ein­hverri stöðu þess vegna til að fá frekar vernd, eða rík­is­borg­ara­rétt, vegna tengsla við landið.“

Hátt í fjórir milljarðar í hælisleitendur

Árin 2016 og 2017 streymdu hæl­is­leit­endur frá Makedóníu og Albaníu til Íslands með til­hæfu­lausar hæl­is­um­sóknir og var áætl­aður kostn­aður vegna hæl­is­um­sókna árið 2016 2,2 millj­arðar króna og jókst kostn­að­ur­inn tölu­vert vegna þessa hóps frá þessum tveimur löndum. Til­hæfu­lausar umsóknir árið 2016 voru um 60% og voru flestir í þeim hópi frá Makedóníu og Albaníu. Þessi tvö ríki telj­ast til öruggra ríkja og var öllum synjað um hæli að lok­inni skoðun. Yfirvöld þar sögðu að þessi fjöldi fólks frá þessum löndum tengd­ist því að það hafi virkað hvetj­andi þegar hæl­is­leit­endur fengu hér fæð­is­pen­ing á meðan unnið var úr umsóknum þeirra. Þeirri fram­kvæmd var svo breytt. Útlend­inga­stofnun fékk svo þær upp­lýs­ingar um mitt ár 2016 að í Albaníu væri full­yrt að fólk þaðan gæti sest að á Íslandi án mik­illar fyr­ir­hafnar en fjallað var í fjöl­miðlum í þessum tveimur löndum um mál­efni tveggja albanskra fjöl­skyldna með lang­veik börn sem Alþingi veitti íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2015 í kjöl­far þess að Útlend­inga­stofnun hafði synjað þeim um hæli.

Saso D. Andonov, ræð­is­maður Makedóníu hér á landi, sagði í 2. tbl. Frjálsrar versl­unar árið 2017 að mikið hafi verið fjallað um þessi mál í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum bæði í Makedóníu og í Albaníu og stundum rangt sagt frá því hvernig kerfið virki hér á landi. „Það að fjöl­skyld­urnar skyldu fá íslenskan rík­is­borga­rétt var túlkað sem merki um að íslensk stjórn­völd myndu bjóða vel­komið fólk í svip­uðum aðstæðum. Ég var í Makedóníu á þessum tíma og heyrði margar sögu­sagnir um kerfið á Íslandi en sam­kvæmt þeim var Ísland rétta landið til að fara til.“ Þá sagði Andonov að íslenska vel­ferð­ar­kerfið virk­aði hvetj­andi og að þessi hópur hafi einnig viljað nýta sér það að hæl­is­leit­endur hér á landi gætu safnað þeim pen­ingum sem þeir fengju frá íslenskum stjórn­völdum meðan hæl­is­um­sókn þeirra væri tekin fyrir auk þess sem þeir fengju ókeypis hús­næði og lækn­is­þjón­ustu. Í sama blaði er við­tal við Kai Blöndal, yfir­lækni göngu­deilar sótt­varna- og hæl­is­leit­enda. Hún sagði meðal ann­ars að heil­brigð­is­þjón­ustan sé í raun­inni fín í Makedóníu og Albaníu og að íbúar þar borgi ekki fyrir lækn­is­þjón­ustu nema ef um sér­fræði­þjón­ustu sé að ræða.

Sigríður hyggst gefa kost á sér fyrir næstu kosn­ingar að ári. Hún seg­ist ekki vita hvort það verði próf­kjör innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en seg­ist munu sækj­ast eftir því að vera í fram­varð­ar­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík eins og hún hefur verið.

Sigríður segir að árlegur kostn­aður nú í tengslum við hæl­is­leit­endur sé hátt í fjórir millj­arðar króna. „Eitt er kostn­aður við hæl­is­leit­end­urna sjálfa. Svo þegar þeir eru búnir að fá alþjóð­lega vernd þá kemur annar kostn­aður sem er ekki í þess­ari tölu.“ Sigríður segir að þegar fólk hefur fengið umsókn sína um vernd sam­þykkta fái það til dæmis hús­næð­is­bætur ef það fer á leigu­mark­að­inn. „Það er óhægt um vik fyrir íslensk stjórn­völd að kanna hvort þetta fólk eigi ein­hverjar eignir ann­ars staðar í heim­inum.“ Hún seg­ist halda að það sé erfitt fyrir suma sem hafa fengið hér alþjóð­lega vernd að finna vinnu og fara þeir þá á ein­hvers konar fram­færslu­bætur.

Mál sex manna egypskrar fjöl­skyldu sem sótti um hæli hér á landi vakti í haust mikla athygli. Vísa átti fjöl­skyld­unni úr landi eftir að end­an­leg nið­ur­staða fékkst í mál­inu en komið var að tómum kof­anum þar sem fjöl­skyldan hafði falið sig. Hún fékk svo vernd eftir að ósk kom upp að taka málið upp enn einu sinni. „Þau voru búin að fá mál sitt skoðað á öllum stigum stjórn­sýsl­unnar, oftar en einu sinni, og búin að fá neitun um alþjóð­lega vernd við hvert fót­mál. Svo í lokin þá leggja þau fram máls­á­stæðu sem þau sögðu nýja til að málið yrði skoðað enn einu sinni. Þetta er auð­vitað vand­inn í þessu kerfi, að fólk geti komið með enn aðra máls­á­stæðu við lok fer­ils­ins. Það á auð­vitað ekki að vera hægt. Þetta hlýtur að vera til skoð­unar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu.“

Sigríður er í helg­ar­við­tali Mannlífs. Lestu allt við­talið hér. 

Texti: Svava Jóns­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ