Grettir Örn Ásmundarson, byggingafulltrúi Árneshrepps á Ströndum, veitir engin svör um hvað hið opinbera hefur aðhafst gagnvart óleyfisframkvæmd á Djúpavík. Þar var reist bygging í leyfisleysi og á landi sem fjölskyldan sem reisti hana á ekki. Þá svarar hann engu um hversu langan frest hann muni veita fjölskyldunni til að koma hlutunum í lag.
Fjölskylda oddvita Árneshrepps á Ströndum reisti byggingu á landi sem hún á ekki. Þar að auki var byggingin reist í leyfisleysi. Fyrir framkvæmdinni er skráður Magnús Karl Pétursson, hótelstjóri á Djúpavík og tengdasonur Evu Sigurbjörnsdóttur, oddvita hreppsins.
Forsaga málsins er sú að fjölskyldan fékk fyrir mörgum árum svokallað stöðuleyfi fyrir því að koma fyrir gámum á landi í Djúpavík á Ströndum. Undanfarin ár hefur fjölskyldan síðan byggt í kringum þessa gáma en fyrir því liggja ekki leyfi frá hinum opinbera.
Snemma októbermánaðar sagðist Grettir ætla að setja sig í samband við fjölskylduna og krefjast svara. Nú vill byggingafulltrúinn engin svör veita umfram það að málið sé í ferli. Hann vísaði því fyrirspurnum Mannlífs á Evu oddvita, tengdamóður Magnúsar hótelstjóra. Við vinnslu fréttarinnar var reynt að ná sambandi við Magnús en án árangurs.































Athugasemdir