Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjölskylda oddvita reisti byggingu án leyfa á landi sem hún á ekki

Fjölskylda oddvita reisti byggingu án leyfa á landi sem hún á ekki
Full­trúar hins opin­bera von­ast til að fjöl­skyldan kom­ist yfir lóð­ina og skili inn leyf­is­um­sókn

Fjöl­skylda odd­vita Árnes­hrepps á Ströndum reisti bygg­ingu á landi sem hún á ekki. Þar að auki var bygg­ingin reist í leyf­is­leysi. Fyrir fram­kvæmd­inni er skráður Magnús Karl Pét­urs­son, hót­el­stjóri á Djúpavík og tengda­sonur Evu Sig­ur­björns­dóttur, odd­vita hrepps­ins.

Forsaga máls­ins er sú að fjöl­skyldan fékk fyrir mörgum árum svo­kallað stöðu­leyfi fyrir því að koma fyrir gámum á landi í Djúpavík á Ströndum. Und­an­farin ár hefur fjöl­skyldan síðan byggt í kringum þessa gáma en fyrir því liggja ekki leyfi frá hinum opin­bera. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs á Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf., umrædda lóð sem bygg­ingin stendur á.

Númer 1, 2 og 3 þá þarftu að eiga lóð­ina sem þú ætlar að byggja á og svo að sjálf­sögðu að fá leyfi fyrir því líka

Þórður Már Sig­fús­son, skipu­lags­full­trúi hrepps­ins, stað­festir að fjöl­skyldan hafi fram til þessa dags ekki átt jörð­ina sem bygg­ingin var reist á. Hann segir málið í vinnslu og von­ast til þess að landið fáist fært til fjöl­skyld­unnar. „Þetta er mjög erfitt mál. Upp­haf­lega fengu þau stöðu­leyfi fyrir gáma en síðan hefur verið hús reist yfir þá. Það liggur fyrir að það hefur ekk­ert leyfi verið fyrir þess­ari bygg­ingu. Fjöl­skyldan bað mig að stofna lóð undir þessa bygg­ingu en ég sagði nei því það liggur ekki fyrir að þau eigi hana. Þangað til get ég ekk­ert gert en það breytir því samt ekki að bygg­ingin reis án leyfis og í þokka­bót á lóð sem þau eiga ekki,“ segir Þórður Már.

Full­trúar hins opin­bera von­ast til að fjöl­skyldan kom­ist yfir lóð­ina og skili inn leyf­is­um­sókn

Aðspurður segir Þórður Már að svona eigi auð­vitað ekki að fram­kvæma hlut­ina. „Algjör­lega og það er búið að segja þeim það. Núna er það bygg­inga­full­trú­ans að taka afstöðu til bygg­ing­ar­innar,“ segir Þórður Már.

Grettir Ásmunds­son, bygg­inga­full­trúi hrepps­ins, segir ljóst að ekk­ert bygg­ing­ar­leyfi hafi verið veitt og því hafi fram­kvæmdir verið stöðv­aðar. Aðspurður segir hann málið í ferli þar sem odd­vita­fjöl­skyld­unni verður gef­inn kostur á að kom­ast yfir lóð­ina og skila inn teikn­ingum með leyf­is­um­sókn. „Við höfum fengið bréf frá lög­manni þeirra og við höfum einnig fengið óháðan lög­mann til að skoða þetta. Hníf­ur­inn stendur þannig í kúnni að þau eiga ekki lóð­ina og hafa ekki verið veitt nein leyfi fyrir þess­ari bygg­ingu. Það liggur alveg fyrir að þetta er óleyf­is­fram­kvæmd. Það gengur ekki að hver sem er sé bara að byggja ein­hvers staðar. Númer 1, 2 og 3 þá þarftu að eiga lóð­ina sem þú ætlar að byggja á og svo að sjálf­sögðu að fá leyfi fyrir því líka,“ segir Grettir.

Eins og áður sagði er Magnús tengda­sonur Evu odd­vita skráður fyrir bygg­ing­unni. Í sam­tali við Mannlíf segir Eva að bygg­ingin sé sér óvið­kom­andi og bendir á að málið sé í réttu ferli. Aðspurð játar odd­vit­inn því að hafa verið í sam­skiptum við bygg­inga- og skipu­lags­full­trú­ana vegna máls­ins. „Það er alls ekki svo að ég standi að þessum bygg­ingum og það er allt annað mál að ég hafi verið að segja þeim til eða eitt­hvað svo­leiðis. Það er verið að vinda ofan af ald­gömlu rugli og við ákváðum sjálf að draga úr fram­kvæmd­unum á meðan verið er að kippa þessu í lið­inn. Að öðru leyti hef ég ekk­ert um það að segja,“ segir Eva.

Eva Sig­ur­björns­dóttir, odd­viti í Árnes­hrepi á Ströndum

Samtal Mannlífs við Evu þró­að­ist í þá veru að dóttir hennar, Krist­jana S. María Ásbjörns­dóttir, tók yfir sím­talið og sagði það ein­fald­lega ekki vera rétt sem haldið er fram. Hér væri aðeins það eitt á ferð­inni að óvild­ar­menn móður hennar væru að reyna blása upp ryki og koma höggi á odd­vit­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi