Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Undurfalleg frásögn Gunnars Smára: „Vildi geta tekið mömmu upp og leyft henni að gráta við öxlina“

Undurfalleg frásögn Gunnars Smára: „Vildi geta tekið mömmu upp og leyft henni að gráta við öxlina“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Gunnar Smári Egilsson, for­sprakki Sós­í­alista­flokks­ins, vildi óska þess að hann gæti tekið móður sína upp á öxl sér og leyft henni að gráta yfir hvað lífið er oft erfit og ósann­gjarnt. Sjálfur átti hann aldrei að fæð­ast og telur hann sig hafa launað for­eldrum sínum með fjög­urra ára erf­iðri fram­leng­ingu á hjóna­bandi þeirra.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í und­ur­fal­legri upp­rifjun Gunnars í færslu á Facebook. Hann rifjar upp æsk­una í til­efni þess að for­eldrar hans giftu sig á þrett­ánd­anum fyrir sjötiiu árum síðan. „Pabbi var nýorð­inn 21 árs og mamma nýorðin 19 ára. Haf­steinn, fyrsta barnið þeirra, var þá mán­að­ar­gam­all upp á dag. Lífið byrj­aði snemma í gamla daga. Þau skruppu heim til prests­ins sem gifti þau. Svo var kaffi og með því heima hjá ömmu. Lífið var að flýta sér í gamla daga,“ segir Gunnar.

„En brúð­kaups­dagur for­eldra minna fyllir mig sorg, af því ég man bara verri end­ann af þess­ari sögu.“

Sós­í­alista­for­ing­inn segir að þótt pabbi hans og mamma hafi verið góðar mann­eskjur hafi hjóna­bandið þeirra ekki verið gott þegar á leið. Hann veltir því fyrir sér hversu mikil áhrif barn­eign­irnar geti haft á líf for­eldr­anna. „Pabbi var sjúkur alkó­hólisti og mamma gat lítið stólað á hann í baslinu, ung hjón með þrjá syni og svo þann fjórða þegar ég fædd­ist og öll plön farin í vaskinn. Ég átti ekki að fæð­ast, frekar en svo margt ágætt fólk, mamma sagði mér þegar ég var kom­inn á legg að ég hefði verið hettu­barn, að ég hefði frestað skiln­aði for­eldra minna um nokkur ár. Mamma er fyrsta kyn­slóð kvenna sem skilur við ómögu­lega eig­in­menn, þá þótti óhugs­andi að skilja með hvít­voð­ung upp á arm­inn eða smá­barn hang­andi í pils­fald­inum,“ segir Gunnar Smári og heldur áfram:

„Ég þekki mann sem seg­ist hafa gengið með þá hug­mynd fram eftir ævinni að for­eldrar hans hefðu ekki verið honum nógu góðir, ekki stutt hann eða veitt honum það sem hann þarfn­að­ist. Þar til hann hitti annan mann sem full­yrti að for­eldr­arnir hefðu ekki gert honum neitt í lík­ingu við það sem hann hefði gert for­eldrum sínum. Og það má til sanns vegar færa. Þótt við bræð­urnir höfum að sumu leyti komið illa nestaðir út úr æsk­unni þá gáfu pabbi og mamma okkur allt sem þau gátu, mamma allan sinn tíma, orku og athygli.“

Hér eru þeir bræður saman á góðri stundu. Frá vinstri: Sigurjón, Gunnar Smári, Haf­steinn og Egill.

Nú þegar Gunnar Smári hugsar til brúð­kaups­dags for­eldra sinna áttar hann sig á því að þeir bræð­urnir fjórir hafi í raun launað for­eldr­unum með því að taka frá þeim æsk­una og frelsið. „Og ást­ina að lokum. Lífið varð of erfitt fyrir svo­leiðis munað. Og svo borg­aði ég prí­vat með fjórum verstu árunum í hjóna­band­inu, þau síð­ustu áður en það raknar upp í fátækt, basli og von­brigðum,“ segir Gunnar og bætir því við að hann sé þrátt fyrir það ekki sak­bit­inn yfir hlut­skipti for­eldra sinna:

Ég er of gam­all til þess að afsaka getnað minn og ég bar svo sem ekki mikla ábyrgð á ákvörð­unum ann­ars fólks fyrstu árin mín. Og varla enn. En brúð­kaups­dagur for­eldra minna fyllir mig sorg, af því ég man bara verri end­ann af þess­ari sögu. En ég efast um þótt ég kynni leið til að hvísla því að þeim að fram undan væru miklir erf­ið­leikar að þau hefðu hætt við. Ég sá aldrei neina ást á millum þeirra, en samt þyk­ist ég vita að þau hafi verið heilluð hvort af öðru og reynt hvað þau gátu til að halda ást­inni á lífi, stærstu gjöf­inni sem lífið hafði gefið þeim. En kannski ímynda ég mér þetta bara vegna þess að ég veit að þau áttu bæði skilið að vera elskuð og fá að elska á móti.“

Egill Hansen heit­inn og Guðrún Guð­munds­dóttir, for­eldrar Gunnars, á góðri stundu.

Gunnar segir að líf for­eldra hans hafi batnað eftir skiln­að­inn. „Ég hugsa að þau hafi bæði verið glað­ari og sátt­ari eftir fimm­tugt en þau höfðu verið frá því þau voru ung. Meðan þau voru gift upp­lifðu þau sterk­ari ham­ingju­stundir en þær voru eins og sól­ar­geislar í stór­hríð, góð augna­blik á vondu tíma­bili. Þegar þau voru orðin gömul voru ham­ingju­stund­irnar ekki eins sterkar en þau voru laus undan erf­ið­leik­unum, baslinu og átök­unum,“ segir Gunnar og spyr:

„Hvort er betra? Þið getið spurt ykkur sjálf. Er betra að fá fáar sterkar ham­ingju­stundir á tíma mik­illa erf­ið­leika eða sætta sig við veik­ari ham­ingju gegn því að losna við erf­ið­leik­ana? Sá sem heldur að hann viti svarið þekkir ekki lífið.“

Fyrir nokkrum árum lést Egill, faðir Gunnars, en móðir hans Guðrún er nýorðin 89 ára að aldri. Gunnar segir að Covid-far­ald­ur­inn hafi farið illa með aldr­aða móður sína. „Mamma er hætt að skilja hvers vegna hún er ekki löngu dáin. Hún er ekkja eftir seinni mann­inn sinn og þolir illa ein­ver­una sem cóvid hefur magnað upp. Líkaminn er slitin og and­inn oft veikur, eins og hún geti varla haldið sér uppi. Ég held að það sé það sem átt er við þegar sagt að tvisvar verði gam­all maður barn. Þegar kjark­ur­inn vill bresta sem við þurfum til að halda okkur uppi, að missa ekki móð­inn,“ segir Gunnar og bætir að lokum sorg­mæddur við:

„Börnin geta leyft sér að gef­ast upp, falla saman og gráta og láta mömmu svo bera sig í rúmið, hugga sig í svefn svo þau geti safnað kjarki fyrir átök næsta dags. Ég vildi ég gæti tekið mömmu upp og leyft henni að gráta við öxl­ina yfir hvað lífið er oft erfitt og ósann­gjarnt, yfir að vera föst í þessum gamla lík­ama sem getur orðið svo fátt. En það virkar bara ekki þannig, hlut­föllin eru allt önnur en þegar hún hugg­aði mig forðum. Ég get bara sagt þetta og það er ekki það sama.“

Ég átti leið inn á Íslend­inga­bók og sá þá að pabbi og mamma giftu sig á þrett­ánd­anum 1951, fyrir sjö­tíu árum upp á dag….

Posted by Gunnar Smári Egilsson on Wednesday, January 6, 2021

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina