Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Laufey Ebba samfélagsmiðlastjarna sökuð um dýraníð: „Hef fengið ógrynni af hatursskilaboðum“

Samfélags­miðla­stjarnan og áhrifavaldurinn, Laufey Ebba Eðvarðs­dóttir, fékk yfir sig hrúgu af haturs­skilaboðum og ásakanir um dýraníð eftir að hafa birt sjálf myndband á TikTok af sér og hundinum hennar.

Mynd­bandið fór á flug og rataði bæði inn í fjölmennan hóp dýra­eigenda, Hunda­samfélagið, og inn í hópinn Nafn­greinum og mynd­birtum dýra­níðinga! á Faceook. Á TikTok hins vegar, hvar Laufey Ebba er einn vinsælasti Íslend­ingurinn, fékk áhrifavaldurinn fljótlega skammir eftir að mynd­bandið birtist. „Þið eruð ógeðsleg og ég vona að hundurinn verður tekinn frá þér,“ sagði einn gagnrýn­andanna.

Mynd­bandið er í raun klippa í beinni útsendingu og á henni sést Laufey Ebba láta hundinn sinn detta í gólfið heima hjá sér. Fjölmargir hunda­eigendur risu upp á aftur­lappirnar vegna klippunnar. Hulda nokkur er ein þeirra. Dýraníð. Íslenskur „áhrifa­valdur“ hendir hundinum sínum í gólfið,“ segir Hulda.

Inni í hunda­samfélaginu kemur Laufey Ebba sjálf inn og útskýrir sína hlið. „Þetta var hvatvísi og mistök. Tveimur sekúndum seinna segir ég „Vó, þetta átti ekki að vera svona fast.“ Ég veit þetta var rosalega heimskulegt og ég skammast mín fyrir þetta. Ég er góð við hundinn minn og hún er það mikil­vægasta í mínu lífi,“ segir Laufey.

Ég vil minna á það sem ég hef oft sagt, það er allt miklu betra ef við erum bara næs.

Gréta spyr hins vegar. „Hver gerir svona við það mikil­vægasta í lífi sínu?,“ spyr Gréta. Og Jan spyr líka. „Var þetta þetta LÆKANNA virði?“ Margrét nokkur á varla til orð. „Fullorðin manneskja getur ekki stílað þetta á hvatvísi/mistök. Ömurlegt að sjá svona framkomu við dýr,“ segir Margét.

Það er líka margir sem stíga upp Laufey til varnar. Það gerir til að mynda Ásdís María. „Finnst varla hægt að kalla þetta dýraníð, hún færði sig viljandi frá hundinum svo hann datt, ómeiddur. Margir hlæja af klaufa­skap í dýrunum sínum. Þó svo mér finnist þetta persónu­lega ekki fyndið myndband ekki ekki hægt að kalla manneskjuna dýra­níðing. Alls konar alvöru dýra­níðingar úti sem reyna að meiða dýr. Laufey hefur staðið á bakvið börn sem lenda í neteinelti svo ég stórefast að hún sé að níðast á hundinum sínum,“ segir Ásdís.

Laufey steig svo sjálf fram og útskýrði klippuna í eigin færslu á TikTok. Það segist hún hafa verið kölluð öllum illum nöfnum eftir birtingu mynd­bandsins. „Mynd­bandið er klippt þannig að það lúkkar eins og mér sé alveg sama og ég hlægji bara. En hefði teipið rúllað aðeins lengur þá sést að ég segi: „Fyrir­gefðu elsku ástin mín þetta átti ekki að vera svona fast“, því þetta átti ekki að vera svona fast. Síðasta hálfa sólar­hringinn hef ég verið að fá ógrynni af haturs­skilaboðum þar sem ég er kölluð öllum illum nöfnum. Ég tek málefnalegri gagnrýni fagnandi en þetta hefur farið út fyrir öll velsæmis­mörk þar sem bæði er ráðist á mig og alla í kringum mig,“ segir Laufey og bætir við:

„Ég mun að sjálfsögðu halda áfram að deila með ykkur úr lífinu en núna þarf ég aðeins að jafna mig og stíga til baka og anda inn í þetta. Ég vil minna á það sem ég hef oft sagt, það er allt miklu betra ef við erum bara næs. Við erum öll mannleg og við gerum öll mistök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim