Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Í minningu um stríðsmann sem barðist eins og ljón, sem ég elska og dái“

„Í minningu um stríðsmann sem barðist eins og ljón, sem ég elska og dái“

„Þann 22 jan­úar, 2013 er dag­ur­inn sem breytti lífi mínu. Það er dag­ur­inn sem ég og Olga fengum að vita að hún væri með brjóstakrabba­mein. Nærri átta árum seinna les ég að brjósta­skimun eigi að hætta fyrir konur á milli fer­tugs og fimm­tugs, Olga greind­ist 37 ára og lést 44 ára,“ Gísli Álf­geirs­son, eft­ir­lif­andi eig­in­maður  Olgu Stein­unnar Weywad Stef­áns­dóttur. Hann gagn­rýnir yfir­völd harð­lega eftir að í ljós kom að boð í skimun verði breytt á þann máta að konur á milli fer­tugs og fimm­tugs verða ekki boð­aðar. Þykir þetta afar umdeilt og ekki síst, grafal­var­legt.

Von Gísla var sú að sam­fé­lagið myndi þró­ast algjör­lega í öfuga hátt, að mögu­lega yrði brjósta­skimun færð niður í 35 ára aldur. Eftir að ákvörð­unin varð ljós ákvað Gísli að grípa til sinna ráða og hefja rann­sókn­ar­vinnu til að vera nægi­lega upp­lýstur þegar stjórn­völd taka málið aftur til umfjöll­unar.

Olga greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2013. Hún barð­ist hetju­lega með Gísla sér við hlið. Hún deildi reynslu sinni í við­tali við Vikuna árið 2017 og sýndi óhrædd örið eftir brjóst­námið á for­síðu blaðs­ins. Í stað þess að fara í upp­bygg­ingu á brjóst­inu brá hún á það ráð að láta tattú­vera yfir örið.

„Ég skamm­ast mín ekk­ert fyrir þetta og þessi reynsla er orðin svo stór hluti af mér og þeirri per­sónu sem ég er í dag. Ég veit að það er mikið mál fyrir margar konur í sömu stöðu að fara í sund. Mér finnst það allt í lagi og ef ein­hver krakki stendur og horfir eða spyr hvað hafi gerst, svara ég bara:

„Brjóstið mitt var veikt og þess vegna þurfti að taka það.“

Fyrir flest börn er það nóg og þau segja:

„Já, er það. Mamma réttu mér sjampóið.““

Fyrirmynd sem heillaði alla

Olga heill­aði alla á rit­stjórn Vikunnar með hisp­urs­leysi sínu og yfir­vegun. Hún lætur eftir sig eig­in­mann, Gísla Álf­geirs­son, og þrjú börn.

Gísli rifjar upp dag­inn sem þau fengu þær slá­andi fréttir, að Olga væri með krabba­mein.

„Olga horfði út í tómið og náði engu sem lækn­ir­inn sagði. Ég man að lækn­ir­inn reyndi að útskýra allt fyrir mér en í eyr­unum var suð og ljósin urðu allt í einu ótrú­lega björt svo mér sortn­aði fyrir augum. Fram­tíðin var breytt, því næst var að fara heim og reyna að útskýra fyrir börnum okkar þá, 5, 7 og 16 ára hvernig við myndum takast á við breyttar aðstæður,“ segir Gísli og bætir við:

„Næstu ár börð­umst við og það leit út fyrir að við værum að sigra, en 2015 fengum við að vita að Olga væri komin með mein­vörp í höfuð, mjaðma­grind og hrygg.“

Þess vegna er skimun mikilvæg

Þá bendi Gísli á slá­andi stað­reyndir en í sænskri rann­sókn kemur fram að af 250 konum sem voru með ómeð­höndlað brjóstakrabba­mein, lét­ust um 90% þeirra innan 6 ára og aðeins ein lifði í 15 ár.

Krabba­mein upp­götvast oft­ast þegar sjúk­ling­ur­inn finnur fyrir ein­kennum. Þá er meinið þegar varið að hafa alvar­leg áhrif á lík­amann. Oft er staðan því miður sú að of seint er að gera nokkuð.

„Það er aðal ástæðan fyrir því af hverju skimun er svona mik­il­væg, til að geta hafið með­ferð eins fljótt og auðið er áður en meinið er orðið ill lækn­an­legt og fyrir suma því miður ólækn­an­legt. Aldur kvenna skiptir hér máli.“

Gísli bendir á að konur á milli fer­tugs og fimm­tugs geta verið ein­kenna­lausar í um 2,4 ár. Konur í hópnum 50 til 59 ára geta verið án ein­kenna í 3,7 ár og konur 60 til 69 ára í 4,2 ár.

Dauðinn andaði ofan í hálsmálið

Eftir að Olga, Gísli og börnin fengu þessi skelfi­legu tíð­indi reyndu þau af fremsta megni að njóta tím­ans.

„… en dauð­inn and­aði allan tím­ann í háls­málið á okkur. Við ferð­uð­umst og gerðum skemmti­lega hluti til að börnin gætu eign­ast góðar minn­ingar með mömmu, ekki til að getað strikað yfir ein­hver mark­mið fyrir fram­tíð­ina. Því fram­tíðin var engin, þetta var bara bið. Bið sem er mann­skemm­andi, sem á ekki að leggja á nokkra mann­eskju,“ segir Gísli og heldur áfram:

„Það að heyra þessi orð: „Þú ert með krabba­mein“

Er það erf­ið­asta sem ég hef heyrt. Þú stendur þarna sem áhorf­andi, getur ekki tekið neitt af sárs­auka þess sem fær dóm­inn, sárs­auk­inn er and­legur og lík­am­legur fyrir við­kom­andi en ekki síður þá sem standa næst.“

Strákar, koma svo – Þetta eru stelp­urnar okkar

Ásgeir komst að alvar­legri stað­reynd eftir að hafa sökkt sér ofan í tölu­legar stað­reyndir um brjósta­skimun. Konur á öllum aldri nýta sér alls ekki nægi­lega oft þessa leið, að hans mati, að skima og taka strokur. Í brjósta­skimun er 60% þátt­taka og í stroku er 67%. Þá bendir Gísli á að reglu­leg skimun hafi dregið niður dán­ar­tíðni kvenna um 20 til 25%.

„Strákar!, við eigum líka að aðstoða við að minna á þetta, því þetta eru stelp­urnar okkar,“ segir Gísli og heldur áfram:

„Flestir erum við svo heppnir að í þessum brjóstum fengum við nær­ingu fyrst um sinn. Við erum líka makar, synir, feður, bræður, frændur og vinir kvenna sem okkur þykir óend­an­lega vænt um. Við eigum að láta þetta mál okkur varða, okkar ham­ingja og raunir geta legið í þessu litla atriði að láta skima brjóst og taka strokur kvenn­anna í lífi okkar.“

Í minningu um stríðsmann

„Af hverju skrifa ég þetta? Því ég vil reyna að koma í veg fyrir að fólk upp­lifi missi, eins og ég, og í þessu mál­efni er hægt að minnka það með reglu­bundnum skimunum,“ segir Gísli sem skorar á stjórn­völd að end­ur­skoða ákvörðun sína og vill koma á fram­færi tölu­legu stað­reyndum mál­staðnum til stuðn­ings.

„Ef það á að taka svona alvar­lega ákvörðun sem á eftir að hafa áhrif á á líf margra kvenna og fjöl­skyldna þeirra á ári hverju þá verður að upp­lýsa konur í land­inu hvað býr að baki. Skimun veitir ekki 100% öruggi, það er alltaf mögu­leiki á fölskum nið­ur­stöðum. Þar af leið­andi skiptir mestu máli að fræðsla og upp­lýs­ingar séu góðar,“ segir Gísli og bætir við:

„Þetta er í minn­ingu um stríðs­mann sem barð­ist eins og ljón inn á sjö­unda ár, sem ég elska og dái. Hinar einu sönnu Olgu Stein­unnar. Ég mun alltaf berj­ast fyrir mál­staðnum fyrir hana og okkur sem eftir sitjum með minn­ingar okkar.“

Þá skorar Gísli á fólk að skrifa undir og deila. Þú getur skrifað undir með því að smella hér.

„Strákar ekki láta ykkar eftir liggja!! Deilist að vild!“

Tölulegar upplýsingar eftir Gísla Álfgeirsson:

Ég vil alltaf að allar konur eigi kost á að fara í skimun og að boðið verði áfram uppá skimun fyrir konur frá 40 ára aldri. Ég á gull­fal­lega dóttur sem er bara 23 ára og ég vil ekki að hún þurfi að bíða í 27 ár eftir skimun. Nú segja kannski sumir að auð­vitað fái hún skimun þar sem móðir hennar lést, en 90% kvenna sem fá brjóstakrabba­mein hafa enga fjöl­skyldu­sögu, sjá hér.

Að með­al­tali grein­ast 47 kon­urnar á ári og 5 konur lát­ast, það gefur okkur að 1 af hverjum 10 konum sem fá brjóstakrabba­mein muni lát­ast.

Þriðj­ungur kvenna með brjóstakrabba­mein grein­ist í skimun. Samkvæmt tölum frá Krabba­meins­fé­lag­inu þá greindust 66 konur á árunum 2015-2019, fyrir 40 ára afmæl­is­dag­inn sinn. Ef ald­ur­svið­miðið á árunum 2015-2019 hefði verið 50 ára þá hefði bæst 153 konur við, sem þýðir að ef skimunar aldur hækkar þá er 70% kvenna á milli 40-50 ára, SJÁ HÉR.

Við skorum á les­endur að kynna sér pistil Gísla í heild sinni með því að smella HÉR.

Deilist að vild
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum