Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimiliskötturinn Snúður missti skottið eftir árás manns: „Börnin á heimilinu furðu lostin“

Arnar nokkur, íbúi í Norðlinga­holti, er í rusli eftir það sem hann telur hafa verið árás á heimilis­köttinn Snúð. Hann vill vita hvað gerðist og lýsir eftir vitnum.

Inni í hverfis­hópi á Facebook lýsir Arnar vonbrigðum sínum og biður um ábendingar íbúa. Þar segir hann:

„Sjötti meðlimurinn í fjöl­skyldunni okkar, heimilis­kötturinn Snúður varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu. Líklegast hefur hann orðið fyrir árás með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti skottið á honum í skurð­aðgerð á dýra­spítala í dag. Að mati dýra­læknis hefur hann orðið fyrir árás af manna­völdum og eru börnin á heimilinu ásamt okkur foreldrum furðu lostin að nokkur geti gert saklausu dýri slíkt. Er ég því að vona að þetta eigi sér aðrar og eðlilegri skýringar,“ segir Arnar og heldur áfram:

„Snúður sást seinast að morgni föstudags og skilaði sér ekki heim fyrr en á aðfarar­nótt þriðjudags. Líklegast hefur árásin eða óhappið orðið á föstudag og hann flúið í felur.

Ef um er að ræða slys eða óhapp viljum við endilega vita af því. Fullum trúnaði er heitið.“

Guðrúnu hverfisbúa er brugðið. „Blessað dýrið mikið er þetta ōmurlegt að heyra,“ segir Guðrún.
Heiða finnur til með dýrinu. „Guð minn góður! Elsku litli Snúður. Vonandi nær hann sér og vonandi gefur sig einhver fram!,“ segir Heiða.

Sigurrós vonar að sökudólgurinn finnist. „Hræðilegt. Vona að Snúður nái sér og uppkomist um þá sem eiga þátt í þessu,“ segir Sigurrós.

Írísi líst illa á árásina og hefur áhyggjur af hverfinu. „Bataknús á hann. En er Norðlinga­holt að verða eins harlem 2 eða hvað?,“ spyr Íris.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim