Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óli Popp samdi sígilt lag á 20 mínútum: Sparkaði í rass bankastjóra

Óli Popp samdi sígilt lag á 20 mínútum: Sparkaði í rass bankastjóra

Ein af sígildum perlum íslenskrar dægu­tón­listar er Hafið og fjöllin eftir Ólaf Ragn­ars­son, Óla Popp, sem samdi lag og ljóð um Flateyri þar sem hann hefur búið öll sín full­orð­insár. Hafið og fjöllin er eitt af örfáum lögum sem Ólafur hefur samið. Frum­út­gáfan var með honum og Huldu, systur hans. Seinna tók Siggi Björns, trú­bador­inn landskunni, lagið upp og gaf út á plötu. Helgi Björns hefur einnig flutt lagið og Fjalla­bræður. Þessi þjóð­söngur Flat­eyr­inga hefur farið víða. Ólafur er ánægður með allar útsetn­ing­arnar.  Hann er spurður um til­urð lags­ins sem hann samdi fyrir rúmum 40 árum.

„Ég var að vinna í Kaup­fé­lag­inu hjá Gunn­laugi Finns­syni á Hvilft þegar lagið fædd­ist. Þetta var ann­að­hvort 1978 eða 1979. Þetta voru skrýtnir tímar þvi maður var oft fullur og man fátt nákvæm­lega. Ég bjó í Odda­hús­inu, neðst á Flateyri og samdi lagið á skammri stundu. Ég var blá­edru og lagið kom eig­in­lega strax. Svo gerði ég það sem ég hef ekki gert fyrr eða síðar. Ég samdi text­ann strax á eftir lag­inu. Það tók mig kannski 20 mín­útur að sem lag og texta. Ég var strax mjög ánægður með útkom­una,“ segir Óli.

Lagið er sann­kall­aður ást­ar­óður til Flat­eyrar og Flat­eyr­inga. Ólafur er alinn upp í Stykk­is­hólmi en kom ungur maður til Flat­eyrar og réði sig á sjó. Lengi var hann á tog­ar­anum Gylli. Hann seg­ist strax hafa fallið fyrir staðnum og fólk­inu. Hann var kom­inn heim og fann allt annað and­rúms­loft en í gamla heima­bænum.

Stykk­is­hólmur er skrýtið bæj­ar­fé­lag

„Stykk­is­hólmur er skrýtið  bæj­ar­fé­lag. Þar var upp­lifði ég stétt­ar­skipt­ingu og klofið sam­fé­lag, tvær fylk­ingar. Ég kunni aldrei mjög vel við  mig þar. Á Flateyri var allt annað uppi á ten­ingnum Hér mætti maður á ball í Sam­komu­hús­inu og spark­aði kannski í rass­gatið á banka­stjór­anum. Á mánu­deg­inum var svo farið í spari­sjóð­inn til að slá lán. Þá var allt gleymt og grafið. í Hólminum var erf­ið­ara með svona mál.“

Óli Popp  hefur alla tíð verið sann­trú­aður komm­ún­isti og barist gegn yfir­gangi auð­valds­ins. Hann trúir því að auka megi jöfnuð en veit að Jósep Stalín gerði eitt og annað slæmt en annað gott. Það rifj­ast upp að Óli hafði samið grjót­harðan söng gegn auð­vald­inu og flutti lagið í Sam­komu­hús­inu á Flateyri að við­stöddum helstu þorps­höfð­ingj­unum. Ein­hverjir töldu sig merkja frosin bros á and­litum hinna ríku. Ólafur hlær og seg­ist hafa mátt allt á þessum árum.

„Menn kunnu alveg að meta þetta. þetta var ekki aðeins ádeila,  heldur líka húmor.  Þetta skildu menn á Flateyri og kunnu að taka þessu,“ segir hann.

Ólafur hefur fengið ágæt stef­gjöld víða af heims­byggð­inni, allar götur síðan hann samdi lagið góða um hafið og fjöllin. Það dugir þó ekki til fram­færslu. Hann stundar sjó­inn að sumr­inu en lifir spart að vetr­inum. Meðal ann­ars bakar hann sitt eigið brauð. Og það er eins og með Krist forðum. Eitt brauð verður að 15 í með­höndlun Ólafs.

„Með því að kaupa hrá­efni og baka sjálfur spara ég 400 krónur á hvert brauð ef miðað er við að kaupa það úti í búð. Á Bollu­dag­inn tók ég mig til og bak­aði mínar eigin bollur í fyrsta sinn. Ég fann upp­skrift á Netinu og bak­aði vatns­deigs­bollur sem heppn­uð­ust svona hel­víti vel, sko. Ég fékk 15 bollur út úr upp­skrift­inni. Hráefnið í þetta kost­aði innan við 800 krónur. Ein bolla í Reykja­vík kostar 570 krónur. Þannig að ég fékk auka­lega 13 og hálfa bollu með því að  gera þetta sjálfur,“ segir Ólafur Ragn­ars­son, sem unir glaðir í þorp­inu sem hann syngur svo fal­lega um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina