Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skúli fann móður sína látna: „Þessi sjúkdómur tók hana alveg“

Skúli fann móður sína látna: „Þessi sjúkdómur tók hana alveg“
Skúli Isaaq Skúlason Qase. „Auðvitað elskuðum við hvort annað. En æska mín var stundum mjög erfið því mamma var alkó­hólisti.“

Skúli Isaaq Skúlason Qase er sonur Amal Rúnar Qase sem lést í jan­úar. Hann ræðir hér meðal ann­ars um móður sína bar­áttu­kon­una, van­líðan í gegnum árin vegna alkó­hól­is­mann sem hún barð­ist við, dauða hennar og sorg­ina. „Þessi sjúk­dómur tók hana alveg. Gjör­sam­lega eyði­lagði mjög sterka konu.“

+

AMAL RÚN QASE

lést laug­ar­dag­inn 23. jan­úar.

Útförin hefur farið fram í kyrr­þey

að ósk hinnar látnu.

Hún var drottn­ing.

Skúli Isaaq Skúlason Qase

Amal Rún látin? Svona ung?

Dán­ar­til­kynn­ingin birt­ist um miðjan febr­úar. Svart­hvít mynd af glæsi­legu sómölsku kon­unni sem flutti til eyj­ar­innar í norðri á 9. ára­tugnum. Óljósar minn­ingar um hana í fjöl­miðlum frá þeim tíma þar sem hún barð­ist gegn órétt­læti, fór í fram­boð og svo vissi maður að hún hafði eign­ast son með manni í við­skipta­líf­inu.

Dáin?

Nokkrum dögum síðar var blaða­maður beð­inn um að taka við­tal við son Amal Rúnar, Skúla.

„Ræða ras­is­mann og bar­átt­una.“

SMS. Væri hann til í við­tal um bar­áttu mömmu hans? Sam­úð­ar­kveðja.

„Uuu jaja hvenær?“

Tími ákveð­inn.

Þegar upp var staðið varð við­talið strax á fyrstu mín­útu um miklu meira en ras­is­mann og bar­áttu móður hans.

Baráttukona

Hann er glæsi­legur; líkur mömmu sinni.

Elsku­legur.

Einlægur.

Einlægur í sorg­inni.

And­látstil­kynn­ingin berst í tal. „Hún var ekki birt fyrr en það var búið að brenna mömmu. 10 dögum eftir útför­ina. Það var ekki alltaf „elsku mamma“ og valdi ég því að hafa að hún hafi verið drottn­ing; ég vildi ekki að þetta kæmi út öðru­vísi en þetta var í alvör­unni. Auðvitað elskuðum við hvort annað. En æska mín var stundum mjög erfið því mamma var alkó­hólisti. Því miður. Hún var alkó­hólisti til margra ára; alveg frá því áður en ég fædd­ist. Samband okkar mömmu varð ekki gott fyrr en fyrir nokkrum árum; kannski 10 árum. Níu árum. Það var allt mjög erfitt á heim­il­inu okkar. Hún drakk svo heift­ar­lega til síð­asta dags þannig að það var stundum mjög erfitt að tala við hana.“

Amal Qase fædd­ist í Sómalíu árið 1963.

„Allir í fjöl­skyld­unni eru með eft­ir­nafn afa míns í föð­ur­ætt en mamma ákvað að taka eft­ir­nafn mömmu sinnar sem er eft­ir­nafnið sem ég er með, Qase. Við djókuðum mikið með að við værum bara tvö eftir í ætt­inni með það nafn. Nú er ég bara einn eftir.

Ég veit mjög lítið um æsku mömmu. Ég man ekki hve mörg systk­inin voru. Ég held að þau hafi verið sjö. Átta. Ég veit að afi var dálítið strangur. Ég hef aldrei séð ömmu mína og afa. Ég hef aldrei séð neinar myndir. Ég veit ekk­ert hvernig þau litu út. Ég hef bara hitt tvo bræður mömmu. Svo veit ég að systir hennar átti 10 börn úti í Sómalíu og sam­band þeirra var mjög fjár­hags­legt; mamma sendi pen­inga til hennar og eftir að ég fædd­ist og alvar­leik­inn tók við þá gat hún kannski ekki sent jafn­mikið og áður eða neitt yfir höfuð og þá dó sam­bandið á milli þeirra. Því miður.“

„Þesar konur voru oftar en ekki með börn og hún tal­aði meðal ann­ars um rétt­indi þeirra en það er x mikið sem athvörf og stofn­anir geta gert fyrir þær af því að þær þurfa líka að taka slag­inn sjálfar.“

Hann talar svo­lítið um æskuár móður sinnar. „Hún sagði mér oft litlar sögur eins og þegar hún fann einu sinni strút og tók hann með sér heim. Þetta var ungi. Og hún fékk að eiga hann á meðan hún sá um hann. Ég vissi að þegar krakk­arnir vildu leika sér saman þá fóru þeir upp á þak og gerðu flautu með hönd­unum og flaut­uðu og þeir sem heyrðu það komu og gerðu svo það sama.

Ég vissi til dæmis að þau þurftu að pissa úti og mamma tal­aði oft um það að ef hún þurfti að pissa á næt­urna þá piss­aði hún frekar í eitt­hvert horn af því að hýenur löbbuðu í gegnum bæinn á kvöldin. Hún gat ekki treyst neinu.“

Það var erfitt að vera kona í Sómalíu. „Þetta voru ömur­legar aðstæður sem hún vildi ekki búa við og flúði eina nótt­ina þegar hún var 13 eða 14 ára til að fara til Saudí-Arabíu. Hún fór ein. Tók lest. Ég veit ekki hvort hún hafi verið á úlf­alda hluta leið­ar­innar. Þetta var svo hættu­legt fyrir hana. Ef ein­hver karl­maður hefði fundið hana hefði henni getað verið nauðgað og hún drepin og skilin ein­hvers staðar eftir og eng­inn hefði blikkað aug­unum. Það voru þannig tímar. Því miður. Það var ekki búin að vera rík­is­stjórn í Sómalíu í um 30 ár. Það var allt dálítið að fara í vaskinn. Enginn að græða almenni­legan pen­ing.

Hún bjó hjá frænda sínum og kon­unni hanas í Saudí-Arabíu sem var þá mekka eða Hollywood Mið­aust­ur­land­anna. Þar þurfti ekk­ert að hylja sig og var fólk í lit­ríkum fötum og allir hippar þannig séð. En svo ætl­uðu þau að gifta hana ein­hverjum gaur nokkrum árum síðar. Hún ákvað þess vegna að flýja aftur og fór í háskóla í London þar sem hún lærði stjórn­mála­fræði. Og vann með námi.“

Skúli heldur að móðir hans hafi búið í London í fjögur ár.

Baráttukona

Amal flutti til Íslands árið 1987.

Hvers vegna Ísland?

„Ég held hún hafi heyrt af okkur. Hún vissi að þetta væri góður staður til að lifa á. Miðað við aðstæð­urnar sem hún var í þá þurfti ekki mikið til að vera góður staður til að lifa á. Ég held hún hafi fyrst ætlað að vera hérna í smá­tíma en svo leist henni svo vel á þetta að hún ákvað að vera eins og ger­ist hjá fólki.“

Amal vann hjá Hamp­iðj­unni og síðan hjá Henson þar sem hún saum­aði galla. Og hún lagði áherslu á að læra íslensku en hún hafði gott vald á tungu­mál­inu. Hún lærði líka upp­lýs­inga­tækni.

Amal var rétt­sýn. Eldklár. Og hún barð­ist fyrir rétt­indum ann­arra. Mann­rétt­indum inn­flytj­enda og ein­stæðra mæðra. Skúli segir að hún hafi haldið fyr­ir­lestra sér­stak­lega fyrir konur af erlendum upp­runa. „Þesar konur voru oftar en ekki með börn og hún tal­aði meðal ann­ars um rétt­indi þeirra en það er x mikið sem athvörf og stofn­anir geta gert fyrir þær af því að þær þurfa líka að taka slag­inn sjálfar. Þetta gaf þeim tæki­færi og hjálp­aði þeim að aðlag­ast. Það hjálp­aði þeim að mamma var næstum því í sömu stöðu og þær. Ég var mjög glaður að heyra þetta og líka mjög stoltur að vita það að hún sá hvað þurfti að gera fyrir ein­stæðar mæður. Hún sagði mikið frá sinni sögu og styrkti fólk í gegnum það.

„Ég var það eina sem hún átti og hef alltaf verið. Hún vakti yfir mér. Mér fannst það mjög krútt­legt að hún hafi „para­nojað“; hafi ekki meikað það. Er það ekki alltaf þannig fyrstu dag­ana að fólk starir bara á barnið?“

Ég var að sjá í minn­ing­ar­grein sem ein­hver skrif­aði að hún barð­ist fyrir rétt­indum stráka sem mér finnst vera mjög fyndið – að kona í algjörum minni­hluta­hópi skuli hafa barist fyrir rétt­indum karla. Mér finnst það vera ótrú­lega kald­hæðið miðað við hvernig tím­arnir voru. Það huggar mig að hún var með full­komið sens af rétt­læti; alveg sama af hvaða kyni fólk var. Það átti ekki að mis­muna neinum. Þótt fólk til dæmis frá 3. heim­inum sé með gráðu þá gildir hún mjög lítið á Íslandi. Mamma besta vinar míns, sem er frá Namibíu, er lög­fræð­ingur. Hún fékk ekki lög­fræði­djobb á Íslandi heldur fór að skúra. Hún eyddi tím­anum sínum í eitt­hvað nám í Afríku og það gagn­að­ist henni ekk­ert á Íslandi.“

Amal fór í fram­boð fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn; reyndi að kom­ast inn í borg­ar­stjórn í kosn­ing­unum árið 1994. „Hún vildi ekki fara út í póli­tík án þess að kunna íslensku vel,“ segir Skúli enda lagði móðir hans mikla áherslu á að ná góðu valdi á tungu­mál­inu. „Hver var að fara að kjósa ein­hvern í ein­hverjum flokks­kosn­ingum eða öðru ef við­kom­andi gat ekki sagt stakt orð? Hún nýtti allan tím­ann í að læra íslensku. Og hún kunni íslensku alveg í gegn. Það voru samt litlir hlutir. Mér fannst til dæmis vera ótrú­lega fyndið að hún sagði alltaf ulpa. Ekki úlpa. Að klikka á svona litlum hlutum! Hún var basically að aðlag­ast fyrstu árin og hún vissi nátt­úr­lega hvað hún vildi gera. Hún var með þetta nám á bak­inu og fatt­aði hvað hún þurfti að gera. Hún var eitt­hvað í kringum stjórn­mál eftir kosn­ing­arnar. Hún var með putt­ana ein­hvers staðar í ein­hverri póli­tík. Svo held ég að hún hafi hætt. Ég held hún hafi fengið nóg. Svo fór hún að vinna á skrif­stofu Landa­kots­spít­ala og vann meðal ann­ars við að bóka tíma.“

Amal var bar­áttu­kona. „Hún vissi í hverju basic mann­rétt­indi fel­ast. Við eigum öll að vita hver rétt­indi okkar eru. Hún var búin að fá nóg eins og við öll við að sjá hvernig komið er fram við náung­ann. Það eru hins vegar ekki allir með hreðjarnar eða nenn­una til að standa í svona en ég held að mælir­inn hafi fyllst hjá henni og hún sagði hingað og ekki lengra.

Mamma sagði oft að ef ein­hver gerði grín að hár­inu á mér eða húð­litnum þá ætti ég aldrei að svara. Aldrei að leyfa neinum að gera grín að mér. Og þannig horfði ég á heim­inn. Ég gerði aldrei neitt. Hún var bara almenni­leg mann­eskja. Guð veit hversu mikið hún var búin að fara í gegnum út af hör­und­s­lit eða hári. Af hverju ætti ég að vera ann­ars flokks þegn? Svartar konur slétta á sér hárið til þess að kom­ast í starfsvið­tal. Stans­laust. Stans­laust er þum­all á þeim sem heldur þeim niðri. Mamma var svo sterk eftir alla þessa pressu. Því miður hefur fólk tekið sitt eigið líf fyrir tölu­vert minni hluti. Þetta var ótrú­lega mikil pressa sem hún var með á sér frá fæð­ingu.“

Amal Rún varð oft fyrir for­dómum á Íslandi. „Ég las nýlega gam­alt við­tal við hana og hætti að lesa það þegar ég las að hún hefði lent í slags­málum við karl­menn á börum niðri í bæ. Þeir voru að reyna við hana og þegar hún vildi að þeir létu sig í friði þá urðu þeir agressí­vir og gripu í hana og þá kýldi hún þá. Ég lok­aði blað­inu strax. Ég spurði mömmu hvort að karl­menn hafi verið að leggja hendur á hana. Hún sagði: „Ástin mín, ég sýndi þeim bara nákvæm­lega hvar Davíð keypti ölið.“ Ég bara „yes“! Þetta minnti mig á að reita hana aldrei aftur til reiði.“

Einstæð móðir

Amal Rún kynnt­ist föður Skúla, við­skipta­mann­inum Skúla Þor­valds­syni, og fædd­ist son­ur­inn árið 1993. Skúli yngri segir að þau hafi aldrei verið par þannig séð. „Hún ætl­aði aldrei í fóst­ur­eyð­ingu. Hún sagði við mig að hún hafi ekki viljað neinn pen­ing.

Fyrstu sjö mán­uð­ina í lífi mínu var ég ekki frá neinum stað út af því að börn sem fæð­ast á Íslandi fá þjóð­erni móður sinnar og vega­bréfið hennar mömmu var útrunnið og svo var ekk­ert sómalskt sendi­ráð hér eða sómölsk rík­is­stjórn á þessum tíma. Þannig að hún var ekki frá neinu landi. Og ég ekki heldur.“ Hann var land­laus.

Einstæð móðir í nýju landi.

Amal Rún fékk stuðn­ings­fjöl­skyldu eftir að Skúli fædd­ist til að hjálpa sér fyrstu mán­uð­ina; hann segir að sú fjöl­skylda sé fjöl­skylda sín í dag og talar um ömmu sína og afa og frænku og frænda. Hann segir að stuðn­ings­fjöl­skyldan hafi viljað vera hluti af lífi hans áfram.

„Ég sá mikið um mömmu upp úr ferm­ingu. Þetta var allt mjög erfitt. Þessi sjúk­dómur tók hana alveg. Gjör­sam­lega eyði­lagði mjög sterka konu.“

„Mamma fékk þau upp­haf­lega til að aðstoða sig af því að hún var svo hrædd eftir að ég fædd­ist. Hún fékk fyrst engan stuðn­ing og hún þorði fyrst ekki að sofa á næt­urnar eftir að ég fædd­ist. Og eftir að hún fór aftur að vinna þá vann hún frá átta til fjögur og svaf svo frá fimm til níu og sótti mig svo til stuðn­ings­fjöl­skyld­unnar. Svo vakti hún á nótt­unni af því að hún var hrædd um að hún myndi ekki vakna ef ég færi að gráta. Ég var það eina sem hún átti og hef alltaf verið. Hún vakti yfir mér. Mér fannst það mjög krútt­legt að hún hafi „para­nojað“; hafi ekki meikað það. Er það ekki alltaf þannig fyrstu dag­ana að fólk starir bara á barnið?“

Skúli seg­ist vera í sam­bandi við föður sinn sem býr erlendis. „Samband okkar er eins og það er. Það hefur verið betra síð­ustu ár. Hann hringir af og til svo sem á afmæl­is­deg­inum mínum. Þegar haldið var upp á sjö ára afmælið mitt sagði mamma að pabbi væri þarna. Ég benti á hann og spurði hvort þetta væri hann. Heim­ur­inn minn var bara mamma. Við áttum bara hvort annað. Það vorum alltaf bara við tvö. Ég á hálf­bróður sem er þremur árum yngri en mamma. Hann varð síðan mikið inn í líf­inu mínu og hann var næstum því í föð­ur­hlut­verki. Hann gerði allt sem hann gat fyrir mig og hefur alltaf verið partur af lífi mínu. Og pabbi þannig lagað séð líka. Hann gerði það sem hann gat. Pabbi hjálp­aði til dæmis mömmu að kaupa íbúð sem hún borg­aði upp. Ég veit ekki hversu djúpt ég á að fara út í þetta. Það er hel­víti mikið verk að vera for­eldri en það þarf að vera pres­ent – setja plástur á hné og koma á píanó­æf­ingar. Þetta hefur þó alltaf verið „in the distance“.“ Ég sagði aldrei fólki á ung­lings­ár­unum að ég væri Skúlason. Ég sagði alltaf Skúli Isaaq Qase. Þetta kenndi mér hvernig for­eldri ég vil vera. Ég hlakka til að verða faðir þótt ég sé ekki til­bú­inn núna – ég vil fá að gefa frá mér það sem vant­aði hjá mér. Það er samt ekki eins og hann elski mig ekki.“

„Þetta voru ömur­legar aðstæður sem hún vildi ekki búa við og flúði eina nótt­ina þegar hún var 13 eða 14 ára til að fara til Saudí-Arabíu. Hún fór ein.“

Isaaq

Hann segir að Isaaq sé ætt­bálks­nafn. „Það eru 24 fjöl­skyldur í Sómalíu með þetta nafn. Mamma sagði einu sinni þegar hryðjuerka­grúppur byrj­uðu að fara í gegnum Afríku að ég þyrfti að taka út nafnið Isaaq af því að fjöl­skyldu­með­limir með þessu nafni væru drepnir. Ég hélt að hún væri eitt­hvað að fokk­ast í mér. Eitthvað að grín­ast. Svo sagði hún fyrir þremur eða fjórum árum að ég myndi ekki þurfa að breyta nafn­inu mínu. Jesús kristur. Ég skil af hverju hún fór frá Sómalíu.“

Fyr­ir­sætan og bar­áttu­konan fræga Waris Dirie er einnig frá Sómalíu en hún er meðal ann­ars þekkt fyrir bók sína Eyði­merk­ur­blómið og var kvik­mynd um hana nýlega sýnd á RÚV. Þær Amal Rún þekkt­ust. Dirie kom hingað til lands vegna útgáfu bókar sinnar og þá hitt­ust þær.

„Amma, afi og mamma hjálp­uðu Waris þegar hún var á göt­unni í Sómalíu í gamla daga. Mér finnst það vera mjög fal­legt af þeim.“ Dirie hefur meðal ann­ars vakið athygli á umskurði stúlkna. „Ég man að Waris var með stutt hár. Ég held hún sé fyrsta mann­eskjan í minn­ing­unni sem mér fannst vera dekkri heldur en mamma mín. Ég sá svo lítið af lit­uðu fólki. Ég man að hún var að segja mér ein­hverjar sögur og ég sat í kjölt­unni á henni í Máli og menn­ingu þar sem hún var að árita bækur. Þetta er samt meira til­finn­ing heldur en minn­ing.“

Skúli er spurður hvaða áhrif það hafi á hann að vita hvernig er komið fram við konur sums staðar erlendis.

„Við vin­irnir erum allir í lista­manna­hópi; þetta byrj­aði á þeim sem eru að gera tón­list en nú eru þetta líka tattú­artistar og mynd­list­ar­menn. Við köllum okkur OTEM – orð til ein­stæðra mæðra af því að ein­stæðar mæður ólu flesta okkur upp. Tvær af þremur af þeim stelpum sem ég þekki hafa til dæmis lent í ein­hverri mis­notkun svo sem kyn­ferð­is­legu áreiti niðri í bæ á djamm­inu. Ég ber virð­ingu fyrir konum og er kurt­eis; það er ekki sjálf­sagt og það er góður eig­in­leiki að hafa. Ég vil ekki að mamma mín, systir mín, frænka, dóttir mín eða amma mín kom­ist ekki nógu langt í líf­inu bara út af kyn­inu sínu – alveg eins og mamma gerði út af kyni og lit. Konur verða fyrir constant áreiti. Að vera kona í hvaða sam­fé­lagi sem er er áreiti through og through. Þannig að ég tek bara hatt­inn minn af fyrir þér og öllum öðrum konum. Mamma var alltaf hetjan mín af því að hún var ein hérna, hún lærði tungu­málið okkar bara til þess að taka okkur síðan í gegn í póli­tík. Hún gerði allt. Hún var á undan sínum sam­tíma. Ég held að Ísland hafi ekki verið til­búið fyrir hana. Hún var uppi í rass­gat­inu á þjóð­inni að reyna að breyta hlutum og það var svo mikið mót­læti. Ég veit ekki hvernig hún fokk­ing fór að þessu. Hún var með eitt­hvað sens á rétt­læti. Það er bara alltaf hægt að gera suma hluti betur þó þeir gangi ótrú­lega vel eins og á Íslandi. Það er mikið um for­dóma á Íslandi. Ísland er þó góður staður fyrir inn­flytj­endur. Og ég trúi því og bara veit að það er fólki eins og móður minni að þakka.“

Sjálfur hefur Skúli orðið fyrir for­dómum á full­orð­ins­árum. „Algjör­lega. Nógu oft. Stundum fattar fólk það ekki sjálft. Af hverju er það að bögga fólk ef aðrir eru lit­aðir? Hvernig nennir fólk þessu?“

Alkóhólismi

Skúli er spurður um fyrstu minn­ing­una.

„Ég held að ein fyrsta minn­ingin sé að ég var á leik­skóla að borða hunda­súrur. Svo fluttum við mamma á Hring­braut­ina. Þar var hóll, sem er búið að taka, og þar sátum við oft og sól­uðum okkur.“

Hann segir að mamma hans hafi verið farin að drekka áður en hann fædd­ist. „Ég fór að taka eftir þessu þegar ég var um níu ára. Ég tók eftir því að það var ekki alltaf til matur. Kannski bara brauð. Þegar ég var 11 ára þá kunni ég að elda hafra­graut og sjóða núðlur. Og það á ekk­ert 11 ára barn að standa yfir heitri hellu. Það var mikið sem kikk­aði inn.“

„Guð veit hversu mikið hún var búin að fara í gegnum út af hör­und­s­lit eða hári. Af hverju ætti ég að vera ann­ars flokks þegn?“

Hann dreymdi um að verða fót­bolta­maður. Var í KR. Hann lærði á píanó og gítar og seg­ist síðan hafa kennt sjálfum sér á bassa.

„Mamma mætti aldrei á fót­bolta­æf­ingar. Mamma mætti aldrei á leiki hvað þá að koma með mér til Eyja eða Akur­eyrar á eitt­hvert Essó-mót.“

Hann gekk í Landa­kots­skóla. „Skóli var aldrei mitt thing. Ég vildi þó verða sagn­fræð­ingur á tíma­bili en ég hef alltaf haft áhuga á sögu. Svo vildi ég fara í tölv­un­ar­fræði en ég fatt­aði að ég myndi ekki meika það; ég er ömur­legur í stærð­fræði.“ Hann kláraði ekki mennta­skóla heldur fór ungur á vinnu­mark­að­inn og er núna ásamt vinnu sem stuðn­ings­full­trúi í Mela­skóla að fara að klára stúd­ents­próf í fjar­námi frá Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla. Svo semur hann tón­list. Hann er rapp­ari og kallar sig M.V. Elyahsyn – og er í hljóm­sveit sem spratt upp úr lista­hópnum OTEM. Og það er búið að gefa út plötu. Þríeykið Regn gaf svo út plötu í hitti­fyrra. Platan kall­ast Úrkoma og er aðgengi­leg á Spotify.

„Hún var ótrú­lega heil­steypt kona en þetta vín tók hana alveg. Þetta var orðið þannig að maður var næstum því að bíða eftir þessu – að hún dæi; ég pældi stundum í hvort skrokk­ur­inn höndl­aði þetta. Þetta var orðið of mikið. Þetta varð að falli hennar.“

„Svo varð maður tán­ingur. Og það kom að því að mamma byrj­aði að sofa mjög lítið og varð dálítið mik­ill nátt­hrafn. Hún byrj­aði að taka svefn­lyf og svona svefn­lyf eru nátt­úr­lega algjört bull, sér­stak­lega ef þetta er á svona háu stigi af því að hún var á sterkasta skammt­inum. Hún var stundum samt að vakna og þá var hún í algjöru móki. Ef hún var að drekka með þessu þá sá ég hana stundum kannski labba fram og inn í stofu og hún vissi ekk­ert hvað var í gangi í kringum sig. Hún var kannski að tala við mig og hélt hún væri að tala við ein­hvern annan. Það var mikið af átak­an­legu sjitti. Ef ég á að vera hrein­skil­inn þá var þetta ótrú­lega erfitt. Það var í margar nætur sem var öskrað í kodd­ann og hágrátið. En á sama tíma og eins mikið og ég átti það til að hata hana þá var þetta mamma mín og það mátti eng­inn vera dóna­legur við hana. Fattar þú hvað ég meina? Bara ég mátti öskra á hana. Og það var mjög átak­an­legt í mörg ár að reyna að fá hana í með­ferð. Þetta var allt mjög erfitt. Hún var ótrú­lega stygg og þrjósk. Ég fékk það frá henni. Ég skamm­að­ist mín alltaf mjög mikið. Og ég hataði hana á tíma­bili þegar ég var yngri og tán­ingur og þegar eng­inn skildi mig. Samband okkar var mjög erfitt. Mjög erfitt,“ segir Skúli með áherslu. „Ég skildi meira þegar ég varð eldri. Maður kannski fyr­ir­gefur sumt en maður er aldrei að rétt­læta neitt en maður skilur. Og í gegnum þetta allt þá gerði hún ennþá hlut­ina sem hún gerði áður en ég fædd­ist og ég gæti ekki verið stolt­ari af mann­eskj­unni sem hún var. Ég hlakka til að segja börn­unum mínum hvaða blóð rennur í þeim.“

Skúli segir að fyrir utan alkó­hól­is­mann hafi mamma sín verið mjög þung­lynd. „Hún sagði við mig að hún hefði margoft hugsað um að taka eigið líf. Hún sagði líka að hún gæti það aldrei út af mér; ég vissi alltaf að hún væri ekki í suicidal risk. Þegar haldið var upp á sjö ára afmælið mitt kom ég að henni þar sem hún var búin að brjóta ljósakrónu, taka úr henni vír og hún sat grát­andi með vír­inn utan um háls­inn á sér. Ég skildi ekk­ert hvað væri í gangi. Það var dálítið fucked up að ég þurfti að horfa upp á þetta. Ég vona að barnið mitt þurfi ekki að fara í gegnum þetta. Ég þurfti að horfa upp á margt.

Ég sá mikið um mömmu upp úr ferm­ingu. Þetta var allt mjög erfitt. Þessi sjúk­dómur tók hana alveg. Gjör­sam­lega eyði­lagði mjög sterka konu. Áfengið og þung­lyndið teng­ist því að hún var að flýja eitt­hvað shit og drakk til að reyna að gleyma því. Svo varð þetta enda­laus víta­hringur. Svo varð hún öryrki. Ég er viss um að ég drykki örugg­lega jafn­heift­ar­lega og hún ef ég hefði lent í sömu hlutum og hún. Maður skildi þetta alveg. Ég rétt­lætti aldrei hlut­ina sem hún gerði þegar hún var í glasi en ég skildi alveg af hverju hún drakk. Það var bara til að flýja suma hluti. Ég held til dæmis að hún hafi séð frænda sinn vera eitt­hvað að mis­nota yngri bróður hennar. Ég held hún hafi ekki lent í neinu en systk­inin voru rass­skellt og lamin. Þannig voru þau öguð á þessum tíma.

Hún lamdi mig aldrei. En þetta var mjög erfitt. Þetta var toxic sam­band. Þetta var and­legt ofbeldi án þess að hún fatt­aði það af því að þegar hún var edrú þá var ég heim­ur­inn hennar; ég var nátt­úr­lega heim­ur­inn hennar sem gerði þetta svo leið­in­legt og sorg­legt. Ég var mjög ungur þegar ég fatt­aði hversu mikil veiki þetta er. Ég á ekki að vera í kringum ferm­ing­ar­aldur og vita hvað alkó­hól­ismi er og hvaða áhrif hann hefur. En ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt. Þetta var tím­inn okkar og ég er mann­eskjan sem ég er í dag út af þessu öllu. Við mamma rif­umst mikið og ef það kenndi mér eitt­hvað þá er það að standa alltaf fyrir öllu því sem ég trúi á. Ég hef aldrei bakkað út úr neinu. Mamma kenndi mér líka að biðj­ast afsök­unar ef ég hef rangt fyrir mér.

Ég man að ég fór í 9. bekk að byrja að útskýra fyrir strák­unum í bekknum af hverju við hefðum ekki síð­ast­liðin fjögur ár verið að tjilla heima hjá mér. Mér fannst ekki vera erfitt að segja þeim ástæð­una. Það var bara kom­inn tími til þess.

Ég var líka svo með­virkur gagn­vart mömmu. Mamma var veik þegar hún var þunn. Ég þurfti alltaf að læð­ast á tánum í kringum hana eins og ég hefði gert henni eitt­hvað af því að hún varð ósjálfrátt pirruð. Var bara með skæt­ing við mig. Lét mér líða á certain way. Þá byrj­aði ég að ríf­ast eða öskra af því að ég what the fuck. Þetta gerð­ist meira með árunum þegar ég varð tán­ingur; ég ætl­aði ekki að þiggja þennan skít.“

„Ef ég á að vera hrein­skil­inn þá var þetta ótrú­lega erfitt. Það var í margar nætur sem var öskrað í kodd­ann og hágrátið.“

Áfengi

Skúli flutti þegar hann var í 7. bekk til frænku sinnar þar sem hann bjó í eitt og hálft ár og fór svo til ömmu sinnar og afa þar sem hann bjó um tíma. „Ég fékk nóg af að búa hjá mömmu. Ég gat ekki lengur verið í þessum aðstæðum. Við mamma elskuðum hvort annað en við gátum ekki búið saman. Við gátum ekki verið í aðstæðum þar sem við vorum að anda ofan í háls­málið á hvort öðru af því að þá byrj­uðum við að ríf­ast. Við vorum þrjósk og stygg. Hún var líka mjög oft í glasi og þá vildi hún að við töl­uðum saman og ég nennti því ekki. Ég var fyrir löngu kom­inn með PDSD, áfallastreituröskun, út af henni þegar hún var full. Ég nennti þá ekki að tala við hana yfir höfuð. Það voru samt ekk­ert alltaf leið­in­legar sam­ræður. Stundum hlógum við saman.

Þetta kenndi mér margt. Þetta kenndi mér að ég ætla ekki að láta ein­hvern valta yfir mig í rifr­ildi þótt ég viti að ég hafi rétt fyrir mér. Ég veit hvernig ég vil láta tala við mig sem mann­eskju. Og ég veit hvernig ég á ekki að tala við fólk. Þetta kenndi mér líka að vera ekki að eyða líf­inu í að vera að pirra mig yfir ein­hverju sem ég ann­að­hvort gat ekki breytt svo sem for­dóma; djöf­ull hlýtur það fólk að vera reitt allan dag­inn sem hatar litað fólk eða sam­kyn­hneigða. Alltaf. Ég myndi ekki nenna að vera ras­isti. Þetta er of mikil vinna. Það er impressive hvað þeir nenna þessu.“

Skúli fór að drekka á ung­lings­ár­unum. Hann drakk of mikið og fór í með­ferð um tví­tugt. „Ég veit hvað áfengi getur gert fólki. Mér fannst ég verða dálítið eins og mamma. Ekki leið­in­legur heldur fucked. Ég tékk­aði mig inn á Vog ef ég skyldi geta drepið þetta í fæð­ingu og það gerði ég.“

Hann hefur drukkið síðan. „Ég var edrú í fyrra í sjö mán­uði. Ef mér finnst ég vera búinn að fá mér of mikið þá tek ég pásu.“

Hann fór í Tækni­skól­ann en hætti eftir tveggja ára nám. Hann gerði ýmis­legt næstu árin. Hann vann í mötu­neyt­inu og við að selja áskrift hjá Stöð 2, hann vann á veit­inga­stöðum, börum og í herraf­ara­verslun og svo vinnur hann sem stuðn­ings­full­trúi í grunn­skóla.

„Ég ætla að leyfa henni að fara aftur í jörð­ina sem hún kom úr. Ég ætla að dreifa henni í sand­inn. Það verður eitt­hvað.“

Látin

Skúli fór að fara til sál­fræð­ings fyrir nokkrum árum til að vinna í sínum málum.

„En þetta situr í manni. Ég þurfti bara að vinna í gegnum þetta – það er of mikið sem ég er búinn að sitja á. Þetta hefur áhrif á skapið mitt og vellíðan. Bara af því að ég hef sætt mig við að þetta hafi gerst þá þýðir það ekki að ég sé hættur að vinna mig út úr þessu bara út af því að ég er hættur að gráta út af þessu. Mamma gerði margt ómeð­vitað og mundi ekki eftir sumu og hélt ég væri stundum að ljúga upp á sig. Þegar ég var barn þá fór ég stundum að efast um sjálfan mig. Var þetta draumur? Þegar ég varð eldri fatt­aði ég að þetta var ekki fokk­ing draumur; þá var þetta svo fokk­ing sjúkt þegar ég hélt að ég væri að bulla. Þetta var mikið psychological warfare.“

Skúli er spurður hvaða áhrif sál­fræð­ing­ur­inn hefur sagt að drykkja móður hans og ástandið á heim­il­inu hafi haft á hann.

„Ég er stress­aður. Allt mitt líf hef ég verið að von­ast eftir því besta en búist við því versta. Og ég er smá­þung­lyndur. Ég fer núna til sál­fræð­ings­ins á tveggja mán­aða fresti en ég fór fyrst einu sinni í mán­uði. Þetta hjálp­aði sam­bandi okkar mömmu. Það hefur ekk­ert nema gott komið út úr þessu. Ég er ennþá að díla við það sem gerð­ist í æsk­unni. Og nú þetta. Dauði mömmu. Hún var ótrú­lega heil­steypt kona en þetta vín tók hana alveg. Þetta var orðið þannig að maður var næstum því að bíða eftir þessu – að hún dæi; ég pældi stundum í hvort skrokk­ur­inn höndl­aði þetta. Þetta var orðið of mikið. Þetta varð að falli hennar.“

Amal Rún Qase lést á heim­ili sínu laug­ara­dag­inn 23. jan­úar. Skúli fann hana látna.

„Þetta, drykkjan, var klár­lega að falli hennar. Hún er á betri stað. Núna er þján­ingin hennar búin.“

Skúli seg­ist þurfa að fara út að reykja. Hann kveikir í.

„Ég hafði talað við hana kvöldið áður. Guði sé lof – það síð­asta sem ég sagði við hana var: „Góða nótt, ég elska þig.“ Við ætl­uðum að hitt­ast dag­inn eftir. Ég ætl­aði í búð sem er rétt hjá heim­ili hennar. Hverf­is­búð. Svo fann ég hana dána. Þetta er það erf­ið­asta sem ég hef upp­lifað. Sjúkra­liðar komu og svo var sagt að hún væri látin. Ég fékk kvíða­kast; and­aði eins og hef aldrei andað áður. Þetta tók allt úr mér. Ég man að það fyrsta sem ég hugs­aði var að mig lang­aði til að vera hræddur á almanna­færi, vera lít­ill, hlaupa á bak við mömmu og biðja hana um að verja mig.“

„Allt sem ég er og allt sem ég geri er henni að þakka. Og allt sem ég mun gera verður gert í nafni hennar. Ég sá síð­ustu árin að hún gerði allt sem hún gat fyrir mig. Og hún skuldar mér ekki neitt.“

Hann þagnar. Berst við grát­inn.

„Afsakið. Bíddu aðeins.“

Þögn.

„Þetta var mamma mín, sko.·

And­varpar.

„Þetta var focking leið­in­legt.“

Þögn.

„Þetta breytir manni gjör­sam­lega. Breytir öllu. Completely.“

Þögn.

„Alveg sama hversu skítt ástandið var þá vissi ég að mamma elskaði mig.

Það leið­in­leg­asta var að díla við allt þetta jarð­ar­far­ar­kjaftæði. Fjöl­skylda mín hjálp­aði mér en ég tók allar ákvarð­anir en ég vissi hvernig mamma vildi hafa þetta. Þetta var allt eftir hennar óskum. Jarð­ar­förin hefði ekki getað farið betur.

Það var eng­inn prestur. Enginn söngv­ari. Ég vildi ekki að ein­hver tal­aði sem vissi ekk­ert hver hún hafði verið og sem hefði bara fengið ein­hverjar stað­reyndir frá mér. Það var ekk­ert show. Ég setti bara á lag. Það var eng­inn að syngja. Þetta var taktur sem var í gangi á meðan fólk kom inn; ég hafði beðið fólk um að koma ekki svart­k­lætt heldur vera lit­ríkt og flott – þetta var kveðjupartí; við vorum að fara að kveðja legend. Goðsögn. Drottn­ingu. Móður mína. Fólk virti þær óskir mínar og kom í sínu fín­asta; það var mjög flott og var klassi á því. Við gerðum gott úr þessu. Svo slökkti ég á tón­list­inni og hélt ræðu. Og síðan bar ég kist­una út með öðrum. Svo var hún brennd.“

Engin erfi­drykkja. Sumir vinir Skúla fóru á veit­inga­hús að fá sér að borða. Hann fór heim ásamt vin­konu sinni. „Ég meik­aði ekki að fara út að borða með vinum mínum. Það var erfitt að vera í kringum margt fólk. Ég og besta vin­kona mín fórum heim eftir jarð­ar­för­ina en við höfðum farið í ríkið dag­inn áður og fengum okkur bjór. Það var ógeðs­lega næs. Mjög huggu­legt að geta einmitt orðið smá tipsí og aðeins cut loose. Þetta var búið að vera svo átak­an­legt.“

Þögn.

Sorgin

Sorgin. Sorgin svíður.

„Ég er búinn að fá stuð­ing frá vinum, fjöl­skyldu og vinnu­veit­endum; þetta er allt búið að vera mjög huggu­legt. Svo eru allir svo hræddir; maður má ekki vera einn. Stundum er næs að vera einn með sjálfum sér og hugsa til mömmu. Það er alveg nóg.

„Hver ein­asti dagur er ný áskorun. Ég þarf stundum að fara út úr aðstæðum; ann­ars brotna ég niður. Maður er aldrei samur eftir að maður lendir í svona.“

Að missa hana er ótrú­lega átak­an­legt. Ég gæti alltaf verið uppi í rúmi, hætt að vinna og farið í þung­lyndiskast en ég get líka gert eitt­hvað í þessu.

Fólk er búið að vera að spyrja mig hvernig ég sé og það eina sem ég get sagt er að ég er óraun­veru­legur. Stundum finn ég ekki neitt. Ég er að fá svo mikið af minnis­glöpum út af sjokk­inu. Ég er að klikka á litlum hlutum eins og að skrúfa fyrir og frá. Svo er ég að venja mig á ýmis­legt svo sem að segja „hún hét“, „hún var“ „hún sagði“ og „hún gerði“.

Besta vin­kona mín kom á vett­vang­inn þegar mamma dó en ég hringdi strax í hana. Hún var prest­ur­inn minn í gegnum þetta allt. Það hefur hjálpað mér mikið að vera með henni. Hún missti föður sinn þegar hún var ung þannig að hún þekkir þetta mjög vel. Þetta er einn dagur í einu með smá­klípu af salti. Þetta er einn dagur í einu. Og sumir dagar eru betri en aðrir. Þetta er rús­sí­bani af til­finn­ingum. Ég þori ekki að plana mig; ég veit ekk­ert hvernig ég verð á morgun.

„Svo er ég að venja mig á ýmis­legt svo sem að segja „hún hét“, „hún var“ „hún sagði“ og „hún gerði“.“

Ég hef í gegnum lífið ekki verið nógu dug­legur að vinna mig út úr eigin trauma í æsku og þess vegna hef ég alltaf verið mjög næmur; ég get tjillað með fólki en ég gæti líka brotnað niður. Ég er mjög unsta­ble emotionally og svo dó mamma og mér finnst ég vera kom­inn aftur í sama farið þótt það sé ekki alveg þannig. Núna er sorgin komin aftur. Þetta er ekki eitt­hvað sem maður mun ekki kom­ast í gegnum. Ég hef mætt í vinnu og talað við fólk og haft gaman og svo fer ég heim. Það besta sem ég geri er að gráta. Maður er búinn að vera svo dug­legur að bæla hlut­ina niður, sér­stak­lega sem tán­ingur og maður grét svo lítið þá. Ég reyni að tala um þetta eins mikið og ég get. Ég hef sál­fræð­ing­inn minn og það er bara fínt. Ég er ekki feim­inn við að tala um til­finn­ingar mínar. Ég hef vin­konu mína og fjöl­skyldu til að tala við í dag. Ég tek einn dag í einu. En stundum er þetta svo átak­an­legt. Það koma end­ur­minn­ingar í hug­ann. Flash.

Nú er allt búið að breyt­ast. Nú þarf ég að aðlag­ast þessu. Og melta. Sjá hvernig ég ætla að takast á við þetta. Hver ein­asti dagur er ný áskorun. Ég þarf stundum að fara út úr aðstæðum; ann­ars brotna ég niður. Maður er aldrei samur eftir að maður lendir í svona. Núna er bolt­inn hjá mér sjálfum. Mér er búið að líða illa nógu lengi. Þú getur ekki ímyndað þér hve oft ég var grát­andi og öskr­andi og hugs­aði hvað ég hataði mömmu og pabba. Ég nenni því ekki lengur. Ég get það ekki. En ég skil þær til­finn­ingar á þeim tíma og ég skamm­ast mér ekk­ert fyrir þær. Ég stend 100% á bak við þær. Ég get lifað líf­inu mínu þannig og verið ein­hver mann­fíla og félags­skítur rest­ina af líf­inu eða try to have a little fun. Það hljóm­aði hræði­lega ef maður væri ekki að njóta lífs­ins.“

Skúli er beð­inn um að lýsa móður sinni með nokkrum orðum burt­séð frá því sem þegar hefur komið fram. „Hún var drottn­ing. Hún er ástæðan af hverju ég er og ég gæti ekki þakkað henni nóg fyrir það. Hver ég er inni í kjarn­anum. Allt sem ég er og allt sem ég geri er henni að þakka. Og allt sem ég mun gera verður gert í nafni hennar. Ég sá síð­ustu árin að hún gerði allt sem hún gat fyrir mig. Og hún skuldar mér ekki neitt.“

Askan með Amal Rún heit­inni Qase er í duft­keri. Skúli seg­ist ætla að dreifa ösk­unni í Sómalíu. „Ég ætla að leyfa henni að fara aftur í jörð­ina sem hún kom úr. Ég ætla að dreifa henni í sand­inn. Það verður eitt­hvað.“

Amal Rún Qase var eins og eyði­merk­ur­blómið sjálft sem þráði að blómstra ann­ars staðar en þrátt fyrir næga vökvun visna sum blóm.

Blessuð sé minn­ing hennar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð