Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sycamore Tree gerir allt vitlaust á Sjálandi: „Það verður bara partý hjá okkur!“

Það verður svaka stuð á veitinga­staðnum Sjálandi eftir rúmar tvær vikur. Þá verður haldin mögnuð kvöld­stund með hljóm­sveitinni vinsælu Sycamore Tree og boðið upp á glæsi­legan þriggja rétta kvöldverð.

Miðvikudaginn 31 . mars fara herleg­heitin fram og er miðasala hafin. Lágmarks­fjöldi miða eru fjórir. Húsið opnar klukkan 18 og borðhald hefst klukku­stund síðar. Boðið verður upp á þriggja rétta kvöldverð og þá er einnig hægt að fá svokallaða vínpörun með, þá eru vín sérvalin fyrir gesti með hverjum rétti fyrir sig.

Sycamore Tree tróð upp við miklar vin­sældir á Sjálandi í fyrra.

Sycamore Tree hefur unnið sig inn í hug og hjörtu lands­manna á síðustu árum og síðasta plata dúettsins  Westerns Sessions“ kom út nú í janúar. Lögin af henni klifu toppa vinsældar­lista landsins á árinu 2020 eins og mörg af þeirra fyrri verkum gafa gert á síðustu 5 árum. Dúettinn hefur unnið sér stall sem ein besta tónleika­sveit landsins og kvöld­stund með þeim er ósvikin gæðastund.

Í samtali við Mannlíf segist hljóm­sveitin hafa verið tölu­verðum tíma á síðasta ári og það sem af er þessu í upptökur á nýju efni. Fyrsta plata sveitarinnar, „Western Sessions, kom út í janúar. „Það verður bara partý hjá okkur. Við elskum að vinna eftir “ Conceptum “ og búa til myndir, stemningu og “ senur “ með tónlistinni og í þessu verkefni þá var gaman hjá okkur að liggja yfir hljóð­heiminum og textunum. Á Sjálandi munum við spila lög af öllum þessum verkum, bæði þessum sem hafa komið út og munu koma út á árinu. Við áttum frábært kvöld á Sjálandi í fyrra sumar og okkur hlakkar mikið til að eiga flotta kvöld­stund aftur við fjörðinn,“ segir Ágústa Eva Erlends­dóttir, söngkona sveitarinnar.

Gunni og Ágústa Eva.

Það er sannarlega við hæfi að þau Ágústa Eva og Gunni Hilmarsson komi í heimsókn í Sjáland. Með þeim verður Þorleifur Gaukur Davíðsson á munnhörpu og Pedal Steel Gítar. Þau munu spila lög af fyrri verkum ásamt efni af næstu breið­skífu þeirra sem kemur út seinna á árinu.

Svona verður sérrétta­seðil Sjálands hið hugljúfa kvöld með Sycamore Tree:

RAUÐRÓFUR OG ANDALIFUR

Frönsk andalifur, rauðrófu „toffee“, reyktur Tindur og karamelíseraðar fíkjur.

NAUTA RIBEYE

Grillað nauta rib eye, bakaðir jarðskokkar, grillaður blað­laukur og nauta­gljái með reyktum beinmerg

HVÍTT SÚKKULAÐI OG DILL

Þeytt súkkulaði- og skyr mús, dill krem, dill ískrap og kristallað hvítt súkkulaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur