Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Góð þjónusta fagfólks ómetanleg

Góð þjónusta fagfólks ómetanleg
Páll og Kristinn eru eig­endur ALLT fast­eigna ehf..

„Við setjum við­skipta­vin­inn í fyrsta sæti,“ segir Kristinn Sig­ur­björns­son, lög­giltur fast­eigna­sali og annar eig­andi ALLT fast­eigna­sölu. Fast­eigna­salan var stofnuð árið 2009 og er með útibú á fjórum stöðum á Íslandi, þ.e. í Reykja­vík, Reykja­nesbæ, Vest­manna­eyjum og Grinda­vík.

Kristinn, kall­aður Kiddi, er eig­andi ALLT fast­eigna ehf. ásamt Páli Þor­björns­syni. Kiddi segir fjöl­breyttan hóp starfa hjá ALLT fast­eigna­sölu. „Við erum að jafn­aði 13 manns sem störfum hjá ALLT og svo eru þrír nemar hjá okkur að læra. Hópurinn okkar sam­anstendur af fólki á öllum aldri, sá yngsti er í kringum tví­tugt og sá elsti er kom­inn á eft­ir­launa­ald­ur­inn. Svo eru flestir búnir að læra eitt­hvað annað til við­bótar við fast­eigna­sölu, til dæmis lög­fræði, félags­fræði og við­skipta­fræði. Svo er Palli til að mynda mennt­aður fisk­eld­is­fræð­ingur og með mikla reynslu þar og í sjáv­ar­út­vegi,“ tekur Kiddi sem dæmi en sjálfur er hann mennt­aður bygg­inga­fræð­ingur og húsa­smíða­meist­ari. Hann segir þá menntun koma sér vel í starfi sínu sem fast­eigna­sali. „Þessi bak­grunnur kemur sér vel þegar þarf að ráð­leggja og aðstoða við­skipta­vini þegar verið er að kanna ástand fast­eigna, ég kem þá með fólki að skoða og gef mitt álit á eign­inni sem um ræðir. Við mælum alltaf með að selj­endur láti kanna ástand fast­eignar áður er hún er keypt svo að hægt sé að taka ákvarð­anir á réttum for­sendum.“

Hann segir þessum málum vera ábóta­vant hér á landi. „Mark­að­ur­inn er orð­inn svo­lítið harður og hraður og oft eru margir kaup­endur sem sitja um sömu eign­ina. Þá horfa kaup­endur fram hjá ástand­inu af því að þeir verða að eign­ast ein­hverja til­tekna eign. Svo kemur kannski í ljós seinna ein­hver ágalli.“

Spurður út í hvers konar eignir þau hjá ALLT selji helst segir Kiddi allan gang vera á því. „Þetta er allt frá því að vera litlar íbúðir yfir í ein­býl­is­hús, nýtt og gam­alt og eitt­hvað um atvinnu­hús­næði. Við­skipta­vin­ur­inn leitar til okkar með þá eign sem hann vill selja og við þjón­ustum hann. Að auki leitum við að réttri eign fyrir aðila hvort sem það er í atvinnu­rekstur eða til búsetu“

Innan ALLT fast­eigna­sölu eru einnig erlendar eignir í sölu­ferli sem fara í gegnum Sól­ar­eignir sem er erlendi hluti fast­eigna­söl­unnar, rek­inn á Spáni. „Þar erum við með einn starfs­mann og ef þú villt kaupa eða selja á Spáni þá erum við til taks þar. Það er alltaf eitt­hvað um að fólk sé að fjár­festa í eignum á Spáni, á Kanarí­eyjum og í Orlando.“

Laga sig að þörfum viðskiptavinarins

Kiddi segir fast­eigna­við­skipti almennt vera stóra stund í lífi fólks og að fast­eigna­salar beri mikla ábyrgð í sínu starfi. Hann segir starfs­fólk ALLT fast­eigna­sölu leggja mikla áherslu á góða og per­sónu­lega þjón­ustu. „Við setjum við­skipta­vin­inn í fyrsta sæti og erum til þjón­ustu reiðu­búin. Það getur tekið á til­finn­ing­arnar að standa í fast­eigna­við­skiptum og þá er ómet­an­legt að fá góða aðstoð fag­fólks sem er til­búið að mæta þínum þörfum. Við mælum hik­laust með að ráða sér fast­eigna­sala sem getur svarað öllum þeim spurn­ingum sem kunna að vakna í ferl­inu,“ segir Kiddi. Hann hvetur áhuga­sama til að setja sig í sam­band við ALLT. „Við leið­beinum þér og aðstoðum hvort sem það er um kaup, sölu eða áfram­hald­andi kaup að ræða, við svörum þínum spurn­ingum og leiðum þig í gegnum ferlið eftir þínum þörfum.“

„Við svörum þínum spurn­ingum og leiðum þig í gegnum ferlið eftir þínum þörfum.“

Kiddi segir starfs­fólk ALLT fast­eigna­söl­unnar hafa und­an­farið lagt áherslu á að vera nýj­unga­gjarnt og nýta sér tækn­ina til fulls í starfi sínu. Hann segir það hafa komið sér vel á tímum COVID-19. „Þá voru flestir fundir á Reykja­vík­ur­svæð­inu teknir í gegnum fund­ar­búnað á borð við Teams, en í minni bæj­ar­fé­lög­unum þar sem við rekum starfs­stöðvar er meira óskað eftir að hitta á fast­eigna­sal­ann. Núorðið er not­ast við raf­rænar und­ir­rit­anir í auknum mæli.“

Spurður út í þeirra sér­stöðu segir Kiddi: „Okkar sér­staða er meðal ann­ars sú að við höfum mikla þekk­ingu á húsum og ástands­skoðun og getum veitt okkar við­skipta­vinum góða ráð­gjöf, þá erum við með mjög jafna kynja­skipt­ingu innan fyr­ir­tæk­is­ins.”

Nánari upp­lýs­ingar um ALLT fast­eigna­sölu má finna á vefnum allt.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur