Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Séra Gunnar var sýknaður- Meint kynferðisleg áreitni sögð saklaus snertiþörf

Séra Gunnar Björnsson
Séra Gunnar Björns­son

Árið 2008 kærðu tvær ungar konur séra Gunnar Björnsson, þá sóknar­prest í Selfoss­kirkju, fyrir kynferðis­lega áreitni þegar þær voru börn.

En séra Gunnar átti sér mun lengri sögu varðandi ásakanir um kynferðis­lega áreitni því fleiri konur gáfu yfir­lýsingar um meinta áreitni hans þegar þær voru á aldrinum níu til sextán ára gamlar. Meint brot áttu sér stað á Selfossi, Ísafirði og Flateyri.

Konurnar sögðu mikla þöggun hafa ríkt í þessum litlu samfélögum þar sem presturinn var vinsæll og sífellt afsakaður með því að hafa „mikla snertiþörf“ sem þótti hreint ekki neikvætt.

Faðmlag eyddi illum straumum

Sem dæmi má nefna var séra Gunnar sakaður um að hafa strokið einni stúlkunni utanklæða, upp og niður mjóbakið, á skrif­stofu sinni, og sagt við hana að honum liði illa og ef hann faðmaði hana þá myndu illir straumar hverfa úr líkama hans. Önnur stúlka sagði hann hafa kysst hana á kinnina og reynt að kyssa hana á munninn. Einnig hafi hann sagst vera skotinn í henni og að hún væri falleg.

Snertingar við brjóst, háls, læri og rass

„Hann strauk varirnar, náði samt ekkert að kyssa mig alveg af því að ég færði mig frá, svo kyssti hann mig nokkrum sinnum á hina kinnina“ sagði ein stúlkan. Sagði hún séra Gunnar hafa sýnt henni mikla athygli, boðið henni í bíltúra, kvatt hana lengi og faðmað. Þessu hafi síðan fylgt snertingar við brjóst, háls, læri og rass.

Neitaði fyrir dómi

Bæði þessi brot voru kærð. Séra Gunnar kvaðst fyrir dómi að hafa kysst og faðmað en taldi það ekki vera kynferðislegt. Hann neitaði hins vegar að hafa sagt annarri stúlkunni að hann væri skotinn í henni

Séra Gunnar var sýknaður í þessum tilfellum jafnvel þó að dómarar teldu sannað að hann hefði strokið, kysst og faðmað telpurnar. Þetta eina skipti sem séra Gunnar þurfti að mæta fyrir dóm til að svara fyrir meintar gjörðir sínar gagnvart börnum endaði með því að hann var sýknaður í Hæstarétti árið 2009.

Allt bara misskilningur

„Mér sýnist á öllu að hér sé um misskilning að ræða“ sagði séra Gunnar við DV þann 5. maí árið 2008 þegar hann var inntur eftir svörum um mál stúlknanna gegn honum. „Það hefur lengi verið minn stíll að faðma fólk að mér og það getur meira að segja hent að ég smelli kossi á kinn“.

Séra Gunnar er menntaður tónlistar­maður og kenndi nokkrum af stúlkunum á hljóðfæri. Mikið af meintri áreitni  fór fram í tónlistar­tímum.  Þær héldu því fram að hann hefði kysst þær, snert þær á óþægilegan hátt, sagst vilja eiga þær og mættu þær búa á háaloftinu á heimili hans. Hann hafi einnig hrósað þeim fyrir einstaka tónlistar­hæfileika sem þær hafi uppgötvað seinna að hafi verið það sem á ensku er kallað „grooming“.

Þrátt fyrir þessar ásakanir hélt séra Gunnar áfram að sinna prests­störfum, jarðaði, skírði og gaf saman fólk.

Leið alveg ljómandi vel

Aðspurður hvernig honum líði með slíkar ásakanir sóknar­barna og nemenda og hvort hann þyrfti eitthvað að endur­skoða hegðun sína sagði Gunnar ekki þörf á því. „Mér líður bara alveg ljómandi vel. Mér gæti bara ekki liðið betur.“

Séra Gunnar sagði um fáránlegt mál að ræða sem enginn fótur væri fyrir enda hefði það komið fram í dómi bæði í héraðs­dómi og Hæstarétti að hann hefði ekki komið óviðurkvæmilega fram við kvenfólk.

Deilur magnast

Deilur urðu í samfélaginu um séra Gunnar þar sem hann bæði naut mikils stuðnings en einnig voru einstaklingar, jafnt innan kirkjunnar og hins almenna samfélags alfarið á móti þvi að hann héldi áfram störfum.

Gunnar náði loks samkomu­lagi við biskup um að hann mundi ekki snúa aftur til Selfoss, heldur starfa sem sérþjónustu­prestur á Biskups­stofu til 2012. Þá yrði hann verkefna­ráðinn til 70 ára aldurs árið 2014.

Alvarlegast er guðleysi þjóðarinnar

Undan­farin ár hefur lítið farið fyrir Gunnari en hann hefur meðal annars fengist við greina­skrif í Morgun­blaðið. Fyrir ekki svo löngu skrifaði hann að erfið æska einkenndi þá sem væru trúlausir og sagði alvarlegasta vanda þjóðarinnar vera guðleysi.

Hrönn Reynis­dóttir, ein af meintum fórnar­lömbum Gunnars,  opnaði á sínum tíma styrktar­síðu fyrir stúlkurnar á Netinu, en tímarnir voru aðrir. „Það var ekki allt orðið jafn tæknivætt,“ segir Hrönn. „Núna myndi maður líklega stofna Facebook-síðu. Það voru margir sem skrifuðu mér og hringdu í mig, en það vildi enginn gera neitt meira. Fyrir tíu árum voru allir hræddir við þetta. Það er ekki fyrr en síðustu árin sem þetta kom almennilega upp á yfir­borðið. Og loksins, sem betur fer“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim