Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

VAXA er leið­andi fyr­ir­tæki á sviði svo­kall­aðs lóð­rétts land­bún­aðar. Í fram­leiðsl­unni er lögð áhersla á umhverf­is­væna ræktun og brak­andi ferska og fal­lega afurð fyrir neyt­and­ann. Íris Ósk Val­þórs­dóttir, rekstr­ar­stjóri VAXA, segir græn­metið frá VAXA geta verið komið á diskinn hjá neyt­and­anum dag­inn sem það er upp­skorið. „Maturinn ger­ist ekki ferskari,“ segir hún.

Spurð út í sög­una á bak við VAXA, þetta til­tölu­lega nýja og bylt­ing­ar­kennda fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í lóð­réttum land­bún­aði þar sem mat­jurtir eru rækt­aðar á mörgum hæðum með LED-ljósi segir Íris: „Hug­myndin að VAXA kvikn­aði hjá Andra Birni Gunn­ars­syni árið 2016. Hann starf­aði þá í fjár­mála­geir­anum en fékk nóg af því umhverfi og vildi gera eitt­hvað nýtt og spenn­andi, skapa eitt­hvað sjálfur. Hann varð heill­aður af lóð­réttum land­bún­aði þegar hann heyrði um hann fyrst. Þró­un­ar­vinna stóð yfir í um tvö ár og í lok árs 2018 var rækt­unin komin í gang og fyrstu vörur komnar í versl­anir stuttu síðar. Andri trúði því alltaf að hann gæti gert eitt­hvað nýtt og geggjað og hann hefur með sinni vinnu í raun breytt mat­væla­iðn­aði á Íslandi. Í dag erum við hjá VAXA einn af þeim aðilum sem eru leið­andi á sviði lóð­rétts land­bún­aðar úti í hinum stóra heimi.“

Íris segir áhug­ann ekki leyna sér, bæði frá almenn­ingi og einnig frá fólki sem starfar innan mat­væla­iðn­að­ar­ins. „Við erum orðin eitt stærsta fyr­ir­tækið sem sér­hæfir sig í lóð­réttum land­bún­aði á heims­vísu og við finnum fyrir miklum áhuga, t.d. hjá þeim sem fram­leiða rækt­un­ar­búnað, það vilja allir taka þátt í þessu með okkur sem sjá þró­un­ina sem er að eiga sér stað.“

VAXA leggur mikla áherslu á umhverf­is­vænar lausnir í rækt­un­inni þar sem nýt­ing á landi,
orku og vatni er hámörkuð og útkoman er eins hrein og fersk afurð og völ er á. „Við brennum fyrir sjálf­bærni og hámörkun á nýt­ingu þeirra auð­linda sem við höfum aðgang að hér á Íslandi. Einnig notum við ekki varn­ar­efni sem eru skað­leg umhverf­inu, mönnum
og dýrum í okkar ræktun. Þú þarft ekki að skola græn­metið frá okkur því varan er svo hrein.“

Teymið hjá VAXA segir Íslend­inga geta orðið leið­andi á sviði lóð­rétts land­bún­aðar og að þannig sé hægt að draga til muna úr þörf­inni á óum­hverf­is­vænum inn­flutn­ingi á græn­meti til fram­búðar.

Nýtt og spennandi grænmeti sem veitir innblástur

Íris segir COVID-far­ald­ur­inn hafa sett strik í reikn­ing­inn í fyrstu. „Já, COVID hafði
áhrif á rekst­ur­inn fyrst um sinn en ástandið varð svo bara ákveðin lyfti­stöng fyrir okkur. Við sáum fljótt að neyslu­venjur fólks gjör­breytt­ust með auk­inni heima­veru og það fólust ákveðin tæki­færi í því fyrir okkur, t.d. með því að bjóða við­skipta­vinum upp á brak­andi ferskt græn­meti heim­sent.“

Mynd / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Heimsenda græn­metið, svo­kallað Farmbox, er spenn­andi nýj­ung hjá VAXA en um kassa
með blöndu af því besta og fers­kasta úr gróð­ur­hús­inu hverju sinni er að ræða. Það sem leyn­ist í box­inu er fjöl­breytt og fag­ur­grænt salat, krydd­jurtir eða baby leaf og sprettur
(microgreens). Sælkerar skrá sig í áskrift og fá Farmbox þá heim­sent ýmist einu sinni
í viku eða aðra hverja viku, eftir því hvaða áskrift­ar­leið er valin. Íris segir við­brögðin við Farmboxi hafa verið afar góð og að það sé greini­legt að þetta sé eitt­hvað sem heillar fólk. „Farmbox er í raun­inni bara blanda af því besta í hverri viku sem fólk fær keyrt upp að dyrum. Með hverju boxi færðu svo smá­vegis fræðslu um inni­haldið og upp­skriftir. Við erum mikið að vinna með sprettur en þær inni­halda allt að 40 sinnum meiri nær­inga­efni ef miðað er við full­vaxnar plöntur.“

„Farmbox ýtir svo undir að maður borði hollan mat því þú átt alltaf brak­andi ferskt græn­meti.“

Hún segir nýtt og spenn­andi græn­meti gefa við­skipta­vinum inn­blástur þegar kemur að
elda­mennsk­unni. „Já, alveg klár­lega. Sumir eru óör­uggir í fyrstu og vita ekki hvernig á að
nota t.d. sprettur en um leið og fólk prófar það og áttar sig á ávinn­ingnum þá finnst því sprett­urnar ómissandi. Farmbox ýtir svo undir að maður borði hollan mat því þú átt alltaf
brak­andi ferskt græn­meti. Við erum með frá­bæra vöru sem er ræktuð í Reykja­vík og getur verið komin á diskinn hjá þér dag­inn sem hún er upp­skorin. Maturinn ger­ist ekki ferskari,“ útskýrir Íris. Hún bætir við: „Svo er þetta bara svo bragð­gott. Þú horfir kannski á lít­inn stilk og býst ekki við miklu en um leið og þú smakkar þá færð þú algjöra bragð­sprengju.“

Græn­metið frá VAXA er notað á mörgum af bestu veit­inga­stöðum lands­ins og er fáan­legt í öllum helstu mat­vöru­búð­unum. Þess má geta að kokka­lands­liðið not­aði vörur frá VAXA þegar það vann til silf­ur­verð­launa á Ólymp­íu­leik­unum árið 2019. Sölu­að­ilar
eru Krónan, Hagkaup, Fjarð­ar­kaup, Nettó, Heimkaup, Extra og Sæl­kera­búðin.

Nánari upp­lýs­ingar um VAXA má nálg­ast á vefnum vaxa­f­arm.is en þar er
einnig hægt að skrá sig í áskrift að Farmboxi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur