Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna

Íris Jensen, eig­andi versl­un­ar­innar Inn­rétt­ingar og tæki, segir að und­an­farin ár hafi meiri lita­gleði færst yfir í bað­her­bergistísk­una. Hún segir skemmti­lega þróun eiga sér stað nú og spenn­andi að sjá hvaða stefnur og straumar eru í gangi núna. Bleikt, blátt, grænt og gult í bland við mött gyllt, svört og hvít blönd­un­ar­tæki eru dæmi um það sem er í tísku núna.  

Það var amma Írisar sem stofn­aði fyr­ir­tækið Inn­rétt­ingar og tæki árið 1945 og Íris hefur fylgst með þró­un­inni í bað­her­bergistísk­unni í gegnum tíð­ina. „Við erum fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki og við hjónin tókum við rekstr­inum árið 2014. Við erum sér­verslun og sér­hæfum okkur í öllu sem við kemur bað­her­bergjum, það er að segja í inn­rétt­ingum, blönd­un­ar­tækjum, sturtu­klefum og öllum hrein­læt­is­tækjum inn á bað­her­bergi,“ segir Íris.

Íslendingar óhræddir við litina

Mikil áhersla er lögð á að bjóða upp á vandað vöru­úr­val í versl­un­inni. „Helstu vöru­merkin okkar eru frá Spáni og Ítalíu. Við erum að vinna mikið með gam­al­grónum fyr­ir­tækjum,“ segir Íris. Hún tekur dæmi um eitt vöru­merki sem er í miklu upp­á­haldi hjá sér. „Það er ítalskt fyr­ir­tæki sem heitir FIMA Carlo Frattini og sér­hæfir sig í blönd­un­ar­tækjum. Þetta er mjög skemmti­legt fyr­ir­tæki sem vinnur með mörgum af helstu hönn­uðum Ítalíu, t.d. gerðu þau nýlega eld­húskrana í sam­starfi við hönn­un­ar­stúdíó Bertone sem gerir meðal ann­ars Lamborg­hini. Ítalir eru nátt­úr­lega bara snill­ingar í sinni hönnun og það sést vel í blönd­un­ar­tækj­unum sem við erum með. Svo er annað ítalskt fyr­ir­tæki sem við vinnum tölu­vert með og það er fyr­ir­tækið GLOBO sem gerir mjög skemmti­lega hluti, til að mynda hand­laugar og sal­erni í lit. Þetta er stíl­hrein og skemmti­leg hönnun hjá þeim og þau sanna að já, það er meira að segja hægt að búa til mjög fal­leg sal­erni,“ segir Íris og hlær.

Spurð út í tísku­strauma þessa stund­ina þegar kemur að bað­her­bergjum segir Íris fjöl­breyti­leika ein­kenna stefnur og strauma núna. Hún segir gaman að fylgj­ast með tísk­unni þró­ast. „Það eru mjög skemmti­legir hlutir í gangi núna. Tískan í kringum 2007 var t.d. rosa­lega hvít og í kringum 2013 og 2014 þá var tískan að fær­ast yfir í meira svart, svört blönd­un­ar­tæki í bland við steypta sturtu­botn­ana sem koma í 15 litum sem dæmi. Fyrir um tveimur árum fórum við svo að sjá meiri liti í hrein­læt­is­tækjum, til að mynda ljós­blátt, bleikt, grænt og gult. Þetta eru litir sem voru vin­sælir hér áður fyrr og eru að koma aftur til baka.“

„Þetta er stíl­hrein og skemmti­leg hönnun hjá þeim og þau sanna að já, það er meira að segja hægt að búa til mjög fal­leg sal­erni.“

Aðspurð hvort að Íslend­ingar séu ófeimnir við að velja liti inn á bað­her­bergið svarar Íris hik­laust já. „Algjör­lega núna já. Und­an­farin tvö ár hefur fólk keypt í lit í auknum mæli. Það er alveg ótrú­legt hvað margir karl­menn vilja fá bleik sal­erni heim til sín,“ segir Íris og skellir upp úr. Hún segir val­mögu­leik­ana á mark­að­inum núna vera afar áhuga­verða.

Hvað blönd­un­ar­tæki varðar hefur burstað gull og litir með mattri áferð verið nokkuð vin­sælt að sögn Írisar. „Matt gyllt, svart og hvítt hefur verið vin­sælt í svo­lít­inn tíma og allir lit­irnir frá GLOBO eru mattir og hluti tækj­anna frá Fimo eru það líka.“

Hún segir bæði svört og hvít blönd­un­ar­tæki með mattri áferð koma ein­stak­lega vel úr við svartar inn­rétt­ingar. „Við erum að fá mjög spenn­andi svartar bað­inn­rétt­ingar núna á næst­unni, það er ný lína frá ELITA sem ég held að muni slá í gegn.“

Mosi sem listaverk

En Inn­rétt­ingar og tæki selja ekki bara tæki inn á bað­her­bergið heldur einnig grænan mosa á vegg. „Mosa­veggirnir hafa verið vin­sælir hjá okkur und­an­farið. Þetta er mosi sem getur verið á veggjum inni í til dæmis stofu, eld­húsi og bað­her­bergi, svo lengi sem hann fær ekki vatn á sig,“ segir Íris. Hún segir þetta vera hina full­komnu gjöf. „Það er hægt að fá mosa í hvítum eða svörtum ramma og á stórum plötum sem þekja stærri vegg­fleti. Fólk getur valið allar stærðir og gerðir, það var til dæmis einn sem pant­aði 100×100 cm hringlóttan flöt með mosa um dag­inn, það var ein­stak­lega flott. Þetta er bara lista­verk, fólk er að kaupa sér mosa alveg eins og það er að kaupa sér mál­verk.“

Íris hvetur áhuga­sama um að kíkja í versl­un­ar­rýmið hjá Inn­rétt­ingum og tækjum í Ármúla 31, þar er hægt að sjá úrvalið og fá inn­blástur.

„Margir iðn­að­ar­menn, það er að segja píparar, smiðir og múr­arar, eru með nafn­spjöldin sín hérna hjá okkur þannig að við getum bent fólki á fag­menn sem geta ráð­lagt og fram­kvæmt fyrir fólk með tækj­unum okkar.“

Nánari upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið á jen­sen­bjarna­son.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur