Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hanna Björg: „Guðni segir ósatt og vissi af umræddu kynferðisofbeldi“

Hanna Björg: „Guðni segir ósatt og vissi af umræddu kynferðisofbeldi“

Fram­halds­skóla­kenn­ar­inn Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir vakti gríð­ar­lega athygli með harð­orðum pistli um meint ofbeldi íslenskra lands­liðs­manna í knatt­spyrnu.

Hanna sakar KSÍ um kven­fyr­ir­litn­ingu og heldur því fram að lands­liðs­menn í hafi gerst sekir um kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beldi, og sagði þöggun KSÍ alvar­lega.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Mannlíf hefur sent KSÍ fjölda tölvu­pósta með fyr­ir­spurnum um orðróm um ofbeld­is­hegðun íslenskra lands­liðs­manna í allt sumar, án nokk­urs árang­urs, en eftir að grein Hönnu birt­ist sá KSÍ sig loks­ins knúið til að senda frá sér yfir­lýs­ingu.

KSÍ vís­aði ásök­un­unum algjör­lega á bug og neit­uðu því alfarið að sam­bandið legði stund á það að þagga niður ofbeld­is­mál eða að það hylmi yfir með meintum ger­endum.

Hanna var síður en svo sátt við yfir­lýs­ingu KSÍ og gefur minna en ekki neitt fyrir hana:

Hefur Hanna nú svarað yfir­lýs­ingu KSÍ með lið­sinni með­lima úr hópnum „Öfgum,“ og með­limum úr hópnum „Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu.“

Þar má lesa að „KSÍ varpar frá sér allri ábyrgð. Vönduð for­ysta er auð­mjúk, hug­rökk, horf­ist í augu við eigin mis­tök, með skýra sýn á mark­mið, ábyrg, trú­verðug, traust, með gott sið­vit og til­finn­inga­greind.“

Vísað er til áður­nefndrar yfir­lýs­ingar KSÍ frá því á þriðju­dag, þar sem fram kom að KSÍ kallar mál­flutn­ing grein Hönnu ekk­ert annað en „dylgjur.“

Hanna segir:

„KSÍ varpar frá sér allri ábyrgð í yfir­lýs­ingu sinni og kallar mál­flutn­ing minn ,,dylgjur”. Þetta er áhuga­vert í ljósi þess að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis eru gjarnan sagðir með dylgjur þegar þeir stíga fram og segja frá ofbeld­inu. KSÍ hvorki svarar frétta­fólki né sýnir minnsta áhuga á að vita yfir hvað upp­lýs­ingum ég bý yfir um ofbeldi af hálfu lands­liðs­manna. Gefur þess í stað út ein­hliða yfir­lýs­ingu um að það séu dylgjur að halda því fram. Ekki snef­ill af sam­kennd eða skiln­ingi. Skeyt­ing­ar­leysið er algert. KSÍ sýnir engan vilja til að axla ábyrgð, enga auð­mýkt, sam­kennd, tengsl við raun­veru­leik­ann og sann­leik­ann. Auðvitað vissu Guðni (Bergsson, for­maður KSÍ) og for­ysta KSÍ af umræddu kyn­ferð­is­of­beldi. Það eru of mörg sem vita að Guðni segir ósatt í yfir­lýs­ing­unni til að unnt sé að halda öðru fram.

Frá því að greinin mín um KSÍ og kven­fyr­ir­litn­ingu birt­ist sl. föstu­dag hefur rignt yfir mig skila­boðum og sím­tölum. Öll á einn veg; stuðn­ingur, hvatn­ing og stað­fest­ingar um ofbeldi af því tagi sem er tíundað í grein­inni. Eina und­an­tekn­ingin var aðili sem hafði áhyggjur af því að allt lands­liðið lægi undir grun. Þar er þó hvorki við mig né þolendur að sakast heldur KSÍ sem þegir og ger­endur sem hafa fengið tæki­færi til að stíga fram og axla ábyrgð, en ekki gert. Í mínum huga eru við­brögð KSÍ sorg­leg. Börn og ung­menni eiga meira skilið en að alast upp við það gildi og menn­ingu að ofbeldi sé ekki ámæl­is­vert. Að fyr­ir­myndir þeirra og átrún­að­ar­goð séu ofbeld­is­menn og eng­inn geri neitt í því. Það er hörmu­legt og hættu­legt. Ef KSÍ ætlar að halda því fram að það sé ekki hægt, má benda á leið Borg­ar­leik­húss­ins í sam­bæri­legum aðstæðum. Þar var staðið með þolendum. Annað hvort stendur KSÍ með þolendum eða ekki. Sýnd­ar­jafn­rétti dugar ekki. Ef sam­fé­lagið lætur þessi við­brögð KSI óátalin þá er erum við ekki til­búin til að upp­ræta kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn konum og öðrum kynjum. Mis­réttið, ofbeldið og kúg­unin heldur áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð