Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Fyrsta skrefið á ferð í Vestmannaeyjum.
Fyrsta skrefið á ferð í Vest­manna­eyjum. Mynd: Reynir Traustason

Ertu með lélegt úthald og glímir jafnvel depurð? Langar þig til að passa aftur í gömlu fötin þín? Leiðist þér í líkams­ræktar­stöðvum? Þá er svarið hér að neðan.

Margir hafa komist að raun um að göngu­ferðir um fjöll og flatlendi á Íslandi eru einhver besta heilsutrækt sem kostur er á. Ferða­félag Íslands heldur úti fjölmörgum göngu­hópum af ýmusm áreynslu­stigum sem allir hafa það að markmiði að efla fólk líkamlega og andlega og auka þannig lífsgæði þess.

Fyrsta og Næsta skrefið er göngu­hópur sem starfað hefur í sjö ár. Hátt í þúsund manns hafa tekið þátt í námskeiðum hópsins frá upphafi og fjölmargir fundið gleðina í því að ganga á fjöll og finna fegurðina í hreyfingunni og fræðslunni sem fylgir göngunum. Kynningar­fundur Næsta skrefsins verður á Facebook 30. ágúst.

Lagt er upp með það í göngunum að fræða fólk og skemmta í leiðinni. Fastur liður er æfinga­kerfið Haukurinn og söngæfing. Jólalögin eru þannig æfð tímanlega fyrir aðventu­hátíðina í skóginum undir Úlfars­felli.

Næsta skrefið hefur göngu sína í september og lýkur verk­efninu í desember. Alls er boðið upp á 28 göngur um helgar og á fimmtudögum þegar gengið er á Úlfars­fell. Lagt er upp með að ganga á hraða sem hentar öllum í hópnum og byggja smám saman upp þol.

Fyrsta fjallið sem gengið verður á er Mosfell 11. september en síðan taka ævintýrin við, eitt af öðru inn í haustið. Gosstöðvarnar verða heim­sóttar sem og Hengillinn auk fjölda fjalla, öll létt og þægileg. Í desember verða svo allir sem endast út verkefnið komnir í það form sem stefnt er að.

Umsjónar­menn Næsta skrefsins eru Reynir Traustason og Guðrún Gunn­steins­dóttir.

Skráning er í fullum gangi á vef Ferða­félags Íslands. Aðeins 30 manns fá inngöngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur