Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aldís leikkona er ævintýragjarn vegankokkur: „Ég taldi mig alltaf vera hæfileikalausa“

Aldís leikkona er ævintýragjarn vegankokkur: „Ég taldi mig alltaf vera hæfileikalausa“
Ljós­mynd­ari: Guðrún Svava Krist­ins­dóttir fyrir Kötlu

Leik­konan Aldís Amah Hamilton ætlar að gleðja okkur þessa vik­una sem Mat­gæð­ingur Mannlífs með ljúf­fengum vegan rétt. Aldís seg­ist að jafn­aði ekki vera mik­ill kokkur, en hún fór nýlega að elda af ein­hverri þekk­ingu.

„Ég taldi mig alltaf vera hæfi­leika­lausa með öllu í eld­hús­inu og gerði þess vegna bara súpur (og nóg af þeim til að end­ast vik­una) í svo gott sem öll mál. Þessa dag­ana er ég mikið ævin­týra­gjarn­ari þó það komi vissu­lega lægðir hjá mér, sér­stak­lega þegar sköp­un­ar­gleðin liggur í dvala. En ein lýs­ing á mér væri alla­vega vegan­kokkur! “

Aldísi finnst flest gott.

„Ef ég væri pínd þá væru linsu­baunir ekk­ert mjög ofar­lega á lista hjá mér. En það fer samt líka eftir því hvernig þær eru mat­reiddar. Það er bara eitt­hvað við áferð­ina á þeim sem slær sjaldan í gegn hjá mér.“ Hún gerir eina kröfu og það er að það sé mikið bragð af matnum.

„Ég krydda allt meira frekar en minna, það er bara gullna reglan á mínu heimili.“

Aldís var við tökur á sjón­varps­þátt­unum Svörtu Sandar í sumar, en þar mynd­að­ist mjög góður hópur þar sem að þau voru úti á landi fyrstu sex vikur verk­efn­is­ins.

„Sum okkar fóru lítið sem ekk­ert í bæinn á frí­dögum svo það urðu stundum svona „eld­húspartý“ í litlum skála þar sem list­rænu deild­irnar voru með aðstöðu. Eitt kvöldið er mér mjög minn­is­stætt þegar einn leik­ar­inn tók sig til og eld­aði mexík­anska veislu fyrir þá sem voru á hót­el­inu. Kona hljóð­manns­ins er frá Mexíkó og hún kom með sína reynslu í mixið. Úr varð algjör­lega sturluð mat­ar­veisla sem ent­ist langt fram á nótt og klár­lega ein af upp­á­halds­minn­ing­unum mínum úr þessu verk­efni. Þó svo að ég hafi ekki gert hand­tak í eld­hús­inu þann dag­inn. Kannski einmitt þess vegna? “

Aldís segir okkur frá góðum stundum með vinum og vanda­mönnum í eld­hús­inu og að borða yfir síð­ustu hátíðir.

„Í fyrsta sinn tók ég mjög virkan þátt í elda­mennsku fjöl­skyld­unnar og ég veit að það verður héðan af normið! Svo gerði ég mitt eigið páska­egg og fékk vin­konu með mér í konfekt­gerð til að fylla það. Það var algjör­lega dásam­leg stund og mjög gef­andi.“

Aldís segir okkur að eig­in­lega allar stundir sem inni­halda elda­mennsku og þá sem hún elski séu sér­stak­lega skemmti­legar.

Einn af upp­á­halds­réttum Aldísar er svokölluð Sól­skinsósu-Tortillan sem þær mæðgur gerðu reglu­lega þegar hún var í námi.

„Ég borðaði hana grínlaust þrjú kvöld í röð í vikunni.“

Hver dagur er ein­stakur, segir Aldís, en hún er ekki í fastri vinnurútínu, svo þær „mæðgur eru dug­legar að prófa nýja hluti og á hápunkti Covid vorum við með rútínu þar sem við eld­uðum viku­lega nýjan rétt. Fun fact: eftir að ég lærði að elda hætti ég med det samme að gera súpur. Núna geri ég bara súpu ef ég er gjör­sam­lega í bull­inu. Sem er sjaldan.“

Hér má svo finna upp­skrift­ina að Tortillu með sól­k­ins­sósu fyrir 2 og segir Aldís að lokum „að þar sem ég er örugg­lega stutt frá því að borða yfir mig af þessum ein­falda rétt hlýtur eitt­hvað að vera í hann varið. Þess vegna er til­valið að deila honum, en hann er frá­bær mið-viku mál­tíð!“

Uppskrift

Tortillur með sólskinssósu fyrir 2.

Innihald:

  • Grænmeti (mest rót­ar­græn­meti)
  • Stór tortilla.
  • 1 dolla Sól­skins­sósa frá Móður Náttúru
  • Vegan feta/ostur
  • “Indversk” krydd eða þín upp­á­halds.

Aðferð:

Ofn hit­aður upp í 200C

Það græn­meti sem þú finnur í ísskápnum skorið niður. Ég elska íslenskt brokkolí, blóm­kál, tómata og gul­rætur. Líka zucchini, eggaldin, lauk, sætar kart­öflur eða hvað sem er kom­inn tími á að borða. Græn­metið steikt upp úr ólífu­ólíu á pönnu.

Sósu hellt yfir þegar það er orðið mjúkt. Ég krydda allt auka­lega og hendi þá dassi af t.d. cumin, reyktri papriku, túr­meriki, garam masala, hvít­laukskryddi, nær­ing­ar­geri… En ekk­ert af þessu er nauð­syn­legt, sósan er snilld nú þegar!

(Fyrir meiri fyll­ingu bæti ég oft við kjúklinga­baunum eða nýrna­baunum. Þá kannski hálf dós, fer eftir magni af græn­meti og smekk fólks.)

Tortilla sett í stórt eld­fast mót eða á ofn­plötu. Þegar sósan og græn­metið er orðið vel djúsí set ég vegan ost á helm­ing tortill­unnar. Raða græn­met­inu ofan á ost­inn, set svo örlítið af osti eða vegan feta osti ofan á og loka. Tortillan er þá eins og hálf­máni og fer þannig inn í ofn.

Tekur um 10-15 mín og voila. Sett á disk með guacamole, salsa, vegan sýrðum rjóma og kor­í­ander ef þú finnur ekki sápu­bragð af því (stórfurðu­legt gen í fólki).

Fár­an­lega auð­veldur réttur og hægt að gera stóra skammta af sósu og græn­meti til að geyma í ísskáp eða frysta!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ