Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þetta er (meintur)„Gerendalisti Glúms“ – Lýsir eftir mönnum sem telja sig fórnalömb femínisma

Þetta er (meintur)„Gerendalisti Glúms“ – Lýsir eftir mönnum sem telja sig fórnalömb femínisma

„Glúmur Bald­vins­son óskar sér­stak­lega eftir að fá karl­menn sem hafa verið kúg­aðir af femínistum til starfa við myndun flokks sem mun bjóða fram í borg­inni. Ég vænti þess að hann muni heita ger­enda­list­inn.“

Twitter hefur tekið við sér ef marka má þessa færslu frá Hjalta, í kjöl­far til­kynn­ingar Glúms Bald­vins­sonar um stofnun nýs flokks fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Í athuga­semd undir til­kynn­ingu sinni segir Glúmur orð­rétt:

„Ég óska sér­stak­lega eftir að fá til liðs við flokk­inn þá karl­menn sem hafa verið kúg­aðir af femín­isma.“

Það er því ekki úr vegi að velta því upp hverjir það væru sem gætu vermt sæti í nýjum flokki Glúms, út frá þess­ari skil­grein­ingu.

Jón Baldvin Hanni­bals­son

Líklegt verður að telj­ast að Jón Baldvin Hanni­bals­son, faðir Glúms, myndi eiga þar sess. Hann mun í það minnsta vera maður sem telur sig fórn­ar­lamb femín­isma, en Jón Baldvin hefur ítrekað verið ásak­aður um kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­lega áreitni gegn ótal konum. Svör Jóns Baldvins við ásök­un­unum hafa verið á þá leið að um sé að ræða lygar og árásir gegn sér.

Fleiri menn sem rennt gætu hýru auga til flokks Glúms fyrir meint fórn­ar­lömb femín­isma gætu verið:

Sölvi Tryggvason

Sölvi Tryggva­son

Í frétt Mannlífs frá 1. maí var sagt frá orðrómi um þjóð­þekktan mann sem hafði keypt sér kyn­lífs­þjón­ustu og gengið svo í skrokk á kon­unni. Fylgdi það sög­unni að maður þessi hefði áður gerst sekur um ofbeldi og óvið­eig­andi hegðun gagn­vart konum. Mannlíf hafði traustar heim­ildir fyrir rétt­mæti frá­sagn­anna. Í kjöl­farið steig fjöldi kvenna fram og nafn­greindi Sölva Tryggva­son, hinn þjóð­þekkta fjöl­miðla­mann. Í fram­hald­inu gaf Sölvi frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að um væri að ræða rætnar slúð­ur­sögur. Hann væri sak­laus – fórn­ar­lamb gróu­sagna og ómerki­legrar og óvand­aðrar fjöl­miðl­unar. Hann lét ekki staðar numið þar og tók við­tal við sjálfan sig í eigin hlað­varps­þætti, með aðstoð Sögu Ýrar Jóns­dóttur, lög­manns hans. Þar báru til­finn­ing­arnar Sölva oft ofur­liði og hann grét sárt mann­orðs­morðið sem hann sagð­ist hafa orðið fyrir. 

Fljót­lega fóru þó að ber­ast vís­bend­ingar um rétt­mæti sagn­anna. Tvær konur stigu fram og sögð­ust vera að und­ir­búa kærur gegn Sölva fyrir ofbeldi á hendur sér. Í kjöl­farið lagði Sölvi á flótta. Lögmaður hans upp­lýsti um að hafa ekið honum á geð­deild, en í sumar sást svo til Sölva á Spáni.

Ingólfur Þórarinsson

Ingólfur Þór­ar­ins­son

Ásakanir á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni um kyn­ferð­is­of­beldi hafa verið æði margar síð­ustu miss­eri. Í sumar komu fram ótal ásak­anir og sögur, bæði nafn­lausar og undir nafni, um kyn­ferð­is­brot, ofbeld­is­hegðun og kyn­ferð­is­lega áreitni Ingólfs, eða Ingó veð­urguðs eins og hann er jafnan kall­aður. Er hegðun hans sögð hafa staðið yfir árum saman. Hann er jafn­vel sak­aður um brot gegn stúlkum undir lög­aldri. Sagt var að vitað hefði verið um hegðun Ingó um langa hríð og hann meðal ann­ars verið bann­aður sem skemmti­kraftur á böllum ákveð­inna mennta­skóla. 

Í kjöl­far ásakan­anna hætti Þjóð­há­tíð­ar­nefnd við að láta Ingó sjá um brekku­söng­inn, eins og til stóð. Reyndar varð svo ekk­ert af hátíð­inni, en það má reikna með að hann hljóti ekki ráðn­ing­una þar á næst­unni.

Auðunn Lúthersson

Auðunn Lúth­ers­son

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auðunn Lúth­ers­son, sem ber lista­manns­nafnið Auður, gaf frá sér yfir­lýs­ingu í byrjun sum­ars þess efnis að hann hefði áður gerst sekur um að fara yfir mörk konu. Kvaðst Auðunn vera að leita sér hjálpar hjá fag­að­ilum. Það komu hins­vegar nokkuð fleiri sögur fram á sjón­ar­sviðið um þetta leyti sem vörð­uðu hegðun Auðuns. Sam­fé­lags­miðlar log­uðu og ótal sögur litu dags­ins ljós á Twitter. Var Auðunn sagður hafa ýmist hegðað sér með ósæmi­legum hætti eða brotið á ungum stúlkum. Sögur komu fram um kyn­ferð­is­legt sam­neyti Auðuns við ungar stúlkur sem jafn­vel voru staddar á tón­leikum hans og litu upp til hans. Hann var sagður hafa ítrekað farið yfir mörk kvenna og stúlkna.

Í kjöl­farið var málið tekið til skoð­unar hjá Þjóð­leik­hús­inu, þar sem Auðunn var við störf á þessum tíma. Hann átti að taka þátt í leik­verk­inu Rómeó og Júlíu og sjá þar um tón­list. Svo fór að Auðunn var tek­inn út úr verk­efn­inu. Upp frá því hefur Auðunn haldið sig frá sviðs­ljós­inu.

Kolbeinn Sigþórsson

Kolbeinn Sig­þórs­son

Árið 2017 sök­uðu Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir og Jóhanna Helga Jens­dóttir fót­boltalands­liðs­mann­inn Kolbein Sig­þórs­son um að hafa beitt þær lík­am­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­legri áreitni í skemmti­staðnum B5 í miðbæ Reykja­víkur. Málið var til­kynnt og kært til lög­reglu og var stjórn KSÍ upp­lýst um málið. Komið var á sátta­fundi í mál­inu á sínum tíma og Kolbeinn sam­þykkti að greiða þeim Þórhildi og Jóhönnu bætur. Nýverið komst málið þó upp þegar í ljós kom að KSÍ hafði þaggað það niður.

Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi Þór Sig­urðs­son

Lands­liðs­mað­ur­inn og Everton­leik­mað­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son var í sumar hand­tek­inn af lög­reglu í Bret­landi, fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Málið er enn til rann­sóknar hjá lög­reglu þar ytra.

Ágúst Ólafur Ágústsson

Ágúst Ólafur Ágústs­son

Ágúst Ólafur, fyrrum alþing­is­maður fyrir Sam­fylk­ing­una, fór í des­em­ber árið 2019 í tveggja mán­aða ólaunað leyfi frá þing­störfum eftir að hafa verið veitt áminn­ing af trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar. Áminn­ingin var veitt eftir að blaða­konan Bára Huld Beck upp­lýsti nefnd­ina um kyn­ferð­is­lega áreitni og nið­ur­læg­ingu sem hún varð fyrir af hendi Ágústs Ólafs. Þegar Sam­fylk­ingin stillti upp á lista fyrir alþing­is­kosn­ingar í upp­hafi þessa árs var sú ákvörðun tekin að veita Ágústi Ólafi ekki bar­áttu­sæti á lista flokks­ins, eins og hann hafði óskað eftir. Ágúst Ólafur hverfur því af þingi.

Kolbeinn Óttarsson Proppé

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé

Í maí á þessu ári til­kynnti alþing­is­mað­ur­inn Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé að hann hefði dregið fram­boð sitt fyrir Vinstri Græn í kom­andi kosn­ingum til baka. Sagði hann ákvörðun sína koma í kjöl­far nýrrar bylgju metoo, þar sem hund­ruð þolenda kyn­ferð­is­of­beldis höfðu þegar rofið þögn­ina um brotin. Kolbeinn upp­lýsti í fram­hald­inu um að hann hefði fengið veður af því að hegðun hans hefði valdið konu mik­illi van­líðan. Enn­fremur hefði verið leitað til fagráðs Vinstri Grænna með kvart­anir vegna hegð­unar Kolbeins. Hann tók það fram að hann væri að leita sér aðstoðar, en til­tók ekki hvers eðlis hegðun hans eða kvart­an­irnar á hendur honum hefðu verið.

Ljóst er að annarri metoo-bylgj­unni er hvergi nær lokið. Því gætu enn fleiri menn gengið til liðs við flokk Glúms áður en yfir lýkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ