Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigurður G. hjólar í Öfgaherinn: „Meðlimir hans stýra umræðu með ofbeldisfullum hætti“

Sigurður G. hjólar í Öfgaherinn: „Meðlimir hans stýra umræðu með ofbeldisfullum hætti“
Sigurður G. Guð­jóns­son

Lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son telur að Öfgar, femíníski bar­áttu­hóp­ur­inn, hafi á margan hátt skrum­skælt hug­takið ofbeldi og skaðað hags­muni þeirra sem í raun hafa mátt þola ofbeldi. Lög­mað­ur­inn, sem hefur ekki farið var­hluta af umræð­unni um KSÍ og íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta, stakk niður penna í morgun.

Tilefnið er frétt mbl.is um það hvernig Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands hafi þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn borist tölvu­póstur frá femíníska aðgerða­hópnum Öfgum. Tölvu­póst­ur­inn var form­lega tek­inn fyrir á stjórn­ar­fundi sam­bands­ins þann 30. sept­em­ber og flokk­aður sem trún­að­ar­mál.

Mbl.is full­yrðir að í tölvu­póst­inum hafi mátt finna nöfn sex leik­manna lands­liðs­ins, ásamt dag­setn­ingum meintra ofbeldis- og kyn­ferð­is­brota þeirra.

Sömu­leiðis hafi þjálf­ari karla­lands­liðs­ins, Arnar Þór Við­ars­son, verið gagn­rýndur harð­lega fyrir orð­ræðu sína í sam­skiptum við fjöl­miðla und­an­farið og hann sak­aður um að gera lítið úr meintum þolendum.

Tölvu­póstur þessi er sagður vera ástæða þess að Arnar Þór hafi ekki mátt velja alla þá leik­menn sem hann vildi fyrir leiki íslenska karla­lands­liðs­ins í októ­ber­mán­uði. Það vakti enda athygli að ýmsa lyk­il­menn vant­aði í liðið í leikjum Íslands gegn Armeníu og Liechtenstein.

Sigurður G. Guð­jóns­son er í færslu morg­uns­ins á Facebook-síðu sinni hvergi nærri sáttur við málið, eins og svo oft áður í þeim stormi sem KSÍ hefur gengið í gegnum að und­an­förnu.

„Rann­sókn­ar­réttur íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. Morg­un­blaðið greinir frá því á for­síðu í dag að sex lands­liðs­menn í knatt­spyrnu séu eða hafi verið sak­aðir um brot. Þess vegna má ekki velja þá í lands­liðið. Þessar ásak­anir munu koma fram í tölvu­pósti sem svo­kall­aður aðgerð­ar­hópur sendi stjórn KSÍ 27. sept­em­ber sl.,“ segir Sigurður í færsl­unni.

Hann tekur bar­áttu­hóp­inn Öfgar sér­stak­lega fyrir:

„Aðgerð­ar­hóp­ur­inn ber heitir Öfgar, sem er rétt­nefni, enda stýra með­limir hans með ofbeld­is­fullum hætti umræðu um ofbeldi. Öfga­hóp­ur­inn og ein­stakir með­limir hans hafa á margan hátt skrum­skælt hug­takið ofbeldi og skaðað hags­muni þeirra, sem í raun hafa mátt þola ofbeldi.“

Sigurður heldur áfram:

„Enginn er heldur óhultur fyrir ofbeld­is­á­sök­unum og öllu ber að trúa sem öfga­hópar þessir dreifa og þeir sem vilja njóta vin­sælda segj­ast styðja þolendur ofbeldis, þó gerðir sumra þeirra sanni hið gagn­stæða.

Enginn spyr þegar hávað­inn byrjar hver er þol­andi í hverju til­viki fyrir sig og engum sem vill vera á vin­sælda­vagn­inum dettur í hug að efast um sann­leiks­gildi allra þeirra frá­sagna um ofbeldi sem komið hefur verið á flot fyrir til­stilli Öfga, Bleika fíls­ins og ann­arra áþekkra öfga­hópa.“

Sigurður er sann­færður um að fólk þori ekki að standa upp á móti hópnum.

„Af ótta við úthrópun og aftöku í berg­máls­helli sam­fé­lags­miðla bogna menn og brotna, gef­ast upp og hætta að fara að reglum sam­fé­lags­ins eða sam­taka sem þeir stjórna.“

Sigurður talar um stefnu KSÍ í málum sem þessum og þá ákvörðun að úti­loka ákveðna leik­menn frá því að spila með lands­lið­inu. Þess ber að geta að eng­inn leik­mann­anna hefur enn verið dæmdur fyrir lög­brot, en tveir þeirra sæta rann­sókn lög­reglu.

Einnig hefur, eins og flestum er kunn­ugt, komið fram að Kolbeinn Sig­þórs­son var kærður fyrir brot gegn tveimur ungum konum árið 2017. Málið var að lokum leyst með skaða­bóta­greiðslu utan dóm­stóla.

„Íþrótta­hreyf­ingin hefur komið sér upp ein­hvers konar rann­sókn­ar­rétti í Laug­ar­dal, þar sem ekki er spurt um sekt áður en dæmt er. Stjórn KSÍ úti­lokar góða leik­menn frá því að spila með karla­lands­liði.“

Sigurður seg­ist sjálfur þekkja til þess að ungur strákur hafi verið úti­lok­aður frá æfingum með knatt­spyrnu­fé­lagi sínu vegna ásak­ana, en Sigurður telur dreng­inn vera fórn­ar­lamb í mál­inu.

„Ég þekki auk þess dæmi um að knatt­spyrnu­fé­lag hefur úti­lokað ungan dreng frá æfingum og leikjum vegna þess að hann er bor­inn sökum um ofbeld­is­brot gagn­vart stúlku á sama aldri. Engin sönnun er þó um brot hans fremur hið gagn­stæða. Enginn veltir því fyrir sér hvaða afleið­ingar þetta hefur haft á líf þessa unga drengs. Sem betur fer á hann góða að sem reyna að halda utan um hann. Það eru ekki allir svona heppnir.“

Sigurður er harður á því að Knatt­spyrnu­sam­band Íslands eigi hvergi að koma nálægt málum sem þessum. Það séu aðrir sem eigi að skoða ásak­anir um ofbeldi.

„Er ekki rétt að íþrótta­hreyf­ingin geri það sem henni ber sam­kvæmt lögum sínum og sam­þykktum og láti rétt­ar­vörslu­kerfið um rann­sóknir saka­mála hvers eðlis sem þau kunna að vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ