Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hanna Katrín Friðriksson: „Þegar ég var krakki þurftu foreldrar mínir að safna réttum á borðið“

Hanna Katrín Friðriksson: „Þegar ég var krakki þurftu foreldrar mínir að safna réttum á borðið“
Hanna Katrín Frið­riks­son mat­væla­ráð­herra

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er hin stór­snjalla Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, en hún ætlar að deila með okkur sínum mat­ar­hefðum og upp­á­halds­réttum.

„Pabbi minn var danskur og mat­ar­hefðir á æsku­heim­ili mínu í Breið­holti tóku mið af því. Ég ólst til dæmis upp við jóla­hlað­borð með fjöl­skyld­unni löngu áður en það varð alsiða í íslensku jóla­haldi. Ég held enn í þann sið að á annan í jólum er jóla­hlað­borð með fjöl­skyld­unni. Þegar ég var krakki þurftu for­eldrar mínir að safna réttum á borðið svo vikum og jafn­vel mán­uðum skipti þar sem vinir og ætt­ingjar sem áttu leið til Dan­merkur voru beðnir að kippa ein­hverju góðu með sér á jóla­hlað­borðið. Stundum lög­lega, oftar samt ekki. Svo var þetta geymt eins og gull þar til kom að jólum. Nú orðið fæst þetta meira og minna hér heima, en það er samt sitt­hvað sem ég reyni að sækja sér­stak­lega til föð­ur­lands­ins.“

Hrifnari af for­réttum
Hönnu þykir ferskur og léttur matur bestur og er til dæmis hrifn­ari af for­réttum en aðal­réttum og pantar gjarnan tvo slíka á veit­inga­stöðum. Hún seg­ist hins vegar ekki geta borðað mjúkan mat eins og til dæmis búð­inga eða grauta. „Ég ræð varla við kart­öflumús ef það eru ekki kart­öflu­bitar í henni.“

Hanna Katrín á sér marga góða rétti, en flestir eiga það sam­eig­in­legt að vera ein­hvers konar fisk­meti. Hörpu­skel á stein­selju­beði er hennar allra mesta upp­á­hald.

„Ég bragð­aði rétt­inn fyrst fyrir mörgum árum í Moggamat­ar­klúbbnum mínum, en hann skipar vina­hópur sem kynnt­ist á rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins fyrir lif­andi löngu. Einn úr klúbbnum, Stein­grímur Sig­ur­geirs­son, hafði þá fengið rétt­inn á veit­inga­staðnum Lameloise í Búrgúnd­ar­hér­aði í Frakk­landi. Upp­skrift­ina fengu þau hjón, Stein­grímur og María, svo í upp­skrifta­bók stað­ar­ins. Þau reka Vinotek.is og þaðan er upp­skriftin fengin, þó ég kunni hana reyndar utan að enda er hún mikið notuð á mínu heim­ili. Gald­ur­inn er að nota heilan hell­ing af stein­selju til að búa til maukið. Svo mælir Stein­grímur með góðu Chardonnay-víni, helst Búrg­und­ar­víni, með rétt­inum. Ég hlýði því alltaf!“

Konan mín er frá­bær kokkur
Hanna Katrín seg­ist vera ágætis kokkur þó svo að hún eldi samt eig­in­lega aldrei. Ástæðan er fyrst og fremst sú að Ragn­hildur, konan hennar, er bæði frá­bær kokkur og hefur mjög gaman af því að elda. Ragn­hildi finnst gott að slappa af við matseld­ina eftir langan og jafn­vel erf­iðan dag, en Hanna Katrín kýs frekar að fara út að hlaupa.

Þegar kemur að veisl­unum seg­ist Hanna Katrín vera: „mjög lík­leg til að leggja á borðið blini með sil­unga­hrognum, söx­uðum rauð­lauk og sýrðum rjóma. Ef ég hef tíma geri ég blini-ið sjálf, ann­ars kaupi ég það til­búið. Og svo er auð­vitað allra best að hafa gott freyði­vín eða kampa­vín með.“

Týpískur dagur í lífi Hönnu byrjar á því að hún fær sér gott og sterkt kaffi um leið og hún fer á fætur. „Hrökk­brauð með osti fylgir með ef ég hef tíma. Í hádeg­inu finnst mér best að borða eitt­hvað mjög létt og svo legg ég meira upp úr kvöld­matnum. En það er engin regla á þessu hjá mér og ég er langt frá því að vera vana­föst þegar kemur að mat.“

Hörpuskel á steinseljubeði

Upp­skrift:

  • hörpu­skel, stór og væn
  • 6 bréf af stein­selju
  • 1 dl rjómi
  • 100 g smjör
  • salt og pipar

Aðferð:

Hitið vatn í stórum potti. Bætið 1-2 teskeiðum af salti í vatnið. Þegar það bull­sýður er stein­selj­unni allri bætt út í pott­inn. Sjóðið í 4-5 mín­útur. Síið vatnið frá og skellið stein­selj­unni strax í kalt vatns­bað. Síið kalda vatnið frá og maukið stein­selj­una í mat­vinnslu­vél.

Hitið rjómann í potti. Þegar hann byrjar að sjóða er hit­inn lækk­aður og smjör­inu hrært saman við. Þegar smjörið hefur bráðnað í rjóm­anum er stein­selju­m­auk­inu hrært saman við. Bragðið til með salti og pipar.

Steikið hörpu­skel­ina í 2-3 mín­útur á hvorri hlið á pönnu. Saltið og piprið.

Setjið stein­selju­m­aukið á diska og hörpu­skel­ina ofan á. Ég set 3-4 á hvern disk, fer eftir stærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við