Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Páll kennari segir Stígamót vera fjárplógssamtök með karlhöturum

Páll kennari segir Stígamót vera fjárplógssamtök með karlhöturum

„KSÍ lætur nokkrar illa gerðar hræður út í bæ segja sér fyrir verkum. Rökin eru þau að „vernda þurfti liðið.“ Fyrir hverju? Karl­höt­urum í Stíga­mótum?“ segir meðal ann­ars í einni blogg­færslu Páls Vil­hjálms­sonar kenn­ara.
„Um 70 pró­sent háskóla­nema eru konur, form­leg völd streyma í stríðum straumi inn meyj­ar­haftið,“ skrifar hann í annarri færslu.

Mannlíf ræddi við Kristinn Þor­steins­son skóla­meist­ara Fjöl­brauta­skól­ans í Garðabæ í gær. Sagði hann að engin nið­ur­staða væri komin í mál Páls Vil­hjálms­sonar þrátt fyrir fund fyrr um dag­inn. Margir for­eldra barna við skól­ann hafa kraf­ist þess að Páll láti af störfum vegna ummæla hans í blogg­færslu.

Kristinn sagði að nem­endum og for­ráða­mönnum yrði send til­kynn­ing vegna máls­ins og var það gert í gær.
Í til­kynn­ing­unni kemur meðal ann­ars fram að Páll muni starfa áfram við Fjöl­brauta­skól­ann í Garðabæ. Kristinn segir þá að tján­ing­ar­frelsi sé mik­il­vægt án þess að þurfa að hafa áhyggjur af atvinnu sinni.

„Til að allrar sann­girni sé gætt þá hef ég fengið nokkra pósta og sím­töl þar sem áhersla er lögð á rétt Páls til að tjá sig í ræðu og riti en tals­verður meiri­hluti þeirra sem hefur haft sam­band er mjög gagn­rýn­inn á skrif Páls og í mörgum til­fellum þess kraf­ist að ég grípi til aðgerða vegna þeirra.“
Kristinn segir Pál hafa kennt við skól­ann á annan ára­tug og sinnt starfi sínu vel.
„Því er ég undr­andi og afar ósáttur við að hann sendi þeim sem glíma við geð­sjúk­dóma þessi skila­boð.“

Ekki náð­ist í Kristinn við gerð fréttar og því liggur ekki fyrir hvort fleiri en ein blogg­færsla Páls hafi verið skoðuð.

Ljóst er að margar blogg­færslur Páls eru lit­aðar af harðri gagn­rýni, meðal ann­ars stíga­móta en notar Páll orða­lag eins og stíga­mótafas­ismi og segir Stígamót fjár­plógs­sam­tök

Segir í blogg­færslu Páls þann 5.októ­ber síð­ast­lið­inn:
„KSÍ lætur nokkrar illa gerðar hræður út í bæ segja sér fyrir verkum. Rökin eru þau að „vernda þurfti liðið.“ Fyrir hverju? Karl­höt­urum í Stíga­mótum? Stelpum í leit að syk­ur­pabba?Það er óþarfi að vernda Stíga­móta­lands­liðið gegn árangri. Hann verður hvort eð er aldrei neinn’’.

Sama dag skrifar Páll aðra færslu en þar segir:

„Stíga­mótafas­ism­inn skiptir mann­fólk­inu í þolendur og ger­endur. Þolendur ákæra, sak­born­inga er að játa og taka út refs­ingu sem á þessu stigi máls­ins er útskúfun. Lesist: konur ákæra, karlar eru fyr­ir­fram sekir..
Valda­femín­isma gengur allt í hag­inn þessi miss­erin. Um 70 pró­sent háskóla­nema eru konur, form­leg völd streyma í stríðum straumi inn meyj­ar­haftið. Karlar eru óðum að verða hús­verðir í kvenna­höll. Skyldi ætla að hægja mætti á fasísku orð­ræð­unni. En þar liggur hund­ur­inn graf­inn. Mikill vill meira.
„Geð kon­unnar er yfir­borð, úfin og ólg­andi slikja á grunnu vatni,“ mælti Zaraþústra Nietzsche.
En hvað liggur í djúp­inu?“

Þann 30. Sept­em­ber skrifar Páll:
,,Stígamót eru fjár­plógs­sam­tök sem stunda skipu­lega skoð­ana­kúgun og raka til sín fé með hót­unum. Stígamót svífast ein­skins til að koma ár sinni fyrir borð.KSÍ lypp­að­ist niður og liggur enn í svað­inu eftir að hafa orðið skot­mark Stíga­móta.
Stíga­móta­lands­liðið er skammar­blettur á íþrótta­hreyf­ing­unni.’’

Lesa má blogg Páls hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ