Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll Vilhjálmsson ver skrif sín í Kvöldviðtalinu: „Ég mætti skólastjóra og aðstoðarmanni hans“

Páll Vilhjálmsson ver skrif sín í Kvöldviðtalinu: „Ég mætti skólastjóra og aðstoðarmanni hans“
Páll Vil­hjálms­son

Blogg Páls Vil­hjálms­sonar um Helga Seljan fjöl­miðla­mann hefur farið fyrir brjóstið á mörgum en Helgi tal­aði um það í við­tals­þætti Gísla Marteins Bald­urs­sonar síð­ast­liðið laug­ar­dags­kvöld að hann hefði lagst inn á geð­deild og tekur Páll það fyrir í bloggi sínu á sunnu­dag­inn og er fyr­ir­sögnin „Helgi Seljan játar sig geð­veikan“. Páll er kenn­ari við Fjöl­brauta­skól­ann í Garðabæ og hafa skóla­stjórn­endur fengið erindi inn á sitt borð vegna blogg­færslu Páls.

„Venjan er held ég að þegar koma ein­hverjar athuga­semdir um kenn­ara þá kalla skóla­stjórn­endur kenn­ara á sinn fund til að fara yfir málin,“ segir Páll við blaða­mann Mannlífs. Og það var gert hér og ég mætti skóla­stjóra og aðstoð­ar­manni hans þar sem skóla­stjóri gerði grein fyrir að það hafi komið athuga­semdir um að ég hafi farið út fyrir ein­hver mörk sem ein­hverjir úti í bæ töldu að ég ætti að vera fyrir innan. Og ég svar­aði með mínum sjón­ar­miðum. Svo er þetta vænt­an­lega í ein­hverri vinnslu. Þetta var mjög skipu­lagður og eðli­legur fundur. Skóla­stjóri sagði auð­vitað að athuga­semdir hefðu borist en hann sagð­ist líka vera fylli­lega með­vit­aður um að það væri tján­ing­ar­frelsi í land­inu en að hann hefði kallað mig á sinn fund til að kynna mér þessar athuga­semdir sem höfðu komið. Ég sagði mína hlið máls­ins og síðan ímynda ég mér að þetta fari í ein­hvers konar vinnslu.“

Páll seg­ist vera poll­ró­legur. „Ég hef nokkrum sinnum skrifað texta sem mér hefur þótt vera erf­ið­ara að standa við heldur en þennan texta. Ég get ekk­ert gert að því hvernig fólk tekur þessu. Við búum enn í frjálsu landi og fólk má bæði túlka og rang­túlka mín orð og ann­arra.“

skóla­stjóri gerði grein fyrir að það hafi komið athuga­semdir um að ég hafi farið út fyrir ein­hver mörk sem ein­hverjir úti í bæ töldu að ég ætti að vera fyrir innan.

„Helgi sýndi skýr þráhyggjueinkenni“

Í fyrstu blogg­færslu Páls um Helga, sem birt­ist síð­ast­lið­inn sunnu­dag, segir: Frétta­maður RÚV, Helgi Seljan, var í við­tali hjá öðrum RÚV-ara, Gísla Marteini, og sagði þetta sam­kvæmt frá­sögn á Eyjunni:

„Ég hef svo sem sagt frá því áður, ég er veikur fyrir. Ég hef þurft að leggj­ast inn á geð­deild,“ svar­aði Helgi.

Sá sem er geð­veikur er hvorki með sjálfan né heim­inn á hreinu. Annars væri hann ekki geð­veikur. Sá sem er læs á sjálfan sig er í standi til að taka ákvarð­anir á lífs­ins veg­ferð. Til að skilja heim­inn í kringum sig þarf maður að botna í sjálfum sér. Skil­grein­ingin á geð­veiki er að tapa áttum, ekki smá­vegis eða í skamma stund, heldur veru­lega og til lengri tíma. Sá sem leggst inn á geð­deild er kom­inn í slíkar ógöngur að aðeins duga stór­tæk inn­grip lækn­is­vís­inda til að færa geð­heils­una í samt lag. Annars eru menn heima, taka lyfin sín, stunda reglu­lega hreyf­ingu og feta sig áfram til að takast á við lífið á ný.

Sá sem er geð­veikur er hvorki með sjálfan né heim­inn á hreinu.

Helgi sýndi skýr þrá­hyggju­ein­kenni þegar hann skipu­lagði aðför að Samherja árið 2012. Hann afsak­aði „linnu­lausa bög­gið“ sitt. Böggið reynd­ist skáld­skapur sem farið var ítar­lega yfir í dóms­kerf­inu og hafnað frá a til ö. En Helgi bögg­að­ist áfram enda illa tengdur veru­leik­anum.

Siða­nefnd RÚV úrskurð­aði að Helgi hefði alvar­lega brotið siða­reglur með fram­göngu sinni í Sam­herj­a­mál­inu. Viðbrögð Helga voru í meira lagi und­ar­leg. Hann sagð­ist hafa fullt leyfi til að flétta saman fréttum og per­sónu­legu mati sínu og gild­is­dómum. Siða­reglur segja eitt en Helgi má það sem öðrum leyf­ist ekki. Stór­mennsku­brjál­æði kemur í ýmsum myndum.

Kúlt­úr­inn sem Helgi hefur tekið þátt í að móta er þannig lýst af manni sem varð fyrir barð­inu á vinnu­lagi sam­verka­manna Helga á Efsta­leiti:

„Það er mögu­legt að búið sé að skrifa hand­ritið og það er mik­il­vægt að vita hvort þú sért í „góða“ lið­inu eða „vonda“ lið­inu. Ef þú ert í „vonda“ lið­inu er senni­lega ekki þess virði að taka þátt því Kveikur mun ein­ungis birta þau brot úr við­tal­inu sem hentar þeirra mál­flutn­ingi og senni­lega fá við­mæl­endur úr „góða“ lið­inu til að „leið­rétta“ þín orð.“

Þeir sem búa að heil­brigðri dóm­greind vita að í mann­líf­inu eru hlut­irnir sjaldn­ast svartir eða hvítir. Þeir sem eru skyni skroppnir eru aftur iðu­lega sann­færðir að heim­ur­inn skipt­ist í ill­menni og góð­menni.

Helgi er núna í játn­ing­ar­ferli líkt og þeir sem eru komnir í sjálf­heldu og vilja vinna í sínum málum. Vonandi nær hann bata.

Burtséð frá bata­ferl­inu er í meira lagi und­ar­legt að geð­veikur maður fari með víð­tækt dag­skrár­vald á rík­is­reknum fjöl­miðli, RÚV. Geð­veikur Helgi skipu­leggur í ára­vís skandal hægri vinstri, skáldar ef ekki vill betur til. Sá geð­veiki fær fullt umboð yfir­stjórnar RÚV til að flytja áróður klæddan í bún­ing frétta.

RÚV fór ómjúkum höndum um borg­ar­stjóra sem var tæpur á geði og sýndi hann gúgú og gaga í skemmti­þætti á besta útsend­ing­ar­tíma. En nú er það gúgú og gaga sem stjórnar dag­skránni á Efsta­leiti.“ (https://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2270748/)

Það virtist allt nötra

„Ég horfði ekki á þátt­inn,“ segir Páll við blaða­mann Mannlífs. „Ég rak hins vegar augun í frétt um þátt­inn þar sem segir að Helgi hafi sagt í þætt­inum að hann hafi farið á geð­deild. Ég gekk úr skugga um að þetta væri rétt eftir haft og jú, jú, það var það. Menn fara ekki  á geð­deild vegna bak­verkjar eða fót­brots heldur ef menn eru haldnir rang­hug­myndum um sjálfan sig og umheim­inn. Það er skil­grein­ing á geð­veiki. Raunar er kostu­legt að fjöl­miðlar hafi ekki innt Helga eftir þessu; hvenær hann veikt­ist og hvaða áhrif veik­indin hafi haft á hans störf. Ef stjórn­mála­maður hefði átti í hlut hefði það verið gert.“

Menn fara ekki á geð­deild vegna bak­verkjar eða fót­brots heldur ef menn eru haldnir rang­hug­myndum um sjálfan sig og umheim­inn.

Páll seg­ist ekki hafa hugsað mikið um blogg­færsl­una eftir að hann birti hana á sunnu­dag­inn. „Svo síð­degis og um kvöldið byrj­uðu ein­hverjir að hnippa í mig og sögðu að þetta væri svaka­legt en ég hugs­aði ekki mikið um það. Svo fór ég í vinn­una á mánu­dag­inn og þá fór ég að fá skila­boð og hring­ingar héðan og þaðan. Þeir eru mjög örvænt­ing­ar­fullir í Efsta­leiti og vilja meina að ég hafi verið að segja eitt­hvað allt annað og níða niður skó­inn á þeim sem eru geð­veikir. Það var ekki það sem ég var að tala um; ég var bara að tala um að Helgi hafði sagst vera veikur á geði og ég setti það í sam­hengi við þá vinnu sem ég hafði áður gagn­rýnt og menn geta auð­vitað gagn­rýnt mig fyrir að setja það í sam­hengi. Á sam­fé­lags­miðlum les maður að ég skítseiði og sori og fleira í þeim dúr. En það eru engin rök sem fylgja með og útskýra hvað ég gerði annað en að setja geð­ræn veik­indi Helga í sam­hengi við dag­skrár­valdið sem hann fer með.“

Páll birti í gær­dag, mánu­dag, annað blogg með fyr­ir­sögn­inni „Gúgú og gaga ekki vott­orð frá gagn­rýni“:

„Ef stjórn­mála­maður kæmi fram opin­ber­lega og segð­ist veikur á geði og bæð­ist af þeim ástæðum undan gagn­rýni á störf sín og fram­göngu er lík­legt að honum yrði að ósk sinni?

Nei, hann yrði beð­inn að stíga til hliðar og ná bata fjarri opin­beru kast­ljósi. Þeir sem hefðu samúð með veik­ind­unum myndu óska við­kom­andi góðs bata. Aðrir myndu for­dæma og kalla það ósvífni að láta eins og opin­ber játn­ing á geð­veiki sé ígildi vott­orðs frá gagn­rýni.

Opinber per­sóna á opin­berum vett­vangi er opin­bert mál. Þetta er sjálfur kjarn­inn í lýð­ræð­is­stjórn­málum. Róm­verjar köll­uðu það res publica – það sem almenn­ingi kemur við.

Opin­berar per­sónur eru þeir sem fyr­ir­ferða­miklir eru í opin­berri umræðu, til dæmis stjórn­mála­menn og fjöl­miðla­menn.

Opin­berar per­sónur eiga rétt á sínu einka­lífi. En þegar þær stíga fram með einka­mál sín og bera þau á götur og torg – tja, þá eru einka­málin orðin opin­bert mál.

Opinber geð­veiki veitir ekki afslátt frá gagn­rýni. Ef svo væri yrði löng bið­röð á geð­deild.“ (https://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2270823/)

„Svo leið dag­ur­inn í gær, mánu­dagur,“ segir Páll við blaða­mann Mannlífs, „og um kvöldið komu færslur frá Boga og Þóru Arnórs og þá fór ég að velta fyrir mér hversu mikil örvænt­ingin er þarna í Efsta­leiti og birti blogg þar sem ég setti þetta í sam­hengi af því að það var verið að setja upp ein­hverja sýn­ingu um að Helgi væri fórn­ar­lamb og að það væri setið um æru hans og mann­orð.“

Þetta blogg Páls er með fyr­ir­sögn­inni „End­ur­reisn elti­hrellis og virkir á Efsta­leiti“:

„RÚV skipu­lagði end­ur­reisn Helga Seljan sem fór flatt á Sam­herj­a­mál­inu og var úrskurð­aður brot­legur á siða­reglum. End­ur­reisn elit­hrellis fólst í því að fá Helga kjör­inn sjón­varps­mann árs­ins og mæta í settið hjá Gísla Marteini að leika fórn­ar­lamb.

Höfundur Til­fallandi athuga­semda skrif­aði leik­dóm og sagði ósann­fær­andi að Helgi ját­aði á sig rang­hug­myndir og vist á geð­deild sam­tímis sem hann væri end­ur­reistur siða­post­uli. Þá varð fjand­inn laus. Virkir á Efsta­leiti tóku til starfa.

Andlit RÚV til ára­tuga og frétta­þula, Bogi Ágústs­son, segir til­fallandi höf­und, Pál Vil­hjálms­son, vera „leigupenna Samherja.“

Vandast nú málið. Þegar RÚV ber fram ásökun er vinnu­reglan á Efsta­leiti að sá ásak­aði skuli sanna sak­leysi sitt. Annars telst hann sekur. Elti­hrellir­inn not­aði aðferð­ina á Samherja og nú skal henni beitt á Pál.

Páll Vil­hjálms­son hefur aldrei fengið krónu frá Samherja eða nokkra aðra umbun. Núll, ekk­ert.

En Páll Vil­hjálms­son getur ekki, frekar en aðrir dauð­legir menn, sannað að hafa ekki fengið fé frá Samherja. Ekki heldur getur hann sannað að hafa ekki þegið fé frá Donald Trump og Vladimír Pútín eða ekki fengið lof­orð frá Lykla-Pétri um vist í himna­ríki. Ekkert af þessu er hægt að sanna.

Öfug sönn­un­ar­byrði, að sá ásak­aði sanni sak­leysi sitt, er sér­grein snill­ing­ana á RÚV. Bogi segir að þetta sýni að „á RÚV eru heið­ar­leiki, sann­girni og hlut­lægni höfð í önd­vegi“.

RÚV býr yfir fjöl­miðla­valdi sem krefur mann og annan um að þeir sanni sak­leysi sitt, ellegar séu þeir óalandi og óferj­andi. Virkir á Efsta­leiti hnippa í góða fólkið sem fær sér popp og kók og æpir með á sam­fé­lags­miðlum. Í aðra rönd­ina dálítið fyndið en mest mis­heppnað leik­hús. Eins og upp­setn­ingin á leik­rit­inu End­ur­reisn elti­hrellis með Helga siða­post­ula í aðal­hlut­verki. En Boga og félögum er slétt sama. Þjóðin er rukkuð þótt RÚV-sýn­ingar falli í hrönnum. (https://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2270852/)

Páll segir við blaða­mann Mannlífs að hann fái ekki þessi „ofboðs­legu við­brögð“ til að fara heim og saman við til­efnið. „Það virt­ist allt nötra en í dag hefur dregið úr þessu; hvort að fólk hafi séð að sér eða ekki veit ég ekki. En þetta voru mjög kyndug við­brögð og að mínu mati ekki í neinu sam­ræmi við til­efnið. En hvað veit maður. Kannski eru hlutir þarna á Efsta­leiti sem ekki hafa enn litið dags­ins ljós og gætu skýrt heift­ina.“

„Gúgú“ og „gaga“

Páll er spurður hvort hann sjái eftir að hafa skrifað fyrsta pistil­inn þar sem aðal­efnið er maður sem hefur átt í erf­ið­leikum. „Helgi ját­aði sig geð­veikan. Menn fara á geð­deild þegar eitt­hvað alvar­legt er að. Annars hittir fólk sál­fræð­ing eða geð­lækni og fer kannski í sam­tals­með­ferð og/eða tekur lyf. Svo veit ég að þeim sem eru veikir á geði er ráð­lagt að stunda reglu­lega lík­ams­rækt og ég tek fram að ég óska Helga góðs bata.“

Hvað með að nota „orðin“ „gúgú“ og „gaga“? Er það ekki of langt gengið? „Þetta er það sem RÚV not­aði um borg­ar­stjóra. Ég var að vísa í það – það var sagt í skemmti­þætti á besta útsend­ing­ar­tíma að hann væri „gúgú“ og „gaga“. Þetta er kannski ekki virðu­legt heiti og kannski hefði mátt orða þetta betur. En blogg eru ekki skrifuð þannig að fólk liggi yfir þeim í marga daga. Þau eru skrifuð á til­tölu­lega skömmum tíma og ég var ekki að segja neitt nýtt. Ég var bara að tengja saman.“

Hvað með að aðgát skuli höfð í nær­veru sálar? „Ef ein­hver hefði sagt mér í sam­kvæmi að Helgi ætti við geð­ræn vanda­mál að stríða þá hefði ég aldrei gert neitt með þetta. Heilsa fólks er per­sónu­legt mál hvort sem um er að ræða and­lega eða lík­am­lega heilsu en við hljótum að vera sam­mála um að Helgi er opin­ber per­sóna í mjög fyr­ir­ferð­ar­mik­illi opin­berri umræðu. Það eina sem ég gerði er að setja þetta í annað sam­hengi heldur en hann og RÚV voru að setja þetta í. Þeir settu þetta í það sam­hengi að hann væri fórn­ar­lamb. Hann gerði geð­heilsu sína opin­bera. Ég vissi ekki fyrr en ég las frétt á net­miðil að hann ætti við geð­rænt vanda­mál að stríða og sjón­varp­aði því yfir alþjóð í skemmti­þætti Gísla Marteins að hann hefði lagst inn á geð­deild.

Ef ein­hver hefði sagt mér í sam­kvæmi að Helgi ætti við geð­ræn vanda­mál að stríða þá hefði ég aldrei gert neitt með þetta.

Málið er að ég hef fjallað tölu­vert mikið um og gagn­rýnt RÚV eins og reyndar aðra fjöl­miðla. Ég kann og þekki blaða­mennsku og hef verið svona öðrum þræði að halda úti fjöl­miðlarýni en ég hef bloggað um margt annað. RÚV stefndi mér einu sinni fyrir dóm­stóla vegna gagn­rýni sem ég hafði á RÚV vegna Evr­ópu­um­ræð­unnar. Þá þurfti ég að fara að verja mig og gerði það sjálfur. RÚV tap­aði því máli. Ég vann það. Ég virð­ist eitt­hvað koma við kvik­una á þeim því þetta er í eina skiptið sem ég hef verið stefndur fyrir eitt­hvað í blogg­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi