Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Í fréttum var þetta helst

Í fréttum var þetta helst
Páll Vil­hjálms­son

Páll um Helga Seljan: „Und­ar­legt að geð­veikur maður fari með dag­skrár­vald á rík­is­reknum fjöl­miðli“

Páll Vil­hjálms­son

„Helgi Seljan játar sig geð­veikan,“ skrifar hinn umdeildi kenn­ari og upp­á­halds­blogg­ari Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, Páll Vil­hjálms­son. Gjarnan er vitnað til skoð­ana Páls í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins og þeim gert hátt undir höfði.

Páll fer ekki fögrum orðum um fjöl­miðla­mann­inn Helga Seljan eftir heim­sókn Helga í þátt Gísla Marteins á RÚV, og mögu­lega má telja að skrif Páls séu á gráu svæði, jafn­vel mjög ógeð­felld og óvið­eig­andi:

„Frétta­maður RÚV, Helgi Seljan, var í við­tali hjá öðrum RÚV-ara, Gísla Marteini, og sagði þetta: „Ég hef svo sem sagt frá því áður, ég er veikur fyrir. Ég hef þurft að leggj­ast inn á geð­deild,“ svar­aði Helgi.

„Sá sem er geð­veikur er hvorki með sjálfan sig né heim­inn á hreinu. Annars væri hann ekki geð­veikur. Sá sem er læs á sjálfan sig er í standi til að taka ákvarð­anir á lífs­ins veg­ferð. Til að skilja heim­inn í kringum sig þarf maður að botna í sjálfum sér. Skil­grein­ingin á geð­veiki er að tapa áttum, ekki smá­vegis eða í skamma stund, heldur veru­lega og til lengri tíma. Sá sem leggst inn á geð­deild er kom­inn í slíkar ógöngur að aðeins duga stór­tæk inn­grip lækn­is­vís­inda til að færa geð­heils­una í samt lag. Annars eru menn heima, taka lyfin sín, stunda reglu­lega hreyf­ingu og feta sig áfram til að takast á við lífið á ný.“

Sjá frétt­ina í heild sinni: Páll um Helga Seljan: „Und­ar­legt að geð­veikur maður fari með dag­skrár­vald á rík­is­reknum fjöl­miðli“

Bryndís Schram er að nið­ur­lotum komin: „Ég er ger­sam­lega nið­ur­brotin, lífið er bráðum búið“

Bryndís og Jón Baldvin á góðum degi

„Ég hugsa til ykkar þessa dag­ana og sendi ykkur faðm­lag,“ skrifar hin stór­glæsi­lega og frá­bæra söng­kona, Halla Margrét Árna­dóttir, á Facebook-vegg Bryn­dísar Schram.

Halla Margrét sló í gegn sem full­trúi Íslands í Eurovision árið 1987, með fal­lega lag­inu Hægt og hljótt, eftir Stuð­mann­inn Valgeir Guð­jóns­son.

Bryndís Schram er ánægð með kveðj­una frá Höllu Margréti, en greini­legt að ekki liggur vel á Bryndísi þessi dægrin, enda hefur eig­in­maður hennar, Jón Baldvin Hanni­bals­son, þurft að verja sig í rétt­ar­sal und­an­farin miss­eri vegna meints kyn­ferð­is­brots.

Bryndís skrifar:

„Æ, Halla, mín elska. Ég er svo ger­sam­lega nið­ur­brotin, að ég hef ekki þrek til að horfast í augu við fólk. Þetta snýst ekki um rétt­læti eða sann­leik­ann – þetta snýst um illsku.

Okkur langar mest til að flýja land, flýja ofsókn­irnar, hatur dóttur okkar sem stendur fyrir öllu þessu. Af hverju skyldum við þurfa að búa í þessu ömur­lega sam­fé­lagi? Lífið er bráðum búið – því ekki bara njóta – njóta þess að vera saman og elska.“

Sjá frétt­ina í heild sinni: Bryndís Schram er að nið­ur­lotum komin: „Ég er ger­sam­lega nið­ur­brotin, lífið er bráðum búið“

Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fang­elsi fyrir heim­il­is­of­beldi: Á „sjálf­krafa“ sæti í lands­lið­inu

Jóhann Rúnar

Mannlíf hefur undir höndum gögn er varða einn besta hesta­mann Íslands, Jóhann Rúnar Skúlason. Gögnin og heim­ild­irnar snúa að því að Jóhann Rúnar Skúlason hafi verið kærður og sak­felldur fyrir heim­il­is­of­beldi í Danmörku, þar sem hann hefur búið nokkuð lengi og býr enn. Var hann til að mynda með ökkla­band í þó nokkurn tíma. Dómurinn var vegna árásar Jóhanns á þáver­andi konu sína. Þetta er sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs ekki eina sem brotið sem hann hefur framið.

Mannlíf hafði sam­band við for­mann Lands­sam­bands hesta­manna­fé­laga, Guðna Hall­dórs­son, og spurði hann út í málið:

„Þegar Jóhann var val­inn í lands­liðið fyrir heims­leika í Berlín 2019 var ég ekki í for­svari fyrir Lands­sam­band hesta­manna­fé­laga eða í stjórn, en ég var kjör­inn for­maður í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.“

Guðni segir: „Ég get því ekki svarað fyrir vit­neskju þáver­andi stjórnar, en sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum þá sé ég ekki að málið hafi komið inn á borð fyrri stjórnar, alla­vega ekki með form­legum hætti. Ég get á hinn bóg­inn stað­fest að ég hafði ekki upp­lýs­ingar um umræddan dóm fyrr en nú nýlega, þrátt fyrir að hafa átt sæti í lands­liðsnefnd og tekið virkan þátt í und­ir­bún­ingi og utan­um­haldi lands­liðs­ins í Berlín, þar sem ég hitti Jóhann í fyrsta skipti. Þetta mál kom aldrei inn á borð lands­liðsnefndar í aðdrag­anda heims­leika.“

Guðni nefnir einnig að „Jóhann er ríkj­andi heims­meist­ari og á sem slíkur sjálf­krafa sæti í lands­lið­inu, enda á hann rétt á að verja titla sína á næstu heims­leikum, reglum sam­kvæmt.

Sjá frétt­ina í heild sinni: Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fang­elsi fyrir heim­il­is­of­beldi: Á „sjálf­krafa“ sæti í lands­lið­inu

Hraktist frá Höfn eftir kyn­ferð­is­lega áreitni – „Fór þangað um miðja nótt til að sækja dótið sitt“

Höfn í Horna­firði

Kona, sem önnur kona braut á kyn­ferð­is­lega, hefur ekki stigið fæti á Höfn síðan brotið átti sér stað. Systir bæj­ar­stjór­ans er ger­and­inn í mál­inu.

Mikil óværð er á Horna­firði vegna máls sem snýr að kyn­ferð­is­legri áreitni konu á hendur annarri konu. Á fimmtu­dag­inn féll dómur í mál­inu, sem upp kom vorið 2019. Ger­and­inn hefur fengið að starfa óáreittur hjá bænum frá því að atvikið átti sér stað en þol­and­inn hrökkl­að­ist frá. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs er ger­and­inn systir Matt­hildar Ásmund­ar­dóttur, bæj­ar­stjóra sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar, og var fram­kvæmda­stjóri hjá sveit­ar­fé­lag­inu þegar brotið átti sér stað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var ráðn­ing systur bæj­ar­stjór­ans nokkuð umdeild á Höfn en við­mæl­endur Mannlífs kann­ast ekki við að staðan hafi verið aug­lýst. Var hún ráðin af sveit­ar­fé­lag­inu þegar Matt­hildur var orð­inn bæj­ar­stjóri en síðan þá hefur einka­fyr­ir­tæki tekið yfir rekstur stofn­un­ar­innar. Hún vinnur þar enn.

Konan var sak­felld fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni gegn annarri konu og átti atvikið sér stað í rúmi á hót­el­her­bergi við Rauð­ar­ár­stíg er kvenna­hópur frá Horna­firði fór í vinnu­ferð til Reykja­víkur. Báðar kon­urnar voru starfs­menn sveit­ar­fé­lags­ins. Var konan dæmd í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi vegna brots­ins, sem skil­greint er sem kyn­ferð­is­leg áreitni, og til greiðslu 450.000 króna í skaða­bætur auk máls­kostn­aðar.

Sjá frétt­ina í heild sinni: Hraktist frá Höfn eftir kyn­ferð­is­lega áreitni – „Fór þangað um miðja nótt til að sækja dótið sitt“

Lestu nýjasta vef­blað Mannlífs hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð