Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fangelsi fyrir heimilisofbeldi: Á „sjálfkrafa“ sæti í landsliðinu

Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fangelsi fyrir heimilisofbeldi: Á „sjálfkrafa“ sæti í landsliðinu
Jóhann Rúnar

Mannlíf hefur undir höndum gögn er varða einn besta hesta­mann Íslands, Jóhann Rúnar Skúlason. Gögnin og heim­ild­irnar snúa að því að Jóhann Rúnar Skúlason hafi verið kærður og sak­felldur fyrir heim­il­is­of­beldi í Danmörku, þar sem hann hefur búið nokkuð lengi og býr enn. Var hann til að mynda með ökkla­band í þó nokkurn tíma. Dómurinn var vegna árásar Jóhanns á þáver­andi konu sína. Þetta er þó sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs ekki eina sem brotið sem hann hefur framið.

Þrátt fyrir dóm­inn er Skag­firð­ing­ur­inn Jóhann Rúnar þó enn í lands­liði hesta­manna. Hann er marg­verð­laun­aður knapi og var til dæmis til­nefndur sem Íþrótta­maður árs­ins árið 2019, en þar hafn­aði hann í tólfta sæti. Hann hefur í raun unnið allt sem hægt er að vinna sem hesta­maður; val­inn knapi árs­ins hjá Lands­sam­bandi hesta­manna­fé­laga; marg­faldur heims­meist­ari á heims­meist­ara­móti íslenska hests­ins. Einnig hefur hann unnið marga sigra á heims- og Norð­ur­landa­mótum og hann hefur tekið þátt í heims­meist­ara­mótum íslenska hests­ins síðan 1997 og unnið á annan tug heims­meist­aratitla í hesta­í­þróttum sem og all­nokkra Norð­ur­landa- og Dan­merk­ur­meist­aratitla. Jóhann Rúnar er því einn besti knapi Íslands­sög­unnar.

Mannlíf hafði sam­band við for­mann Lands­sam­bands Hesta­manna­fé­laga, Guðna Hall­dórs­son, og spurði hann út í málið:

„Þegar Jóhann var val­inn í lands­liðið fyrir heims­leika í Berlín 2019 var ég ekki í for­svari fyrir Lands­sam­band hesta­manna­fé­laga eða í stjórn, en ég var kjör­inn for­maður í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.“

„Jóhann er ríkj­andi heims­meist­ari og á sem slíkur sjálf­krafa sæti í lands­lið­inu“

Guðni segir: „Ég get því ekki svarað fyrir vit­neskju þáver­andi stjórnar, en sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum þá sé ég ekki að málið hafi komið inn á borð fyrri stjórnar, alla­vega ekki með form­legum hætti. Ég get á hinn bóg­inn stað­fest að ég hafði ekki upp­lýs­ingar um umræddan dóm fyrr en nú nýlega, þrátt fyrir að hafa átt sæti í lands­liðsnefnd og tekið virkan þátt í und­ir­bún­ingi og utan­um­haldi lands­liðs­ins í Berlín, þar sem ég hitti Jóhann í fyrsta skipti. Þetta mál kom aldrei inn á borð lands­liðsnefndar í aðdrag­anda heims­leika.“

Guðni nefnir einnig að „Jóhann er ríkj­andi heims­meist­ari og á sem slíkur sjálf­krafa sæti í lands­lið­inu, enda á hann rétt á að verja titla sína á næstu heims­leikum, reglum sam­kvæmt.

Ég get þó upp­lýst að á und­an­förnum vikum og mán­uðum hefur farið af stað mark­viss vinna innan LH þar sem farið verður yfir alla verk­ferla varð­andi mögu­leg afbrot lands­liðs­manna, stafs­manna, stjórn­ar­manna og ann­arra sem tengj­ast hreyf­ing­unni. Höfum við hjá LH verið í góðu sam­bandi við ÍSÍ og munum fylgja þeim að málum og fara að þeim ráð­legg­ingum sem við fáum frá ÍSÍ og sam­skipta­ráð­gjafa sam­bands­ins.“

Guðni bætir við: „Eins og áður segir þá öðl­ast heims­meist­arar sjálf­krafa rétt til að verja titla sína. Það er því stór ákvörðun og verður því ekki gert nema að vand­lega athugðu máli, með allar upp­lýs­ingar á borð­inu og eftir að verk­ferlar hafa verið yfir­farnir, sem ákvörðun verður tekin um það hvort vísa eigi við­kom­andi út úr lands­lið­hópi LH.“

Hann bendir einnig á að „þar sem engin verk­efni eru fram undan á næstu mán­uðum hjá lands­liði LH höfum við talið okkur hafa ágætis tíma til að skoða þessi mál af yfir­vegun, enda viljum við kapp­kosta að taka réttar ákvarð­anir og brjóta ekki á þeim rétt­indum sem menn eiga.“

Guðni segir það þó „alveg ljóst að LH geri miklar kröfur til sinna lands­lið­sknapa og ætl­ast til þess að þeir séu fyr­ir­mynd ann­arra knapa, innan sem utan vallar og ljóst að engar til­slak­anir verða gerðar í þeim efnum. Hingað til hefur ekki verið kallað sér­stak­lega eftir saka­vott­orði lands­lið­sknapa eða ann­arra sem tengj­ast LH, en mögu­lega kann það að breyt­ast ef það verður nið­ur­staða þeirrar vinnu sem nú er komin í gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina