Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sögukennari í Garðabæ birtir falsfrétt og ræðst á Rakel á RÚV: „Afplánun telst ekki atvinna“

Sögukennari í Garðabæ birtir falsfrétt og ræðst á Rakel á RÚV: „Afplánun telst ekki atvinna“
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

Páll Vil­hjálms­son sögu­kenn­ari við FG í Garðabæ birti á bloggi sínu færslu sem er fals­frétt.

Þar segir Páll meðal ann­ars:

„Lög­reglan rann­sakar eitrun Páls skip­stjóra Lög­reglan fékk lífs­sýni af Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra hjá Samherja í tengslum við rann­sókn á lífs­hættu­legu til­ræði þegar síma Páls var stolið 4. maí í vor. Síma Páls var stolið þegar hann lá í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu. Rannsókn lög­reglu bein­ist m.a. að því að greina ástæður skyndi­legra lífs­hættu­legra veik­inda skip­stjór­ans. Í tölvu­pósti til Páls er hann beð­inn um lífs­sýni til að ,,finna út hvort þú hafir orðið fyrir eitrun.“ Með tölvu­pósti er Páll einnig beð­inn um heim­ild að tækni­deild lög­regl­unnar afli upp­lýs­inga hjá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum um ,,hvar sím­inn var á meðan þú varst með­vit­und­ar­laus“. Þær upp­lýs­ingar stað­festa að sími Páls fór um hendur starfs­manna RÚV sem stálu úr sím­anum gögnum. Þau gögn voru notuð af RÚV, Stund­inni og Kjarn­anum í fjöl­miðla­her­ferð gegn Samherja.“

Einnig að „rann­sókn máls­ins er langt komin. Páley Borg­þórs­dóttir lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra fer með for­ræði rann­sókn­ar­innar. Hún hefur verið í Reykja­vík alla þessa viku. Búið er að yfir­heyra starfs­menn RÚV, Stund­ar­innar og Kjarnans. Efn­is­at­riði í drög að skýrslu liggja fyrir. Atburða­rásin, með tíma­línum og atvika­lýs­ingum, er kunn. Andleg van­heilsa grun­aðra hefur verið rann­sökuð og lækn­is­vott­orð metin.

Fjöl­miðlar þegja sem gröfin. Samfélag blaða­manna er fámennt. Menn eru vinir, kunn­ingjar og sam­starfs­menn, núver­andi, fyrr­ver­andi eða verð­andi. Í vina- og hags­muna­tengslum vill gleym­ast að starf blaða­manna er að upp­lýsa almenn­ing um mik­ils­verð mál.“

Og þá segir Páll að Rakel Þor­bergs­dóttir, sem nýlega til­kynnti að hún væri að hætta sem frétta­stjóri RÚV, sé á leið í afplánun:

Rakel Þor­bergs­dóttir er á förum frá Rík­is­út­varp­inu,

„Ekki verða frétta­málin öllu stærri en þegar rík­is­frétta­stofa er bendluð við bana­til­ræði og þaul­skipu­lagðan gagna­stuld frá manni sem liggur með­vit­und­ar­laus í önd­un­ar­vél. Sá sem ekki sér frétt­ina, tja, hann er ekki blaða­maður heldur hags­muna­vörður.

Á Efsta­leiti er aftur það að frétta að frétta­stjór­inn Rakel hættir, sumir vilja í langt náms­leyfi á meðan aðrir huga að nýjum vett­vangi. Varla þó blaða­mennsku. Afplánun telst ekki atvinna.

Stefán útvarps­stjóri getur ekki ráðið frétta­stjóra með aðsetur á Litla-Hrauni eða Kvía­bryggju. Þess vegna bíður hann með að aug­lýsa starfið.“

Stefán Eiríks­son.

Hvaða gögn sögu­kenn­ar­inn hefur undir höndum til að styðja við full­yrð­ingar sínar kemur ekki fram í færsl­unni, en lík­lega verður Páli ekki skota­skuld úr því að birta þau, enda eru skrif hans, og ásak­anir, af alvar­legri gerð­inni.

Aðal­steinn Kjart­ans­son blaða­maður á Stund­inni ritar grein á vef­síð­una þar sem þetta kemur meðal ann­ars fram:

„Af mörgum ástæðum les ég almennt ekki blogg­síðu Páls Vil­hjálms­sonar og sá því ekki blogg­pistil sem hann til­eink­aði mér. Það var ekki fyrr en dyggur les­andi Páls sendi mér hann í tölvu­pósti að ég vissi að sú sam­sær­is­kenn­ing væri nú komin fram að ég væri glæpa­maður sem hefði tekið þátt í eða fram­kvæmt til­tölu­lega flók­inn stuld á far­síma norður á Akureyri.

Glæp­ur­inn – sem ég er sagður hafa fram­kvæmt – á meðal ann­ars að hafa falið í sér að koma sjó­manni í slíkt ástand að hann þurfti á önd­un­ar­vél á sjúkra­húsi að halda. Páll gengur svo langt að tala um „bana­til­ræði“. Allt til þess að ég gæti flutt fréttir af skæru­liða­deild Samherja.

Þetta er lygi.

Ég hef aldrei tekið þátt í að stela far­síma, stela gögnum eða orðið valdur þess að ein­hver hafi þurft að tengj­ast önd­un­ar­vél til að lifa. Og mér finnst grafal­var­legt að vera sak­aður um það. Í ofaná­lag full­yrðir Páll að ég hafi verið yfir­heyrður vegna rann­sóknar lög­reglu á þessum glæp. Það er líka lygi.“

Líklegt má telja að færsla Páls muni hafa ein­hverjar afleið­ingar í för með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi