Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Yrsa Sigurðardóttir með umsjónarmönnum Fyrsta skrefsins á Úlfarsfelli.
Yrsa Sig­urð­ar­dóttir með umsjón­ar­mönnum Fyrsta skrefs­ins á Úlf­ars­felli.

Ertu að glíma við sykurfíkn og hvíldar­þörf? Ertu slappur og í yfirþyngd? Borðaðirðu of mikið um jólin og fékkst samsviskubit? Viltu breyta lífi þínu til hins betra og öðlast betri lífsgæði og hæfni til útvistar? Ef þér líður þannig skaltu skoða dagskrá Fyrsta skrefsins sem hefst um miðjan janúar. Verkefnið er byggt upp á vikulegum göngum á létt og þægileg fjöll. Smám saman er byggt og þrek og úthald og þegar maímánuður rennur upp verður haldið á sjálfan Snæfells­jökul.

Fyrsta skrefið er að hefja sitt sjötta ár undir fána Ferða­félags Íslands. Verkefnið samanstendur af fjall­göngum, fræðslu, æfingum og söng. Fjölmargir hafa í þeim félags­skap náð að rjúfa kyrrstöðu og öðlast hæfni til að ganga á fjöll. Stærstur hluti félaga Fyrsta skrefsins eða yfir 70 prósent hefur náð því markmiði sínu að toppa Snæfells­jökul.

Eldfell í Vest­manna­eyjum.

Sem dæmi um fjöll sem verða toppuð er að haldið er á flest lægri fjöll á höfuð­borgar­svæðinu. Úlfars­fell, Helgafell og hlíðar Esju eru þess á meðal. Þá verða gosstöðvarnar heim­sóttar og helgar­ferð til Vestmanna­eyja verður farin um miðjan maí. Ævintýrin verða við hvert fótmál. Lagt er upp með að ganga á hraða sem hentar öllum hópnum. Það er á færi flestra að taka þátt í verk­efninu.

Reglu­bundnar göngu vinna gegn bæði líkamlegum og andlegum kvillum. Áreynslan bægir frá þunglyndi og kvíða auk þess að líkamlegur styrkur eykst. Margir hafa vitnað til þess að þjálfun á vegum Ferða­félags Íslands hefur hjálpað þeim til að öðlast aukin lífsgæði.

Hámarks­fjöldi er í hópnum. Aðeins 40 manns verða teknir inn. Fyrir ári síðan seldist upp í verkefnið. Kynningar­fundur verður í beinu streymi á Facebook kl. 20, annað kvöld.

Hér getur fólk bókað sig á námskeiðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur