Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Rúna Sif Rafnsdóttir, hetja ársins: „Eldur Elí er mesta hetjan“

Eldur Elí á milli Rúnu Sifjar (t.v.) og móður sinnar, Kristínar.
Eldur Elí á milli Rúnu Sifjar (t.v.) og móður sinnar, Krist­ínar.

Kjöri Mannlífs um Hetju ársins 2021 er lokið og úrslit liggja fyrir. Ljóst er að fórnfýsi og gæska Rúnu Sifjar Rafns­dóttur snertu streng í hjörtum lesenda. Rúna Sif lagði sín lóð á vogar­skálarnar til að bjarga lífi átta mánaða drengs, Elds Elís, og gaf honum hluta af lifur sinni sem var honum lífs­nauðsynleg.


Rúna Sif átti ekki heiman­gengt og því varð úr að Eydís Lilja, frænka Elds Elís, tók við viðurkenningunni fyrir hennar hönd. Eydís Lilja var einnig reiðubúin, ef til þess hefði komið, að gefa Eldi Elí hluta lifrar sinnar.

Eydís Lilja tekur, fyrir hönd Rúnu Sifjar, á móti við­ur­kenn­ing­ar­skjali úr hönd Reynis Trausta­sonar.

Rúna Sif Rafns­dóttir er sannarlega vel að titlinum Hetja ársins 2021 komin og óskar Mannlíf henni til hamingju.

Rúna Sif Rafns­dóttir „Eldur Elí er mesta hetjan,“ segir Rúna.

Rúna Sif er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið á Tálkna­firði í þrjú ár og segir að fjöl­skyldunni líði mjög vel þar.

Þegar henni voru færð tíðindin af vali ritstjórnar og lesenda Mannlífs tók hún þeim af mikilli hógværð. „Tilfinningin er yndisleg og maður finnur hvað fólki þykir vænt um fallegu söguna okkar, og hvað þetta endaði vel er hreint út sagt krafta­verk,“ sagði Rúna Sif og bætti við: „En ég var svo sannarlega ekki ein í þessu liði og án allra hinna hefði ég lítið getað gert. Ég vil nefna Jónatan, manninn minn, sem tók hvert einasta skref með mér, Kristínu og Bjarka, foreldra Elds Elís, alla lækna og hjúkrunar­fræðinga, fjöl­skylduna okkar allra og vini okkar, og auðvitað Eld Elí. Eldur Elí er að mínu mati mesta hetjan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna