Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vítalía: „Leituðu upplýsinga um hennar einkalíf og gerðu lítið úr henni sjálfri“

Vítalía Lazareva. Skjáskot úr hlaðvarpinu Eigin konum.
Vítalía Lazareva. Skjáskot úr hlað­varp­inu Eigin konum.

Stjórn Íslands­deildar alþjóðasamtökanna Transparency International, samtaka gegn spillingu hafa gefið út yfir­lýsingu vegna mannanna fimm sem sakaðir eru um kynferðis­brot.

„Vítalía hefur sjálf lýst því hvernig áhrif, félagsleg staða, tengsl og ítök mannanna voru órjúfanlegur hluti af ofbeldinu sem hún upplifði. Þá hefur hún birt samskipti sín við mennina eftir atvikin sem sýna hvernig mennirnir beittu stöðu­tengdum áhrifum sínum til að grafa undan frásögn hennar, leituðu upplýsinga um hennar einkalíf og gerðu lítið úr henni sjálfri sem og atvikunum,“ segir í yfir­lýsingu samtak­anna.

Mannlíf hefur fjallað um mennina fimm sem sakaðir hafa verið um kynferðis­brot gegn ungri konu, beittu stöðu sinni til þess að grafa undan frásögn meints þolanda. Þetta segir stjórn Íslands­deildar alþjóðasamtökanna Transparency International, samtaka gegn spillingu, í yfir­lýsingu um málið.

Vatnaskil í baráttunni 

Samtökin telja atburði síðustu daga vera vatnaskil í baráttu gegn kynferðis­ofbeldi á Íslandi, þegar valdamenn efnahags­lífsins stigu til hliðar í störfum sínum. Þá lýsa þau hins vegar yfir vonbrigðum sínum þegar kemur að viðbrogðum ráðherra, einstaka fjölmiðla­manna, stjórnmála­fólks og hagsmuna­varða atvinnu­lífsins.

„…Sem sáu ástæðu til að lýsa yfir persónulegri velþóknun sinni á yfir­lýsingu Loga Bergmann þar sem hann sakar Vítalíu um að fara með ósannindi í þessu alvarlega máli. Það er ekki í anda heilinda og faglegrar nálgunar á valda- og áhrifa­stöðu að merkja sig fyrirfram sem stuðnings­aðila áhrifa­mikils einstaklings sem grunaður er um kynferðis­brot“ segir í yfir­lýsingunni.

Völd tengslanetsins

Samtökin segja að það að áhrifa­fólk í samfélaginu setji „þumal eða like“ við færslur þar sem gerendur neiti sök, geti fallið undir gerenda­meðvirkni.

„Stór hluti vandans er einmitt þessi völd tengsla­netsins, sem slær skjald­borg utan um vissa valda­mikla gerendur og verndar þá“ segir í yfir­lýsingu samtak­anna.

Þá ítreka þau að marg oft hafi verið rætt um vantraust brotaþola til réttar­kerfisins þegar komi að kynferðis­brotum, því eigi umræða um geranda­meðvirkni rétt á sér:

„Kerfið og valdafólk sem mannar það, þ.á.m. ráðherrar, getur því ekki falið sig á bakvið skort á vitneskju, eða vinskap við vini sem sakaðir eru um brot, þegar almenningur furðar sig á að þeim sem sagður er hafa beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi sé vorkennt meira en þeim sem segist hafa mátt þola niður­læginguna og sárs­aukann.“

Uppljóstrara um spillingarbrot

Þó kynferðis- og efnahags­brot séu ólík, þá segja samtökin ljóst að þolendur kynferðis­brota fái oft svipaða meðferð og þeir sem varpi ljósi á spillingu.

„Aðferðirnar eru þær sömu, persónu­lega áhættan svipuð, og andlega álagið sambærilegt. Það ætti því að segja sig sjálft að þolendur kynferðis­ofbeldis þurfa að fá tryggða samskonar vernd og uppljóstrar um spillingar­brot“ segir í yfir­lýsingunni.

Gengur ekki að lofa umbótum

Stjórn Íslands­deildar Transparency International kalla eftir aukinni ábyrgð og aðgerðum stjórn­valda í hag brotaþola kynferðis­brota. Eftir fjölda loforða um umbætur sé komið að því að verkin tali.

„Það gengur ekki að lofa umbótum og taka þátt í auglýsinga­herferðum gegn ofbeldis­menningu einn daginn en þann næsta skipa aðila í áhrifa­stöður sem þekktir eru í samfélaginu fyrir að tortryggja reynslu­sögur brotaþola“ segir í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim