Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll skipstjóri: „Fyrir ári síðan greip aðili nákominn mér, til örþrifaráðs til að þóknast öðrum“

Páll skipstjóri: „Fyrir ári síðan greip aðili nákominn mér, til örþrifaráðs til að þóknast öðrum“
Páll Stein­gríms eins og hann birt­ist les­endum við harð­línupistla fyrir skömmu

„Mér líður stundum eins og ég hafi óvart lent í lélegri bíó­mynd,“ skrifar Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri Samherja, á Facebook síðu sinni í dag. Í færsl­unni fer Páll yfir “síma­málið“ en gögn úr síma hans láku í fjöl­miðla. Segir hann að sím­anum hafi verið stolið og honum boð­inn friður, drægi hann kæruna til baka. Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

Kæru ætt­ingjar, vinir og sam­starfs­menn.
Mér líður stundum eins og ég hafi óvart lent í lélegri bíó­mynd enda sú atburða­rás sem hófst fyrir ári síðan lyg­inni lík­ust. Stað­reyndin er hins vegar sú að þetta er ekk­ert hand­rit, engin bíó­mynd ekki þáttur á Netflix. Fyrir ári síðan greip aðili nákom­inn mér, þjak­aður af veik­indum, til örþrifa­ráðs til að þókn­ast öðrum.

Ég end­aði á gör­gæslu og í önd­un­ar­vél og ef ekki væri fyrir stærð mína og hversu lík­am­lega hraustur ég er og fyrir fram­úr­skar­andi heil­brigð­is­starfs­fólk væri ég ekki hér. Við þessar aðstæður var sími minn tek­inn og honum komið í hendur starfs­manns rík­is­fjöl­mið­ils okkar Íslend­inga sem sá um að afrita hann og efn­is­bútum úr sam­tölum mínum við sam­starfs­menn og vini, sem þar var að finna, dreift á milli val­inna fjöl­miðla­manna sem síðan hafa gert sér mat úr honum, nú síð­ast í lok des­em­ber 2021. Gefa sömu fjöl­miðla­menn í skyn að þeir berj­ist fyrir göf­ugri æðri mark­mið en okkur almúg­anum eru skilj­an­leg. Nú þegar þeir vita upp á sig sök­ina og við færumst nær því að varpa ljósi á sann­leik­ann reyna þeir að vekja samúð hér­lendis sem erlendis með sjálfum sér, sem fórn­ar­lömb “sam­særis”, og reyna að sama skapi að skapa sekt­ar­kennd hjá þeim sem mis­gert var við.

“Samsærið” gekk út á að Samherji, minn vinnu­veit­andi, gerði út sér­staka deild til að klekkja á fjöl­miðla­mönnum og sam­starfs­mönnum þeirra og reyndi að hafa áhrif á kosn­ingar í félags­málum og stjórn­málum.

Ég tók ákvörðun í nóv­em­ber 2019, eftir að hafa horft á Kveiks­þátt um sturl­aðar ásak­anir í garð fólks sem ég hef þekkt um ára­bil og bara af góðu, að ég vildi bjóða fram mína krafta og tjá mig opin­ber­lega um Samherja, en þó aðeins á grund­velli stað­reynda. Því vann ég náið með fólki sem hafði aðgang að öllum upp­lýs­ingum um ásak­anir fjöl­miðla­mann­anna og hins svo­kall­aða upp­ljóstr­ara.
En hvað gerði ég sem kall­aði þennan óskapanað yfir mig? Ég leið­rétti rang­færslur og spurði spurn­inga. Þeim var aldrei svarað heldur var lokað á mig á sam­fé­lags­miðlum, vísað í “gögnin” en aldrei hvaða gögn þó ég þrá­spyrði, og oft spurn­ingum mínum eytt út. Gekk ég ákveðið fram um að fjöl­miðla­menn­irnir sem stóðu að baki Kveiks­þætt­inum svör­uðu bein­skeyttum spurn­ingum mínum um vinnu­brögð sín og rök. Höfðu þeir ekk­ert áþreif­an­legt í hönd­unum heldur rétt­lættu gjörðir sínar með til­vísun í æðri til­gang og óljóst göf­ug­lyndi. Þegar ég spurðir um kjarn­ann, bentu þeir á hismið. “Gögnin tala sínu máli.” Eða “þjóðin hefur sagt sitt”. En hvaða gögn og hvar sagði þjóðin eitt­hvað og hvað er þjóðin?

Þegar ekki dugði að eyða út athuga­semdum eða svara mér með orð­unum “gögnin tala sínu máli” hafa þeir farið í mig per­sónu­lega. Ég var sak­aður um að vera ekki höf­undur greina minna. Myndi ein­hver ásaka Bubba Morthens að vera ekki höf­undur ljóða sinna eða laga þó straf­setn­ing sé ekki hans sterkasta hlið? Ég gagn­rýndi vinnu­brögðin en var jafn­harðan ásak­aður um að fara í per­sónur þó aldrei hafi verið hægt að finna því stað. Ég spurði um gögn og rök­stuðn­ing en var ásak­aður um árásir.

Eftir að mér var komið í önd­un­ar­vél og sím­inn afrit­aður byrj­uðu þó árás­irnar af alvöru. Snúið var út úr brota­kenndu upp­lýs­ing­unum sem fjöl­miðla­menn­irnir fengu og per­sónu­legum skoð­unum mínum og þeirra sem ég átti í einka­sam­skiptum við um menn og mál­efni var snúið upp í ann­ar­leg afskipti af hálfu Samherja af stjórn­málum og félags­málum. Blásið var til mál­stofa og marg­sinnis leitað til sam­taka og fjöl­miðla erlendis til að bera sem víð­ast ásak­anir í minn garð.

Ég veit ekki hvort skrifa eigi það á skiln­ings­leysi þessa hóps á tungu­mál­inu okkar eða ill­vilja en útúr­snún­ingar þeirra á mynd­lík­ingum eru landamæra­lausar. Tungu­málið okkar er auð­ugt og með öðrum orðum blása mynd­lík­ingar enn meira lífi í frá­sagnir. Mynd­lík­ingar sam­an­standa af þremur hlutum: raun­veru­legur þáttur, ímynd­aður þáttur og teng­ingin þar á milli. Notkun þeirra er því til þess fallin að efla og auka áhrif þess sem sagt er. Að “stinga og snúa” eða “strá salti í sárið” er, eins og ég hef útskýrt, mynd­lík­ing á því að nudda fólk­inu upp úr þeirri stað­reynd að þau hafa aldrei geta svarað ein­földum, bein­skeyttum spurn­ingum mínum um vinnu­brögð sín.

Eins og ég hef áður sagt tók ég þá ákvörðun um að halda mig til hlés meðan málið er í rann­sókn lög­reglu. Ég kærði engan ein­stak­ling heldur aðeins stuld á sím­anum mínum. Rannsókn lög­reglu hefur greini­lega leitt hana á þann stað að fjórir fjöl­miðla­menn eru með stöðu sak­born­ings fyrir eitt­hvert athæfi. Ólíkt öllum öðrum lands­mönnum sem endað hafa, með réttu eða röngu, í þeirri stöðu að vera sak­born­ingar, hafa fjöl­miðla­menn­irnir barist á hæl og hnakka um að mæta í skýrslu­töku. Í orði hafa þeir sagst ætla að mæta sall­ar­ó­legir í skýrslu­tökur en í verki reyna þeir alla mögu­lega og ómögu­lega laga­klæki til að kom­ast undan því, en segj­ast jafn­framt engin lög hafa brotið og séu ekki yfir það hafnir að ræða við lög­reglu. Gjörðir þeirra segja hins vegar aðra sögu. Sú stað­reynd að þegar heim­ild­ar­maður fjöl­miðla­mann­anna var yfir­heyrður mörgum mán­uðum eftir stuld­inn hafi fjöl­miðla­menn­irnir verið í sam­skiptum við hann, haft síma hans í fórum sínum og í kjöl­farið var mér boðið að ég fengi frið frá ákveðnum hópi fjöl­miðla­manna ef ég myndi draga kæruna til baka, þetta segir nefni­lega allt annað en “ég hef engin lög brotið.”
Ég er bara venju­legur maður sem hef orðið að þola harða atlögu að heilsu minni og æru af óvenju ósvífnum fjöl­miðla­mönnum sem ég vil meina að starfi eins og glæpa­menn. Fólki af þessu sauða­húsi vil ég helst mæta fyrir dóm­stólum í von um að ná fram því rétt­læti að fá að njóta frið­helgi einka­lífs sem allir borg­ara lands­ins eiga rétt á og varið er í stjórn­ar­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi