Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skopteiknarar Múhameðs fóru huldu höfði á Íslandi

Skopteiknarar Múhameðs fóru huldu höfði á Íslandi
Kurt Westergaard, lík­lega þekkt­asti skopteikn­ari Dana.

Halldór Kristján Bald­urs­son teikn­ari segir að dönsku skop­mynda­teikn­ar­arnir sem gerðu alræmt grín af Múhameð spá­manni hafi kom hingað til lands nokkrum árum síðar og farið huldu höfði. Þeir virð­ast hafa ótt­ast enn um líf sitt, þó nokkur tími hafi verið lið­inn og þeir væru staddir á Íslandi, þar sem fáir múslímar búa og engin saga er af öfgum þeim tengdum.

„Já, þessir dönsku teikn­arar voru hérna á árs­há­tíð í kringum 2007-8 og fóru mjög leynt og þorðu ekki að koma í við­töl,“ segir Halldór í helg­ar­við­tali við Reyni Trausta­son. Árið 2006 birt­ist í Jylland­sposten skop­mynd af Múhameð spá­manni sem múslímar voru ekki sáttir við.

Það var búið að gefa á þá veiði­leyfi. Þetta er rosa­legt hatur. Skildir þú hvað er á bak við þetta?

„Ég skil ekki af hverju fólk gaf skop­mynd­inni þetta vægi. Ef við förum í grunn­sög­una þá var verið að gefa út bækur í Danmörku um trú­ar­brögð og það var búið að gefa út eina um Búdda og þessi höf­undur vildi gera bók um Múhameð. Það hófst her­ferð gegn því af því að það má ekki teikna Múhameð og Jylland­sposten fékk teikn­ara til að teikna Múhameð í nafni tján­ing­ar­frels­is­ins. Þannig að þetta var ein­hvers konar ögrun gagn­vart því að þessi við­kom­andi höf­undur í landi sem metur tján­ing­ar­frelsið mik­ils fékk ekki að gefa út bók­ina sína. Og það var nýr veru­leiki fyrir Dani. Jylland­sposten fór út í þetta,“ segir Halldór.

Hann segir að kristnir hafi verið nýhættir að láta svona þegar þetta ger­ist. „Síðan gleymd­ist þessi for­saga með þessa bók. Og rit­stjóri Jylland­sposten sagði „hver vill teikna Múhameð? Okkur finnst það mik­il­vægt til þess að leggja áherslu á tján­ing­ar­frelsi teikn­ara.“ Síðan var þessu tekið sem mik­illi ögrun frá þeim sem eru íslams­trúar. Þetta var blásið út og það var bætt við ljót­ari myndum. Í súp­unni sátu síðan þessir teikn­arar á end­anum. Margar af þessum myndum eru mjög sak­lausar. Aðrar hafa dálítið rasískt yfir­bragð. En alltaf þarf maður að hugsa hver er það sem ræður hvað við megum teikna; hvenær getur þú fært ný gildi yfir á sam­fé­lagið því við teiknum auð­vitað ekki hvað sem er. Ég er ekk­ert að teikna alla hvernig sem er. Það er alls konar tabú í gangi. Og þarna var búið að bæta við tabú sem við vorum nýbúin að losna við varð­andi kristn­ina; það mátti gera grín að kristn­inni sem mátti ekki ein­hverjum örfáum ára­tugum áður. Hvað þá öldum áður. Það hefur verið dauða­sök ein­hvern tím­ann.“

En Halldór hefur þó að sjálf­sögðu sjálfur teiknað Múhameð. Þá var Múhameð kom­inn til himna. „Það voru tvær myndir. Ég man ekki hvernig þær voru. Maður dælir út mynd eftir mynd eftir mynd og það er kannski til­viljun hvað það er sem fólk grípur,“ segir teikn­ar­inn og bætir við að það skipti almennt máli hver sér mynd­ina og ákveður að móðg­ast og gera frétt úr því; móðg­ast sam­kvæmt sínum gildum.

Hér má lesa við­talið við Halldór í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ