Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sævaldur hættur með U18 landslið kvenna: „Hann er ekki starfandi þjálfari, hann er í leyfi“

Sævaldur hættur með U18 landslið kvenna: „Hann er ekki starfandi þjálfari, hann er í leyfi“
Sævaldur Bjarna­son Mynd: Karfan.is

Sævaldur Bjarna­son er ekki lengur þjálf­ari U18 lands­liðs kvenna í körfu­bolta. Sam­skipta­ráð­gjafi skoðar nú mál sem teng­ist meðal ann­ars „óþægi­legri nær­veru“ Sævalds á æfingum.

Sjá einnig: Sævaldur, þjálf­ari U18 lands­liðs kvenna, ekki með á EM vegna ásak­ana: „Ákváðum að senda hann ekki“

Sævaldur er einn mest mennt­aði körfu­bolta­þjálf­ari lands­ins en hann hefur meðal ann­ars þjálfað kvenna­lið meist­ara­flokks Stjörn­unnar og meist­ara­flokkslið karla hjá Haukum og fleiri lið. Nýverið var Sævaldur ráð­inn sem þjálf­ari U18 lands­liðs kvenna en vegna kvart­anna sem bár­ust KKÍ var ákveðið að senda hann ekki með lið­inu til Grikk­lands þar sem liðið tók þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu. Kvart­an­irnar snéru meðal ann­ars að „óþægi­legri nær­veru“ Sævalds á æfingum.

Guðbjörg Norð­fjörð Elí­as­dóttir, vara­for­maður KKÍ sagði í sam­tali við Mannlíf þegar málið kom upp, að Sævaldur færi ekki með lið­inu á EM: „Það er ekki búið að setja hann í leyfi beint en það kom upp mál þannig að við ákváðum að senda hann ekki með lands­lið­inu á EM. Á meðan verið er að skoða málið ákváðum við að fara þessa leið. Það er sem sagt ekki búið að reka hann eða neitt þannig, við erum bara að skoða málið.“

Mannlíf heyrði aftur í Guð­björgu í dag og fékk það stað­fest að Sævaldur er ekki lengur starf­andi þjálf­ari U18 lands­liðs kvenna. „Hann er sem sagt ekki starf­andi þjálf­ari, hann er í leyfi. Verk­efnið var bara búið og ekk­ert meira sem var á hans könnu. Verk­efnið sem hann var ráð­inn í, það var þetta mót og það var að klár­ast. Hann fór ekki á mótið og því verk­efni er nú lokið.“

Aðspurð hvar kvört­un­ar­málið stæði nú sagði Guðbjörg: „Það er komið til sam­skipta­ráð­gjafa og er að vinn­ast þar.“ Ekki er hún viss hvenær vænta má nið­ur­stöðu í mál­inu enda mikið að gera hjá sam­skipta­ráð­gjaf­anum. „Það er mjög mikið álag á henni, hún er bara ein.“
Guðbjörg segir engin önnur mál hafa áður komið á borð KKÍ sem tengd­ust Sævaldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi