Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir hægt að byggja 4 leikskóla fyrir fjárveitingu til Hauka: „Peningarnir virðast vaxa á trjánum“

Segir hægt að byggja 4 leikskóla fyrir fjárveitingu til Hauka: „Peningarnir virðast vaxa á trjánum“
Viðar Hall­dórs­son for­maður FH.

Formaður Fim­leika­fé­lags Hafn­ar­fjarðar, Viðar Hall­dórs­son, hefur ritað harð­ort bréf til bæj­ar­full­trúa í Hafn­ar­firði, sem þessi miss­erin eru að fara að taka ákvörðun um að reisa knatt­spyrnu­höll á svæði Hauka við Ásvelli.

Sjálfir hafa FH-ingar á síð­ustu árum reist nokkur hús í Kaplakrika, með aðkomu bæj­ar­ins; Viðar segir hins vegar fram­kvæmd­ina á Ásvöllum of dýra:

„Und­an­farin ár hefur verið mikil og þörf umræða um aðstöðu knatt­pyrn­unnar í Hafn­ar­firði til æfinga og keppni yfir vetr­ar­mán­uð­ina. Íþrótta­full­trú­inn í Hafn­ar­firði skil­aði vand­aðri þarfa­grein­ingu til bæj­ar­yf­ir­valda og í fram­hald­inu fórum við við FH-ingar fram á að byggt yrði knatt­hús í fullri stærð hér í Kaplakrika sem féll vel að nið­ur­stöðu þarfa­grein­ingar íþrótta­full­trú­ans,“ ritar Viðar í opnu bréfi.

Bætir við:

„Umræður og ferli bygg­ingar Skessunnar ætti að vera öllum ljóst en í stuttu máli óskuðum við FH-ingar eftir ódýru og hag­kvæmu húsi sem við sjálf byggðum í sam­vinnu við Hafn­ar­fjarð­arbæ. Bæj­ar­yf­ir­völd vildu hafa umsjón með og fram­kvæma verkið, buðu verkið út á grunni hönn­unar og teikn­inga Fim­leika­fé­lags­ins, lægsta til­boð ríf­lega 1.1 millj­arður króna, sem að mati bæj­ar­yf­ir­valda var of hátt. Í fram­hald­inu var gert sam­komu­lag milli Fim­leika­fé­lags­ins og Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar um bygg­ingu Skessunnar sem hljóð­aði upp á 790 millj­ónir króna.“

Viðar segir að nú eigi að setja tæpa fimm millj­arða í að byggja hús fyrir Hauka, pen­inga sem betur mætti nýta í bygg­ingu grunn­skóla og leik­skóla:

„Í dag virð­ast bæj­ar­yf­ir­völd vera á loka­metrum við ákvarð­ana­töku um bygg­ingu nýs knatt­húss á Ásvöllum sem að lág­marki mun kosta 4.5 millj­arða, byggja einn fót­bolta­völl fyrir ámóta upp­hæð og kostar að byggja góðan grunn­skóla eða fjóra leik­skóla.“

Viðar segir að „árlegur rekstrar- og fjár­magns­kostn­aður knatt­húss af þeirri gerð sem vænt­ingar eru um að reisa á Ásvöllum er ca 322.000.000, kr. (rekstur 98, afskriftir 112 og vextir 112) sem gerir ca. 144.000 kr. pr. not­aðan klukku­tíma. Sam­bæri­legar upp­hæðir vegna Skessunnar (upp­reiknað stofn­virði 1.1 millj­arður kr.) eru 108.000.000,- pr.ár (rekstur 53, afskriftir 28 og vextir 28) sem gerir ca. 37.000 kr. pr. not­aðan tíma.“

Að mati Viðars er Hafn­ar­fjarð­ar­bær að kasta pen­ingum út um glugg­ann með umræddri fram­kvæmd:

„Hvernig rétt­læta núver­andi bæj­ar­yf­ir­völd þessar gríða­lega háu upp­hæðir sem í okkar huga er verið að kasta út um glugg­ann nú í upp­hafi sem stofn­kostn­aður og síðan í ára­tugi hund­ruði millj­óna á árs­grund­velli í rekstur og fjár­magns­kostnað?. Óhóflega há upp­hæð sem bæj­ar­yf­ir­völd hér í Hafn­ar­firði veita í eina ein­staka fram­kvæmd eins og hér er á döf­inni mun vit­an­lega hafa áhrif á fram­lög í aðrar nauð­syn­legar fram­kvæmdir ann­arra íþrótta­fé­laga hér í bæ en ykkur bæj­ar­full­trúum ætti að vera ljóst að t.d. Dans­í­þrótta­fé­lagið, Bretta­fé­lagið, Hnefa­leika­fé­lagið, Golf­klúbb­ur­inn Setberg og Bjarkirnar eru í mik­illi þörf á betri aðstöðu og jafn­vel á hrak­hólum með aðstöðu.“

Viðar er klár á að pen­ing­arnir sem eiga að fara til Hauka vegna húss­ins umtal­aða myndu nýt­ast sam­fé­lag­inu í Hafn­ar­firði vel:

„Fyrir þá millj­arða sem myndu spar­ast við að byggja hús sam­bæri­legt Skess­unni á Ásvöllum væri hægt að stór­bæta aðstöðu fjöl­margra ann­arra íþrótta­fé­laga í Hafn­ar­firði, bæj­ar­búum til mik­illa hags­bóta. Fim­leika­fé­lagið hefur nú á síð­ustu mán­uðum verið að skoða og velta upp þeirri stöðu sem við erum í og einnig hvernig við stöndum fjár­hags­lega með það í huga að millj­örðum sé dreift í önnur félög hér í bæ. Á sama tíma erum við í Fim­leika­fé­lag­inu með eign í mann­virkjum sem nálg­ast tvo og hálfan millj­arð. Svo til öll íþrótta­mann­virki í Hafn­ar­firði utan Kaplakrika eru í eigu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar.“

Hann bendir á að „við FH-ingar höfum verið að remb­ast í ára­tugi með eigin fjár­fest­ingar, lán­tökur (lang­tíma­lán Fim­leika­fé­lags­ins ca. 630 millj­ónir), fjár­magns­kostnað og mikla vinnu til að ná sem hag­kvæm­ustu verðum okkur og við héldum bæj­ar­fé­lag­inu til heilla. En til hvers, það virð­ist öllum vera sama, pen­ing­arnir virð­ast vaxa á trjánum og munum við því á næstu dögum óska eftir form­legum við­ræðum við Hafn­ar­fjarð­arbæ um að þeir kaupi okkar eign­ar­hlut í mann­virkj­unum Í Kaplakrika.“

Bætir við:

„Við sem höfum staðið í stafni Fim­leika­fé­lags­ins nú í ára­tugi teljum okkur hafa þá reynslu og þekk­ingu sem til þarf að meta og ef þarf að taka ákvarð­anir félagi okkar og bæj­ar­fé­lag­inu til heilla. Nú eru liðin 17 ár frá því að okkar frá­bæra knatt­hús Risinn var tek­inn í notkun, sjö ár frá opnun Dvergs­ins og þrjú ár frá opnun Skessunnar. Margir sem lítið hafa komið nálægt upp­bygg­ingu og rekstri alvöru knatt­spyrnu­deilda myndu strax segja að upp­hituð hús er það sem við þurfum hér á landi en reynsla okkar segir annað. Kostir okkar húsa eru t.d. loft­gæði veru­lega meiri, nátt­úru­leg lýs­ing hús­anna er mik­ill kostur og síð­ast en ekki síst eru hús okkar tólf­mán­aða hús en upp­hit­uðu glæsi­hall­irnar í Garðabæ, Kópavogi og Reykja­vík eru ein­ungis sjö mán­aða knatt­hús. Hvað segjum við við því að það koma dagar sem kuld­inn hér á suð­vest­ur­horn­inu fer niður fyrir t.d. mínus fimm gráður? Jú, það ger­ist og mun áfram ger­ast en okkar reynsla er ósköp skýr; við höfum aldrei fellt niður æfingu vegna kulda í hús­unum, æfingar hafa verið felldar niður alltaf öðru hvoru en þá er það um leið og skólum hefur verið lokað vegna ófærðar í Hafn­ar­firði.“

Viðar vill meina að besta knatt­spyrnu­fólk í heimi æfi oft í kulda:

„Bestu knatt­spyrnu­menn heims­ins sem stunda sína atvinnu í Evrópu – margir þeirra veru­lega hátt laun­aðir, allt að þriggja millj­arða árs­laun – eru að stunda sínar æfingar hluta árs­ins í kald­ari aðstæðum en við bjóðum upp á hér í Kaplakrika. Ekki kvarta þeir og ekki eru for­ystu­menn erlendu félag­anna að hafa áhyggjur af auk­inni meiðsla­hættu í kald­ari húsum, eins og einn góður fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sagði í útvarps­við­tali og var þá um leið að reyna að rétt­læta bruðlið,“ segir Viðar og bætir að lokum við:

„Fótbolti er og verður allra veðra íþrótt. Höldum því þannig og hlustum á þá sem raun­veru­lega þekk­ingu á reynslu hafa á þessum málum, í stað þess að lama fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkja í Hafn­ar­firði með marg­földum óþarfa kostn­aði í einn inn­an­húss knatt­spyrnu­völl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi