Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Erfið staða Play – Gunnar Smári: „Hljómar fyrir fjárfestum eins og hryllingsmynd“

Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalista­flokksins, gerið hríð­lækkandi hlutabréfa­verð í íslenska lággjalda­flug­félaginu Play að umtals­efni í nýrri færslu á Facebook. Í ljósi þess að hluta­bréfin hafi fallið um helming á einu ári segir hann fjárfesta horfa til félagsins með hryllingi.

„Hlutabréfa­verð í Play hefur fallið um helming á einu ári. Og það féll enn í gær og í dag eftir tilkynningu um afkomu sem var mun lakari en áætlanir sögðu til um. Og félagið tapaði 430 á þriðja ársfjórðungi, frá júlí-september, sem að öllu jöfnu ætti að vera besti ársfjórðungur flug­félags,“ segir Gunnar Smári á Facebook og heldur áfram á Samstöðinni:

„Fyrir ári síðan var hlutafé Play metið á 19,8 milljarða króna. Í dag er það metið á 9,9 milljarða króna. 9,9 milljarðar króna eru farnir til Money Heaven, eins og maður orðaði það um árið.

Í júní 2021 voru boðnir út 222 milljón hlutir í Play og seldust þeir á 4,3 milljarða króna. Nú er verðmæti þessara hluta 3,1 milljarður króna. Þau sem tóku þátt í útboðinu fyrir tæpu einu og hálfu ári hafa tapað um 1,2 milljarði króna.

Nú vill Play sækja meiri pening. Stefnt er að sækja 2,3 milljarða króna, sem miðað við gengi dagsins væri útboð á um 165 milljón hlutum. Kaupendur í þessum tveimur útboðum ættu eftir það um 45% af hlutum félagsins en upphaf­legir stofn­endur og fjár­festar 55%.

En það á eftir að koma í ljós hvort verð á hlutum í Play haldist og áhugi sé jafn mikill á þessu félagi og stjórn­endur þess vona. Ef verðið fellur er líklegt að nýir hluthafa vilji fá meiri áhrif innan Play og ekki víst að stofn­endur geti haldið meirihluta atkvæða meðan loforð þeirra um árangur ganga ekki eftir.

Myndin er af slagorði Play, sem í dag hljómar fyrir fjár­festum eins og nafn á hryllings­mynd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim