Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
Ragnar Erling Her­manns­son

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og hann talar um millj­arð­inn sem þarf til þess.

Lífs­ganga hans sem er kall­aður Raggi Turner hefur verið þyrnum stráð.

Hvernig byrj­aði neyslu­sagan?

„Ætli það hafi ekki verið þegar ég afneit­aði sjálfum mér á gelgju­skeið­inu, kyn­þroska­aldr­inum. Ég hugs­aði að það hlyti að vera rétt sem allir voru að segja við mig; ein­elti og dót og ég bara trúði því. Ég man ekki eftir að himn­arnir hafi opn­ast en ég man eftir að hafa verið að pína áfengi í mig. Það voru allir aðrir að því. Það voru allir aðrir að gera það. Umhverfið var að segja mér að það væri það réttasta. Þetta er mitt sár,“ segir Raggi í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur.

Hann segir að áfengi hafi aldrei gert mikið fyrir sig. Aðra sögu sé að segja um kanna­bis.

„Þetta byrj­aði með áfengi. Kannabis. Þetta hefur aldrei verið „ég verð að fá“. Mér hefur bara fund­ist það gott. Ég hef fengið mér aðeins til að létta mér upp. Aldrei með­vitað. „Vá hvað ég þarf að slökkva niður til­finn­ingar!“ Ég hef aldrei hugsað þannig með­vitað.“

Ég bjó á kristi­legu með­ferð­ar­heim­ili í Brasilíu í fjögur ár og þar var stórt, opið rými þar sem allir sváfu.

Þá koma klærnar fram

Raggi er heim­il­is­laus og gistir í gisti­skýli úti á Granda.

„Það er opið frá fimm til 10; fimm um eft­ir­mið­dag til 10 næsta morgun.“

Hvað ger­ist ef þið farið ekki út klukkan 10?

„Hringt á lög­regl­una. Ég próf­aði það um dag­inn og það voru ekki stelp­urnar sem eru að vinna þar heldur fengu þær sím­tal.

Mér finnst bara svaka­lega órétt­látt hvernig þessar reglur eru settar upp gagn­vart starfs­fólk­inu sem þarf að fram­fylgja þeim gagn­vart þeim sem eru að nota þjón­ust­una.

Ég fór áðan upp á félags­mála­stofnun uppi á Lauga­vegi og það kom kona og hún var alveg sturluð. Af því að fólk er með svona vonda teng­ingu við þetta kerfi.

Þegar ég og mað­ur­inn minn fyrr­ver­andi vorum að byrja saman þá ætl­aði hann að athuga hvort hann gæti fengið ein­hverja féló­að­stoð meðan hann væri atvinnu­laus og á milli starfa. Þá var ég með allt of háar tekjur. Þá vorum við búnir að gifta okkur reyndar. Þá var það tvö­falt meira heldur en hjóna­upp­hæðin er. Og þessi kona sem sat fyrir framan okkur sem sagði okkur þetta var svo miður sín. Fyrir utan það getur hann aldrei orðið íslenskur rík­is­borg­ari af því að hann sótti um hjá féló.“

Er hægt að breyta ein­hverju í þessu kerfi?

Aftur að gisti­skýl­inu.

Raggi er beð­inn um að lýsa aðstæðum þar og segir hann að hann sofi í fínu, góðu og hreinu rúmi.

„Það eru þrjú svefn­her­bergi á Granda. Það eru fjögur, sex og fimm rúm. Það fer ekk­ert illa um okkur. Ég bjó á kristi­legu með­ferð­ar­heim­ili í Brasilíu í fjögur ár og þar var stórt, opið rými þar sem allir sváfu. Það er aðal­lega prævasíið og annað. Það er bara þessi dínamík með að þurfa að fara út klukkan 10. Allt annað er bara „vá, takk“. Þær þurfa að þrífa eftir okkur skít­inn, þessar elskur; fólk sem hefur jafn­vel aldrei verið í neyslu og þekkir það ekki einu sinni. Og svo bara sprautu­nálar og annað. Bara vá! Ótrúlegt!“

Raggi segir að ekki kom­ist allir að sem þurfi skjól. „Það voru settar nýjar reglur í sumar um 18 manna hámark. Það er ekki Dagur eða Heiða sem þurfa að gera það. En þau sjá um að það sé gert. En það eru þau sem þurfa að fram­fylgja því og fólk hefur verið miður sín. Kona sem er að vinna þarna var miður sín þegar hún þurfti að setja dreng­inn fár­veikan út í rign­ing­una. Þannig að ég spyr: Er hægt að breyta ein­hverju í þessu kerfi?“

Það var grenj­andi rign­ing um dag­inn og við erum ennþá kvef­aðir eftir þessa tvo daga.

Karl­arnir í gisti­skýl­inu þurfa að fara út í hvaða veðri sem er.

„Það var grenj­andi rign­ing um dag­inn og við erum ennþá kvef­aðir eftir þessa tvo daga. Það var svo blautt og það var svo kalt.

Ég er alveg góður en það eru félagar mínir sem deyja fyrir framan mig. Ég er ekki að tala um neitt annað. Þegar er farið að vega að þeim sem mér þykir vænt um þá koma klærnar fram.“

Þeir sem eru að þjást af fíkni­sjúk­dómum eiga bara svo­lítið heimt­ingu á reisn og mann­virð­ingu.

Þau styðja okkur

Frú Ragn­heiður, sem er skaða­minnk­andi úrræði Rauða kross­ins fyrir fólk sem notar vímu­efni í æð, berst í tal og segir Raggi að það úrræði gagn­ist þeim sem það þurfa full­kom­lega.

„Þær eru búnar að skapa vett­vang þar sem fólk getur notað shamel­ess. Á skammar. Án þess að verið sé að segja „ætlar þú ekki að fara að drífa þig í með­ferð?“.

Það eru svaka­lega góð við­brögð frá fólki.

Neyslu­rýmin eru örugg­lega búin að bjarga mörgum manns­lífum af því að þau fá að vera þar inni og það er ekk­ert áreiti. Svo mæta þau með fægiskóflu. Það verður að gera þetta fyrir fíklana. Þeir sem eru að þjást af fíkni­sjúk­dómum eiga bara svo­lítið heimt­ingu á reisn og mann­virð­ingu. Það eru nú ekk­ert allir hrifnir af þessu eins og kall­inn minn fyrr­ver­andi; hann var ekk­ert hrif­inn af því þegar ég fór að líkja rétt­inda­bar­áttu svartra, kvenna, trans og hinsegin við okkar bar­áttu: Fíkla. Ég er ekk­ert sam­mála því. Ég mun hik­laust líkja þeim saman að því leyt­inu til; ég er að tala um stig­mað í sam­fé­lag­inu. Stigmað í sam­fé­lag­inu er það sama og þegar Hörður Torfa var bar­inn og hrækt á hann fyrir 30 árum. Stigmað er svaka­legt. Ég hefði aldrei trúað því. Ég er búinn að vera í homma­heimum og það er ekk­ert minni neysla þar; það er bara annar vett­vangur. Þegar ég kom þarna niður eftir þá komst ég inn í „moodið“ og sá ok, það er absolute stigma. Það eru algerir for­dómar í sam­fé­lag­inu. Þetta er svo vand­með­farið. Nú ætla ég ekki að segja að það sé algert stigma og for­dómar í sam­fé­lag­inu af því að íslenska þjóðin hefur svo sann­ar­lega sýnt annað með stuðn­ingi og við­brögðin við okkar umfjöll­unum í fjöl­miðlum und­an­farna daga; ég ætla að taka þessi orð til baka að miklu leyti af því að það eru svaka­lega góð við­brögð frá fólki. Þau styðja okkur.“

Þú tekur ekki á móti mér nema einu sinni með því að vísa mér í burtu af því að ég er ekki í nógu góðu ástandi til þess að fara að hitta fíkni­sér­fræð­ings­lækni.

Engin innvortis heilun

Raggi seg­ist einu sinni hafa prófað að leita til geð­deildar.

„Ég geri það aldrei aftur. Þú tekur ekki á móti mér nema einu sinni með því að vísa mér í burtu af því að ég er ekki í nógu góðu ástandi til þess að fara að hitta fíkni­sér­fræð­ings­lækni. Þetta er brand­ari. Það er verið að gera grín að okkur. Í raun og veru þá hefur þetta fólk þarna; núna er ég ekki að tala um the nur­ses on the floor en geð­lækn­arnir og þeir sem eru ofboðs­lega mennt­aðir og flottir – ég og félagi minn fórum þangað í morgun en hann ætl­aði að nálg­ast lyfin sín. Hann titrar þegar hann fer þarna inn vegna við­bragð­anna sem hann fær þegar hann kemur þarna inn. Ég ætla að fá að segja það hreint út: Vá hvað ég er þakk­látur fyrir að fá vett­vang til þess. Þetta fólk hefur ekki hunds­vit á því sem það er að gera af því að ef þú skilar ein­stak­lingi frá þér þótt þú heitir eitt­hvað „með­ferð­ar­klínískur geð­læknir“ eða „sál­fræð­ingur“ eða what ever; ef fólki líður svona eins og hann gerði, titr­andi, þá veit við­kom­andi ekki hvað hann er að gera. Please, stop! Þetta geð­batt­er­í­is­dót; jú, þetta er að halda fólki á lífi. SÁÁ er að halda okkur á lífi. Þau eru að halda okkur frá því að vera akkúrat núna í neyslu. Það detta allir í það aftur. Núna er ég að segja að við erum öll í þess­ari hringrás. Ég er búinn að vera AA-maður síðan ég var 19 ára. Af því að sam­tök sem eru búin að lifa af í 90 ár they have somet­hing to say. Samtök eins og AA á Íslandi; þetta eru 300 fundir á viku. Þau halda fólki frá því að vera að stúta sér núna. En það er engin inn­vortis heilun sem við fáum því miður hvergi í augna­blik­inu í því batt­eríi sem er til.

Hvað er meira í boði? Það er grúppa. Spurðu þau hvað er meira í boði. Það er ekk­ert. Þegar ein­hver dettur í það eftir fimm til 10 ár og fer á sama stað: Hvað segir það okkur?“

AA-sam­tökin mega bara eiga það skuld­laust að það hafa millj­ónir orðið alveg edrú í 30-40 ár.

Þetta snýst meira um að lifa?

„Algjör­lega. Ekki vera að drepa mig núna með vodka. AA-sam­tökin mega bara eiga það skuld­laust að það hafa millj­ónir orðið alveg edrú í 30-40 ár. Ég veit að það er fólk þarna úti sem er bara að reyna að finna lausnir fyrir okkur með húnæsði og allt. Ég var með eina í sím­anum áðan: Minn draumur er að kom­ast að í hús­næði, helst stórt, kannski aðeins fyrir utan Reykja­vík. Ég hef fengið raun­veru­leg verk­færi til heil­unar frá fólki sem ég þekki; sem ég kynnt­ist uppi á Kjal­ar­nesi. Raun­veru­legt verk­færi. Og það heitir bara tromma. The frequency of the sound. Hljóð­bylgj­urnar. Þær heila.“

Nú er alheim­urnn að segja it’s time, everybody united. Help each other. Hjálpið hvert öðru.

Okkur vantar bara einn

Raggi er spurður hvað hann vilji sjá gert fyrir hann og þá sem eru í sömu sporum.

„Akkúrat núna að við þurfum ekki að fara út í kuld­ann. Svo að vita hvort það séu ekki ein­hverjir þarna úti; á ég að kalla þá sægreif­ana? Elsku bestu HB Grandi, Samherji og allir þið sem eruð með millj­arð­ana okkar: Okkur vantar bara einn. Og ég skal bjarga þessu. Ég skal redda þessu svona. Watch me. Einn millj­arð af þessum hund­ruðum sem þið eruð að skipta á milli ykkar í gróða og arð. Okkur vantar bara einn. Þá get ég keypt hús­næði, stórt og mikið.“

Hann talar um að þar væri hægt að búa til sam­fé­lag þar sem sköpuð yrði orka í umhverf­inu og þar sem fólki liði alltaf vel.

„Og það er hægt. Ég hef búið í þannig sam­fé­lagi á Skraut­hólum hjá Lindu minni á Kjal­ar­nesi. Konan sem sá til þess að ég get setið hér í dag without shame og notað ork­una mína til þess að gagn­rýna. Hún heitir Linda Mjöll Stef­ándsóttir og hún kenndi mér að skamm­ast mín ekki fyrir hver ég er. Það varð til þess að ég get notað ork­una mína á þann hátt eins og maður á að gera. Þessi kona er búin að vera með and­legt sam­fé­lag uppi á Kjal­ar­nesi í nokkur ár. They know the heal­ing stuff, skil­urðu.

Það er hægt að redda heim­il­is­lausa­vand­anum og fíkni­vand­anum.

Nú er alheim­urnn að segja it’s time, everybody united. Help each other. Hjálpið hvert öðru. Aðstoðið. Gerið eitt­hvert gagn sem komið hingað á jörð­ina. Now it is. Núna er tím­inn. Fyrir kortéri síðan hefði þessi umfjöllun aldrei gengið af því að núna er hug­ar­far fólks, sam­kennd og annað, bara að rísa. Og mér finnst það geð­veikt að fylgj­ast með því. Það er hægt að redda heim­il­is­lausa­vand­anum og fíkni­vand­anum; það yrði með­færi­legra að fá hús­næði þar sem við gætum bara verið með þessi verk­færi, með þetta compassion; sam­kennd­ar­orku­um­hverfi. Við sendum alltaf fólkið aftur út í sam­fé­lagið sam skap­aði draslið. Það er eng­inn árangur að fara að nást.

Þegar þú kemur úr með­ferð þá þyrftir þú bara að vera í sam­fé­lagi sem væri eins og Krísuvík til þess að halda áfram. Þegar þú kemur í Krísuvík er beauti­ful orka. En hún er ekki til staðar í miðbæ Reykja­víkur.“

Ef þú átt millj­arða inni á bók; elsku hjörtun mín. Þessir sjóðir eru ekki að gagn­ast neinum inni á banka­bók en þú getur gert svo brjál­æð­is­lega fal­lega hluti bara með því að hringja. Það þarf eng­inn að vita hvert þú ert. Bara let’s do it. Kaupa hús.

Ef þú átt milljarða inni á bók

Raggi vill þakka fyrir stuðn­ing­inn.

„Fólk hefur komið með vindla­kassa og alls konar niður á skýli til okkar. Takk. It really helps. Takk fyrir stuðn­ing­inn. Það hjálpar mér að halda áfram að gera það sem ég er að gera. Ef ég væri ekki að finna allan þennan með­byr frá sam­fé­lag­inu þá væri ég bara að fara að keyra strætó. Þá væri ég bara að að fara að gera eitt­hvað annað. Af því að það er það sem knýr mig áfram. Þannig að takk fyrir það. Ég er ekki að fara að hætta þessu svo fram­ar­lega sem við stöndum öll saman og nú ríður á það hver er þarna úti. Ef þú átt millj­arða inni á bók; elsku hjörtun mín. Þessir sjóðir eru ekki að gagn­ast neinum inni á banka­bók en þú getur gert svo brjál­æð­is­lega fal­lega hluti bara með því að hringja. Það þarf eng­inn að vita hvert þú ert. Bara let’s do it. Kaupa hús. Það væri hægt að gera þetta á mjög ein­faldan og fljót­legan hátt þannig að það væri hægt að redda rosa­lega miklu. Okkur vantar rosa­lega mikið af pen­ingum akkúrat núna og ég trúi því að bara ein­hver einn aðili geti það.

Þetta er ekki smart ef það á aldrei að gera neitt við það.

Please sýnið okkur að ykkur sé ekki sama. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Fjár­mála­fyr­ir­tæki. Þessir millj­arðar sem fólk er að stæra sig af að vera gróði og hagn­aður af þessum fyr­ir­tækjum; þetta er ekki smart ef það á aldrei að gera neitt við það. Þannig að ég er svo­lítið þarna: Minn draumur er stórt og mikið hús­næði til að búa til þetta sam­fé­lag. Þannig að er ein­hver með mér í því?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ