Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Rússnesku hjónin Anton og Viktoria verða send úr landi á miðvikudaginn: „Þetta er ekki réttlæti“

Útlendinga­stofnun hefur nú neitað rússnesku hjónunum Anton og Viktoriu Garbar um hæli hér á landi.

Viktoria og Anton

Mannlíf gerði frétt fyrir skemmstu þar sem rætt var við Anton en hann var þá að kvarta yfir hávaða á Hótel Sögu þar sem hann dvaldi ásamt eiginkonu sinni og fleirum hælis­leitendum. Bæði byrjuðu framkvæmdir á hverjum degi fyrir klukkan átta á morgnana og bruna­vörnin var biluð og fór í gang reglulega með tilheyrandi svefn­truflunum.

Sjá einnig: Hælis­leitendur kvarta undan stöðugum hávaða: „Mér líður í raun hræðilega“

Hjónin komu hingað til lands fyrir sjö mánuðum eftir að hafa flúið heima­landið Rússland en þau voru bæði virk í mótmælum gegn innrás Pútíns inn í Úkraínu og var þeim því ekki stætt á að dvelja lengur þar í landi. Í morgun hringdi lögreglu­maður í Anton og tjáði honum að þeim hafi verið neitað um hæli og að þau yrðu flutt til Mílanó á Ítalíu klukkan fimm á miðvikudags­morgunn. Þess má geta að hjónin ráku ferða­þjónustu í Rússlandi sem hefur í fjögur ár átt í samskiptum við Ísland en einmitt þess vegna sóttu þau um hæli hérlendis.

Aðspurður hvað tæki við þeim í Mílanó svaraði Anton: „Ég veit það ekki … ég veit bara að aðstæðurnar á Ítalíu eru ekki góðar. Þar er engin vinna fyrir okkur, húsnæði, hjálp eða annað.“ Anton sendi línu á mann­réttinda­samtök í Mílanó-borg varðandi hýsingu en svörin voru á þá leið að þau gætu litla hjálp fengið á meðan verið væri að fara yfir mál þeirra á Ítalíu en að mögulega gætu þau fengið inni í sérstökum flóttamanna­búðum eða miðstöð flótta­manna.

Í síðustu viku gerði Anton heiðar­lega tilraun til að ná tali af Jóni Gunnars­syni dómsmála­ráðherra og höfða til mennsku hans, þegar hann tók eftir honum fara inn í bíl við Alþingis­húsið. Jón hafði hins vegar engan áhuga á samtali og keyrði í burtu. Anton var einnig að reyna að rétt honum skjöl með upplýsingum um þau hjónin en þar er farið rækilega yfir ástæðu þess sem þau sótt um hæli á Íslandi. Það sem Anton heyrist segja í mynd­bandinu við Jón er eftir­farandi: „Er of erfitt að opna glugga og taka við þessum upplýsingum um okkur? Þetta er ekki réttlæti.“

Hægt er að sjá samtalstilraunina hér fyrir neðan:

Þau Anton og Viktoria hafa ekki gefið upp alla von um að fá að vera hér en þau stofnuðu undir­skriftar­söfnun þar sem þess er krafist að þau fái hér dvalar­leyfi. Hægt er að skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag