Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

16 ára sendir Degi bréf: „Ég er komin með nóg af því að minn eigin borgarstjóri pælir ekkert í mér“

Mynd. Skjáskot/Ríkisútvarpið
Mynd. Skjáskot/Rík­is­út­varpið Mynd: Eggert Þór Jónsson

16 ára íbúi í Grafar­holtinu hefur fengið nóg af aðgerðar­leysi Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra þegar kemur að þjónustu við úthverfi borgarinnar, einkum nú þegar allt er á kafi í snjó. „Þú ert hluti af ástæðunni af hverju margir eru að flytja úr Reykjavík,“ segir hinn ungi íbúi meðal annars í bréfi sínu.Margir borgar­búar eru þessa dagana svekktir út í Dag og hans fólk þegar kemur að viðbragði borgarinnar gagnvart snjó­mokstri. Nú á þriðja degi situr fólk ennþá fast með bíla sína þar sem íbúagötum er lítið sem ekkert sinnt í borginni.Grafar­holtsbúinn Anya María hefur fengið nóg og hefur sent Degi bréf. Hún er vikilega pirruð út í borgar­stjórann sem hugsi fyrst og fremst vel um miðbæjar­elítuna.

„Sæll, Dagur

Ég sendi þennan póst til þess að kvarta persónu­lega til þín um hversu illa þú hugsar um úthverfin í Reykjavík. Ég bý í Grafar­holtinu og fólkið hér kemst ekki út úr hverfinu nema á jeppa. Það er alls ekki búið að moka nógu vel frá vegunum og ég veit að það er mjög vel mokað og skafið nær 101.

Fólk þarf að komast í vinnu og að versla en kemst ekki neitt vegna þess að það er bara algjör­lega ófært hérna og það er ekki eins og að það sé brjálað veður ennþá þannig það er alveg hægt að laga til hérna. Ég er 16 ára og geri mér fulla grein fyrir því að þú ert ekki að standa þig í þessu máli líkt og öðru tengt úthverfum.

Þú vilt bara byggja hérna og eyðilegga náttúruna hjá Reynis­vatni en sem betur fer náðu stelpur sem voru í GRUNNSKÓLA á þeim tíma að stoppa þig. Ég er komin með nóg af því að minn eigin borgar­stjóri pælir ekkert í mér og hverfinu mínu, þú ert hluti af ástæðunni afhverju margir eru að flytja úr Reykjavík.

Ég myndi virkilega meta það ef þú gætir gert eitthvað þannig að fólk á fólks­bílum (sem er meirihluti íbúanna hér í Grafar­holti) komist út úr hverfinu. Það er ekki lengur skoðun að líka ekki vel við þig heldur er það orðin staðreynd að þú ert að standa þig illa gagnvart úthverfum.

Kv. Anya María Mosty, pirraður Reyk­víkingur“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis