Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Opið bréf snjómokstursverktaka til íslensku þjóðarinnar: „Gleðin alltaf minnkað meira og meira“

Opið bréf snjómokstursverktaka til íslensku þjóðarinnar: „Gleðin alltaf minnkað meira og meira“

Rúnar Ingi Árdal snjó­mokst­urs­verk­taki seg­ist oft mæta ömur­legu við­móti frá fólki en hann hefur und­an­farin 11 ár rutt snjó á Akureyri. Hann segir starf sitt vera það van­þakk­látasta starfar sem hann hefur unnið við og biðlar til íslensku þjóð­ar­innar um við­horfs­breyt­ingu.

Rúnar ritar langan pistil á Facebook þar sem hann lýsir vel því við­móti sem íslenskir snjó­mokst­ur­menn fá hjá löndum sínum. Við skulum gefa hinum norð­lenska snjó­mokst­urs­verk­taka ein­fald­lega orðið:

„Ég vinn hjá verk­taka í snjó­mokstri. Í kringum síð­ustu mán­aða­mót kom snjór­inn en þegar hann kom var það af fullri alvöru. Flestum finnst snjór­inn vera svo jóla­legur og fal­legur en ég sé bara vekjara­klukk­una stillta á hánótt og þreytu. Þetta er 11. vet­ur­inn sem ég vinn við mokstur og mér hefur alltaf þótt það gaman en síð­ustu ár hefur gleðin alltaf minnkað meira og meira.

Það snjó­aði 2 daga í lok nóv­em­ber en samt féll snjó­dýpt­ar­met fyrir þann mánuð frá upp­hafi mæl­inga, 75cm, des­em­ber­metið féll strax í byrjun mán­aðar, 105cm yfir öllu. Það sem komst næst því var 100cm árið 1965. Við hjá fyr­ir­tæk­inu sem ég vinn hjá mokum plön fyrir hátt í 50 fyr­ir­tæki á hverri nóttu ef snjóar, þurfum að fylgj­ast með hvort snjói og hvað mikið því ekki má maður eyða pen­ingum fyrir kúnnan og moka eitt­hvað sem er ekki neitt.

Þessi plön þurfa að vera klár fyrir opnum hjá fyr­ir­tækj­unum og svo þurfum við að vera til taks fyrir Akur­eyr­arbæ ef það er hringt. Því fleiri vélar sem bær­inn vill fá því fyrr þurfum við að fara á fætur til að ná að klára fyrir fyr­ir­tækin á réttum tíma. Þegar bæj­ar­vinnan er búin á dag­inn þá taka hús­fé­lög og ein­stak­lingar við.

Í snjó­magni eins og kom á 2-3 sól­ar­hringum um síð­ustu mán­aða­mót er alveg sama hvað við förum snemma á fætur, það er allt í hers höndum og allir reyna að gera sitt besta til að gera eitt­hvað fyrir alla kúnnan. Það verður hins vegar ekk­ert 100%, tím­inn er ekki nægur, plan sem venju­lega er mokað á klukku­tíma tekur 2,5 tíma og svo fram­vegis.

Ég var svo hepp­inn að eign­ast mitt fyrsta barn í sept­em­ber, ynd­is­lega stúlku. Ég get ekki sagt að ég hafi hitt hana fyrstu 10 daga des­em­ber­mán­aðar, við vinnu­fé­lag­arnir vorum allir að vinna 15-18 tíma á sól­ar­hring og ekk­ert annað í boði en að vakna þegar klukkan hringdi. Konan mín er í fjar­námi frá háskóla í Skotlandi og var að skila verk­efnum á þessum tíma og í ofaná­lag varð litla skottan veik, ég var sjálfur með 38.5 í nokkra daga og hef sjálf­sagt smitað litla greyið. Þannig fjöl­skyldu- og heim­il­is­lífið var ekki upp á marga fiska. Þetta er svo sem allt gott og blessað, ég veit við hvað ég vinn og það koma tarnir sem klár­ast alltaf fyrir rest.

En nú kemur til­gang­ur­inn með þessum skrifum. Snjó­mokstur er van­þakk­látasta starf sem ég hef unnið, þarna kynn­ist maður því hvað fólk getur látið út úr sér við aðra ein­stak­linga, orð sem ég vona að litla stelpan mín eigi aldrei eftir að læra. Við mokum vit­laust, snjór­inn er fyrir, það er ekki mokað nógu vel hjá þessu húsi, af hverju er þessi gata ekki mokuð fyrst og svo fram­vegis. Svo ég tali nú ekki um það sem fólk skrifar á sam­fé­lags­miðl­ana.

Við mokst­urs­menn­irnir ráðum þessu ekki. Það er fram­kvæmda­mið­stöð sem er að kaupa verk­tak­ana í vinnu hjá sér og við gerum það sem okkur er sagt að gera. Ég ásamt fleirum fórum og hjálp­uðum konu niðri á Eyri um dag­inn sem var föst, ég var að moka í næstu götu og nágranni hennar kom og bað mig að ýta með sér sem ég gerði að sjálf­sögðu. Hún las mér pistil­inn af hverju væri ekki búið að moka hennar götu og svo fram­vegis. Ein­hvers­staðar þarf að byrja og það er ekki hægt að byrja á göt­unni hjá öllum því miður sagði ég og hjálp­aði svo hinum að ýta og hún komst leiðar sinnar án þess að þakka fyrir sig.

Fólk notar mið­fing­ur­inn óspart á okkur snjó­mokst­urs­menn­ina, treður sér inn í göt­urnar sem við erum að moka kannski bara til að keyra í gegn þó það sé önnur fær gata við hlið­ina sem skilar fólki á sama áfanga­stað, oft fer sami bíll­inn margar ferðir í gegn. Einn var svo ósvíf­inn að segja vinnu­fé­laga mínum að það þyrfti að hreinsa vel hjá sínu húsi, hann ætti fatlað barn. Þetta gerðum við sam­visku­sam­lega í mörg ár, í hvert skipti sem gatan var mokuð en komumst svo að því að þessi maður átti ekki og hafði aldrei átt fatlað barn. Við erum allan dag­inn að taka ákvarð­anir, er bíll undir snjónum þarna, er kant­steinn­inn hérna, hvar er aftur brunn­lokið sem stendur uppúr mal­bik­inu þannig maður hangir í belt­inu ef maður keyrir á það. Við erum allir þreyttir og mann­legir, gerum mis­tök og skemmum hluti, en varla vilj­andi er það?

Fólk færir oft ekki bíl­inn sinn úr göt­unni þó það sé búið að horfa á mann út um glugg­ann allan tím­ann og kemur svo út þegar maður er búinn að brasa allt í kringum bíl­inn og færir hann aðeins svo hann standi á auðu. Sumir bílar fær­ast aldrei allan vet­ur­inn og sumum er ekki hreinsað af þannig maður heldur að þeir séu snjó­haugur. Sem betur fer eru svo aðrir sem koma út á eld­ings­hraða og græja þetta án vanda­mála.
Svo bilar vélin hjá manni, það fer mjög illa með tækin að moka snjó, ef maður er hepp­inn þá getur maður látið draslið hanga fram að hádeg­is­mat og gert við þá og gripið bara ristað brauð á kaffi­stof­unni, ann­ars þarf maður að fara og gera við eins hratt og hægt er og halda svo áfram að moka.

Sem betur fer eru aðrir sem eru góðir og kurt­eisir, við fáum veif, bros eða kannski smáköku í vél­ina, fólk sem skilur að við erum að gera okkar besta og vel það. Það sem ég vil segja með þessum skrifum er að það liggur ekki alltaf lífið á, það er oft hægt að taka smá krók eða jafn­vel bíða bara smá stund. Það verður eng­inn rek­inn úr vinnu þó við­kom­andi þurfi að bíða eftir snjó­mokst­urstæki eða ég vona ekki. Verum góð hvort við annað segir ein­hvers staðar og notum end­ur­skins­merki.

Með ósk um gleði­leg og von­andi rauð jól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina