Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ekkert lát á ruslutunnustríðinu á Seltjarnarnesi: „Þá byrjaði hann að kasta í mig bjórflöskum“

Hanna Kristín Skaptadóttir og Steingrímur Sævarr Ólafsson Myndin er samsett
Hanna Kristín Skapta­dóttir og Stein­grímur Sævarr Ólafsson Myndin er sam­sett

Hanna Kristín Skafta­dóttir, móðir á Seltjarnarnesi, segist engan frið fá fyrir kærasta nágranna síns, Steingrími Sævarri Ólafssyni almanna­tengli. Á dögunum birti hún myndskeið sem sýndi Steingrím í óðaönn við að færa rusla­tunnur fjöl­eigna­hússins fyrir bíl hennar í innkeyrslunni við húsið. Í kjölfarið hafði hún samband við lögreglu.

Mannlíf setti sig í samband við Hönnu Kristínu og spurði hver viðbrögð lögreglu hefðu verið:

„Viðbrögð lögreglu voru dræm þar sem Stein­grímur virðist alltaf ná að bulla lögregluna á sitt band,“  segir hún.

Þá segist hún ekkert hafa heyrt frá Steingrími sjálfum en að hann haldi áfram að pönkast og valdi henni og fjöl­skyldu hennar sem og öðrum íbúum hússins ónæði.

Setti jólasdrasl þar sem tunnurnar voru

Svo virðist sem ósætti ríki um stað­setningu rusla­tunnanna við húseignina. Hanna Kristín segir Steingrím hafa haldið áfram að baksa og færa til tunnurnar: „Hann færði til tunnurnar á stað sem hentar öllum illa og erfitt fyrir sorp­hirðingar­fólk að nálgast, […] og setti jóladrasl á staðinn upp við húsið þar sem tunnurnar eiga að vera“.

Jóla­skrautið sem Stein­grímur setti upp þar sem rusla­tunnur hús­ins hafa ævin­lega verið. Mynd/aðsend
Mynd/aðsend

Hanna Kristín segir einnig frá því hvernig Stein­grímur hafi á dögunum fært til hurð sem hefur verið í geymslu í sameign hússins. Hurðin tilheyri kærustu Steingríms og hafi hann stillt henni þannig að hún hindraði aðgengi að þvottasnúrnum í sameiginlegu þvotta­húsi:„Það er hurð á vergangi í sameign sem tilheyrir þeirra húseign sem hann er alltaf að færa til,“ segir Hanna Kristín og greinir frá að fjöl­skyldan hafi því ekki getað hengt upp þvottinn sinn.

Þrykkti í hana bjór­flöskum

Hanna Kristín útskýrir nánar hvernig aðför gegn henni og fjöl­skyldu hennar hafa staðið í næstum ár. Hún sendi Mannlífi myndskeið þar sem Stein­grímur Sævarr grillar í sumar og vill hún segir að hann hafi vísvitandi stillt grillinu svo reykinn beindi að svölum hennar.„Dóttir mín er með slæman astma og faðir dóttur minnar er læknir – hann þurfti að senda fólkinu email um alvarleika reyk­málsins vegna heilsu hennar, eftir að ég hafði ítrekað beðið Steingrím að hætta.“Aðspurð hvort aðrir íbúa hússins hafi blandað sér í málin segir Hanna Kristín: „Þau gripu nú inn í þetta grillmál þegar Stein­grímur var farinn að þrykkja flöskum í mig upp á svalir.“„Þegar ég bað hann að slökkva eldinn þá byrjaði hann að kasta í mig bjór­flöskum þar sem ég stóð á svölunum. Þá hringdi ég á lögregluna.“

Skjáskot frá aðsendu mynd­skeiði

Upplifir að öryggi sínu sé ógnað

Húsið er þríbýli og ekkert starfrækt húsfélag er í húsinu. Hanna Kristín segir að  sökum ástandsins sett upp öryggis­myndavélar og upplifir að öryggi hennar sé ógnað: „Svona ástand getur verið mjög scary og hættulegt“. Hún sýnir Mannlífi myndband sem sýnir umrædda nágranna­konu, kærustu Steingríms Sævarrs, kasta möl að tröppum og útidyra­hurð hennar í sumar að tilefnis­lausu. „Ég held það sé tíma­spursmál um hvenær þau fara í eigna­spjöll,“ bætir hún við.Hanna Kristín er komin með lögmann í málið og hyggst leggja fram kæru.Sjá nánar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna