Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir aðkomuna í fjósinu í Skagafirði skelfilega: „Svo mikil eymd í augunum á dýrunum“

Uppljóstrarinn sem sendi ljós­myndir og myndskeið á Mannlíf, segir aðkomuna í fjósi búfénaðarins í Skaga­firði sem Mannlíf sagði frá, fyrstur fjölmiðla í gær, hafa verið skelfi­lega.

„Ég fékk ábendingu fyrir nokkru síðan um slæma meðferð á naut­gripum og ákvað bara að gera mér ferð norður í land,“ sagði heimildar­maður Mannlífs og hélt áfram. Fór hann í skjóli næturs á bónda­bæinn og tók ljós­myndir og myndskeið sem Mannlíf hefur nú undir höndum. En hvernig var aðkoman? „Þarna voru gripir sem voru verulega vannærðir og sumir hverjir grind­horaðir. Og það er svo mikil eymd í þessu húsi. Svo mikil eymd í augunum á dýrunum. Þarna var allt í skít og drullu og alltof þröngt í stíunum hjá naut­gripunum,“ sagði heimildar­maðurinn og bætti við að í húsinu hafi einnig verið fjöldi kinda sem hann hafi verulegar áhyggjur af.

Dýrin vaða mykju upp á hné.

„Tíminn stoppar þarna, þetta er svo mikill hryllingur,“ segir heimildar­maðurinn og er mikið niður fyrir. „Og hryllingur er sá líka að þeir sem eiga að hugsa um velferð skepna, stofnun sem heitir Mast, hún er gjör­samlega vanhæf. Hún er búin að sanna það og sýna og þetta mál er bara skólabókar­dæmi um það.“

Enginn bóndi fer svona með dýrin sín

Segir heimildar­maðurinn ennfremur að málið snúist um það hvernig eftirlits­menn hér á landi hagi sér „og hafa komist upp með það í mörg ár.“ Bætir hann við: „Þetta er þver­brotið, meðferðin á dýrunum og aðbúnaður. Þetta er til dæmis bara skemma sem var ekki hugsuð fyrir dýr. Gólfið er mold til dæmis. Þannig að allar reglur eru þver­brotnar. Og ég hermi þetta allt saman upp á Mast, þetta er á þeirra ábyrgð. Þetta er punkturinn yfir I-ið. Stofnunin er bara rúin trausti.“

Heimilda­maðurinn segist núna vilja sjá Svandísi Svavars­dóttur matvæla­ráðherra stíga fram í þessu máli, því það sé grafal­varlegt.

Vildi heimildar­maðurinn einnig koma því á framfæri að ekki sé við alvöru bændur að sakast. „Enginn bóndi fer svona með dýrin sín. Þessi maður er eitthvað allt annað en bóndi.“

Að lokum vill heimildar­maðurinn spyrja tveggja spurninga: „Erum við neytendur að borða þetta kjöt? Tekur eitthvað sláturhús við þessum gripum?“

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið úr fjósinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim