Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Mast svarar Dýraverndarsamtökum Íslands: „Myndirnar voru ekki í samræmi við aðstæður“

Matvæla­stofnun segir ljós­myndirnar sem Mannlíf hefur birt af aðbúnaði og slæmu ástandi nautgripa á bæ í Skaga­firði, ekki í samræmi við það sem eftir­listmenn stofnunarinnar sáu í ferðum sínum á bæinn.

Matvæla­stofnunin skrifaði rétt í þessu athuga­semdir á heimasíðu sinni vegna tilkynningar sem Dýra­verndunar­samband Ísland varðandi slæma meðferð á dýrum í Skaga­firði. Þar útskýrir Mast að í þrígang hafi fulltrúi stofnunarinnar farið í eftirlits­ferðir á bónda­bæinn eftir ábendingar en ekki séð neitt sem hægt var að gagnrýna, fyrir utan smávægileg frávik um hreinlæti nokkurra gripa og athugasemd við herðakamsbslá. Segir Mast að þær myndir sem Dýraverndar­félag Íslands vísar í og Mannlíf hefur birt, séu ekki í samræmi við það sem eftirlits­menn stofnunarinnar hafi séð á bænum.

Tilkynningu Mast má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Matvæla­stofnun vill koma eftir­farandi á framfæri vegna tilkynningar sem Dýra­verndunar­samband Íslands sendi frá sér þann 2. febrúar sl. um dýr í neyð á Norður­landi og kröfu um tafar­lausar aðgerðir af hálfu yfirvalda í málinu.

Eftirlit Matvæla­stofnunar sýndi fram á að naut­gripir sem um ræðir voru hvorki í neyð né horaðir.

Matvæla­stofnun framkvæmdi eftirlit á viðkomandi bæ þann 16. nóvember sl. Eftir­litið sem var óboðað fór fram vegna ábendingar sem stofnuninni barst um slæman aðbúnað nautgripa á bænum. Frávik um hrein­leika nokkurra gripa og athugsemd við herðakambslá var skráð en önnur skoðunar­atriði reyndust í lagi. Við eftir­litið var ekki mikill skítur undir naut­gripum og hálmur var til staðar.  Fyrr­nefndar athuga­semdir voru ekki tilgreindar sem  alvarleg frávik og í samræmi við skráð verklag var veittur hefð­bundinn frestur til úrbóta.

Í kjölfar eftirlitsins barst stofnuninni önnur ábending um slæman aðbúnað á sama bæ og fylgdi Matvæla­stofnun ábendingunni eftir þann 6. desember sl.  Ekki var tilefni til að skrá frávik.

Þann 30. janúar sl. fylgdi Matvæla­stofnun eftir þriðju ábendingunni sem stofnuninni barst vegna aðbúnaðar á bænum. Ekki var tilefni til að skrá frávik.

Þær myndir sem Dýra­verndunar­sambandið vísar til í yfir­lýsingu sinni og sendar hafa verið til stofnunarinnar gefa ekki rétta mynd af holdafari naut­gripanna eða aðstæðum á bænum á fyrr­nefndu tímabili. Myndirnar voru ekki í samræmi við aðstæður eins og þær hafa birst eftirlits­mönnum stofnunnarinnar í þau þrjú skipti sem stofnunin hefur fylgt eftir ábendingum um umhirðu og aðbúnað nautgripa á bænum og kemur fram í eftirlits­skýrslu stofnunarinnar.

Búfjár­hald á bænum mun sæta reglu­bundnu eftirliti áfram.

Skoðunar­atriði eru metin í samræmi við skoðunar­handbók sem gefin hefur verið út varðandi naut­gripaeldi: https://umsokn.mast.is/onequalityweb/Displaydocument.aspx?itemid=276364209870730246241

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim