Sprengjuhótun var send á fleiri stofnanir í Reykjanesbæ í morgun, þar með talið á leiksskólann Akur en ekki þótti ástæða til að rýma skólann.
Mannlífi barst skjáskot af tölvupósti frá leikskólanum Akur í Reykjanesbæ en þar er sagt frá sprengjuhótun sem skólanum barst. Tekið er fram í bréfinu að ekki hafi þótt ástæða til að rýma skólann eftir að samráð var haft við lögregluna. Hótunin var á ensku, rétt eins og sú sem barst Ráðhúsi Reykjanesbæjar og var talið afar ótrúverðug, samkvæmt tölvupóstinum.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir