Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tollfrjáls kjúklingur flæðir inn á markaðinn – Heiðurskonsúll Rússa flytur inn kjúkling frá Úkraínu

Tollfrjáls kjúklingur flæðir inn á markaðinn – Heiðurskonsúll Rússa flytur inn kjúkling frá Úkraínu
Ágúst Andr­és­son. Myndin er sam­sett

Ágúst Andr­és­son, yfir­maður kjöt­vinnslu hjá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, er jafn­framt heið­urs­konsúll Rúss­lands á Íslandi. Hann er ásamt öðrum stjórn­endum KS ábyrgur fyrir inn­flutn­ingi á kjúklingi frá Úkraínu. Á síð­asta ári flutti Kjöt­vinnslan Esja gæða­fæði, sem er í eigu KS, inn um 40 tonn af kjúklingi frá Úkraínu í gegnum Litháen. Þá flutti Kjöt­mark­að­ur­inn, sem teng­ist einnig KS, inn rúm­lega 23 tonn á síð­asta ári og byrjun þessa árs. Land­bún­að­ar­af­urðir frá Úkraínu eru toll­frjálsar eftir að Alþingi sam­þykkti frum­varp á síð­asta ári til stuðn­ings Úkra­ínu­mönnum í stríð­inu við Rússa. Gríð­ar­legir hags­munir eru undir enda kostar um 600 krónur að flytja inn hvert kíló sem þá leggst ofan á verðið á kjöt­inu.

Gagnrýnt er af íslenskum kjúklinga­bændum að kjúkling­ur­inn sem Esja flytur inn sé ekki upp­runa­merktur og jafn­vel látið í það skína að hann sé rækt­aður og fram­leiddur á Íslandi. Þykir skjóta skökku við að fyr­ir­tæki í eigu bænda grafi undan íslenskum hags­munum. Þess utan er gagn­rýnt að toll­frelsi gildi um vöru sem ekki er hefð fyrir að flytja inn til lands­ins. Þetta var í fyrsta sinn sem kjúklingur var fluttur inn frá Úkraínu sem þýddi að skilt er að gera áhættu­mat áður en kjúkling­ur­inn fer í sölu inn­an­lands. Áhættu­mat var ekki gert í til­viki Skag­firð­ing­anna og fóru alls 80 tonn af úkra­ínskum kjúklingi inn í landið í fyrra­haust. Gagnrýnt er að varan hafi ekki verið inn­kölluð eftir að í ljós kom að ekk­ert áhættu­mat hafði farið fram.

við höfum tekið ákvörðun um að borga fullan toll

Aðrir inn­flytj­endur fengu ekki að flytja inn kjúkling án þess að slíkt mat færi fram. Þeirra á meðal er Ó. Johnson og Kaaber sem voru með allt sitt fast í tolli. Ágúst Andr­és­son full­yrti við Bænda­blaðið að Esja hefði greitt fullan toll af kjúklingnum en þeir ættu hugs­an­lega end­ur­greiðslu­rétt. „En við höfum tekið ákvörðun um að borga fullan toll af þessu eins og öðru,“ segir hann við Bænda­blaðið. Ekki liggur fyrir hvort fyr­ir­tæk­inu var gert að greiða þennan toll ásamt álagi sem kemur til ef rangar upp­lýs­ingar eru gefnar um vöru.

Guð­mundur Svav­ars­son, for­maður deildar kjúklinga­bænda hjá Bænda­sam­tök­unum, segir við Bænda­blaðið að inn­flutn­ing­ur­inn vekji ugg. Áhyggjur manna snúi að því að kjötið komi frá vinnslum sem lúti ekki sömu heil­brigðis­kröfum og ger­ist hér­lendis. Við höfum áhyggjur af mik­illi sýkla­lyfja­notkun og enn fremur hvernig staðið er að fram­leiðsl­unni með til­liti til dýra­vel­ferðar og sjúk­dóms­vald­andi örvera,“ sagði hann við Bænda­blaðið.

Nú er komið á dag­inn að spreng­ing hefur orðið í inn­flutn­ingi af kjúklingi. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru flutt inn 107,5 tonn af kjúklingi frá Úkraínu í nýliðnum jan­úar. Stærstur hluti af því er, sam­kvæmt inn­flutn­ings­tölum, af svoköll­uðum lausa­göngu­hænsnum eða 102,2 tonn. Guð­mundur Svav­ars­son sagði við Mannlíf að mikil áhætta væri sam­fara slíkum inn­flutn­ingi ef litið væri til sjúk­dóma­hættu.

Uppfært: Guð­mundur Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Kjöt­mark­að­ar­ins, segir við Mannlíf að engin mis­tök hafi verið gerð þar er varðar inn­flutn­ing á kjúklingi.

„Kjöt­mark­að­ur­inn flutti ekki inn kjúkling á síð­asta ári frá Úkraínu heldur fimm tonn frá Litháen. Kjöt­mark­að­ur­inn hefur flutt inn á þessu ári 18 tonn af kjúkling frá Úkraínu og er með öll leyfi fyrir því. Kjúkling­ur­inn frá Úkraínu er gæða­vara alinn á maís og slátrað í slát­ur­húsi sem er með BCR vottun,“ skrifar Guð­mundur. Hann segir fyr­ir­tæki sitt hafa greitt 18 pró­sent toll og 540 kr./kg sam­tals yfir 640 kr./kg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina