Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Frosti Logason sakar Eddu Falak um lygar: „Hún hefur aldrei unnið í stórum fjárfestingabanka“

Frosti Logason sakar Eddu Falak um lygar: „Hún hefur aldrei unnið í stórum fjárfestingabanka“

Frosti Logason kom með „sprengju“ í nýjasta hlað­varps­þætt­inum Harma­geddon rétt í þessu en þar stað­hæfir hann að Edda Falak, blaða­maður á Heim­ild­inni og þátta­stjórn­anda Eigin Konur hlað­varps­ins, hafið logið í fjöl­miðla að hún hafi unnið í dönskum fjár­fest­inga­banka, þar sem hún hefði orðið fyrir kyn­bundnu áreiti.

Frosti Logason Photo / Facebook

Í mynd­broti úr þætt­inum sem birt­ist á YouTube fer Frosti yfir þau skipti sem Edda hefur full­yrt í fjöl­miðlum að hún hafi unnið í virtum dönskum fjár­fest­inga­banka, þar sem hún vann við veð­bréfa­miðlun þar sem hún hafi orðið fyrir kyn­bundnu áreiti. Þá birtir hann einnig skjá­skot af sam­tali þar sem Edda seg­ist ekki hafa unnið í banka heldur Novo, sem er stytt­ing á Novo Nordisk, sem er stórt danskt lyfja­fyr­ir­tæki. Full­yrðir Frosti í þætt­inum að allt þetta sé rangt, Edda hafi hvorki unnið í fjár­mála­fyr­ir­tæki né í Novo Nordisk. „Núna er ég búinn að gera vinn­una, ég er búinn að hringja sím­tölin, ég er búinn að senda póstana, ég er búinn að vera að skoða þetta stans­laust í nokkrar vikur. Ég er búinn að vera í sam­skiptum við danska fjár­mála­eft­ir­litið, ég er búinn að vera í sam­skiptum við Nova Nordisk, ég er búinn að vera í sam­skiptum við fullt af fólki, sam­ferða­fólki Eddu Falak í Kaup­manna­höfn og Íslandi. Og ég er búinn að fá það algjör­lega stað­fest að Edda Falak hefur aldrei miðlað með veð­bréf enda hefur hún aldrei haft slík rétt­indi. Hún hefur aldrei unnið í stórum fjár­fest­inga­banka, hún hefur ekki unnið í virtum banka og hún hefur aldrei heldur unnið hjá Nova Nordisk.“

Segir Frosti þessar upp­lýs­ingar vera algjöra „sprengju“. „Þetta er algjör­lega ótrú­legt því hún er ekki að full­yrða þetta eftir þrjá bjóra á Kaffi­barnum niðri í bæ, hún er að segja þetta í stærstu fjöl­miðlum lands­ins.“ Þá seg­ist Frosti ekki muna eftir öðru eins eftir að hafa starfað í 23 ár í fjöl­miðlum. „Þetta er eitt­hvað annað. Þetta þýðir að mann­eskja sem segir þetta blá­edrú í við­tölum í stærstu fjöl­miðlum lands­ins og veit að hún er að segja ósatt, þarna er um að ræða per­sónu­leik­arask­anir. Við erum að tala um alvar­legar per­sónu­leik­arask­anir sem ég get ekki farið að greina því ég er ekki fag­að­ili en fólk sem ég þekki sem eru fag­að­ilar segja að þetta sé klár­lega eitt­hvað slíkt. En það verða aðrir að dæma um á end­anum.“

Þá spyr Frosti í lokin hvað vinnu­veit­andi Eddu muni gera í kjöl­far þátt­ar­ins en hún starfar nú sem blaða­maður hjá Heim­ild­inni. „Hvað gerir Heim­ildin? Heim­ildin er virtur rann­sókn­ar­mið­ill, er það ekki? Heim­ildin stærir sig af mörgum blaða­manna­verð­launum og rit­stjórn Heim­ild­ar­innar hefur nú inn­an­borð mann­eskju sem hefur nú verið staðin að því að ljúga til um starfs­feril sinn og rétt­indi og trommað sig upp til æðstu met­orða í sam­fé­lag­inu.“

Edda Falak svar­aði ekki spurn­ingum blaða­manns við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina