Aðstoðardómarinn Contantine Hatzidakis mun ekki dæma fleiri leiki í ensku Úrvalsdeildinni í knattspyrnu á meðan rannsókn stendur yfir vegna atviks þar sem hann virðist gefa Liverpool varnarmanninum Andy Robertson olnbogaskot.
Hatzidakis gaf Robertson olnbogaskot í hökuna eftir að skoski landsliðsmaðurinn nálgaðist hann eftir fyrri hálfleik Liverpool og Arsenal á sunnudaginn. Leikurinn endaði 2-2.
Atvikið náðist á myndskeiðum og er nú rannsakað af enska Knattspyrnusambandinu. Aðstoðardómarinn mun ekki dæma leiki á meðan á rannsókninni stendur.
Chris Sutton, fyrrum framherji Blackburn tjáði sig um málið við BBC Radio 5 Live á sunnudaginn: „Hann þarf að fara í bann. Hann mun þurfa að hvíla marga leiki. Við getum ekki haft það að aðstoðardómarar gefi olnbogaskot. Ég veit í raun ekki hvað hann var að hugsa. Ég man ekki eftir öðru atviki eins og þessu. Hvar er fordæmið fyrir þessa hluti?“
Fyrrum miðvörður Manchester, hinn umdeildi Roy Keane lýsti hinum 28 ára Robertson sem „stóru barni“. „Hann greip fyrst í línuvörðinn,“ sagði Keane á Sky Sports. „Robertson ætti að hafa meiri áhyggjur af varnarleik sínum. Haltu bara áfram með leikinn.“
Til gamans má geta þess að Roy Keane fékk alls 8 leikja bann og 25 milljón króna sekt árið 2002 fyrir eina hryllilegustu tæklingu í sögu Úrvalsdeildarinnar er hann sparkaði af miklu afli í Alf Inge Haaland, föður hins óstöðvandi Erlin Haaland, framherja Manchester United í leik Man. United og Man. City árið 2001.
Hér er hægt að sjá olnbogaskotið:































Athugasemdir