Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Samúel lýsir aðdraganda að andláti bróður síns: „Sárin í hjörtum okkar munu aldrei gróa að fullu“

Samúel lýsir aðdraganda að andláti bróður síns: „Sárin í hjörtum okkar munu aldrei gróa að fullu“
Stefán Arnar Gunn­ars­son

„Addi er fund­inn­Það fer að renna upp fyrir okkur að hann kemur aldrei aftur í heim­sókn, hringir ekki framar, sendir ekki fleiri skila­boð. Engar skýja­borgir sem höfðu fundið sér fót­festu í huga okkar munu ræt­ast. Það verða engir end­ur­fundir, þetta er end­an­legt.

Eftir standa fjöl­skylda og vinir í sorg og sökn­uði.“ Svona hefst langur og sár pist­ill Samúels Ívars Árna­sonar, bróður Stefáns Arnars Gunn­ars­sonar sem féll fyrir eigin hendi nýverið.

Í pistl­inum fer hann yfir aðdrag­and­ann sem leiddi til þess að bróðir hans tók sitt eigið líf. Fer hann ítar­lega yfir mál Stefáns Arnars og það hversu auð­velt er að koma af stað kjafta­sögum og eyði­leggja þannir orðstír fólks. Þá bendir hann á þær brotala­mir sem finna má hjá íþrótta­fé­lögum og sam­böndum, þegar kemur að slíkum málum. Segir hann að það virð­ist „ekki skipta máli hvort þú ert sekur eða sak­laus þegar orðróm­ur­inn fer af stað.“

„Með­höndlun ÍSÍ á þessum ásök­unum er svo fyrir neðan allar hellur og nauð­syn­legt fyrir íþrótta­sam­bandið að fara vel yfir þetta mál til að tryggja að eitt­hvað álíka ger­ist aldrei aftur. Sam­bandið, í þessu til­felli sam­skipta­ráð­gjafi ÍSÍ sem fær málið í hend­urnar, rann­sakar hvorki ásak­an­irnar mark­visst eða af fag­mennsku. Sú ein­falda og auð­velda leið er valin að senda Arnari póst um að sam­band­inu hafi „borist erindi“ en mál­inu sé lokið vegna þess að „hann er ekki lengur starf­andi hjá félag­inu“. Arnar vissi ekk­ert um þetta mál fyrr en hann fær þennan póst frá sam­skipta­ráð­gjafa ÍSÍ, var ekki til­kynnt hverjar ásak­an­irnar voru og var því aldrei beð­inn um að gefa sínar skýr­ingar á þeim. Innihald bréfs­ins er honum hulið allt þar til hann fer á fund með þessum aðila dag­inn sem hann hverfur. Þið megið reyna að setja ykkur í þau spor að fá slíkt erindi til ykkar, fá engar upp­lýs­ingar um hvað verið er að saka ykkur um og velta fyrir ykkur hvernig þið mynduð bregð­ast við. Svona vinnu­brögð eru óásætt­an­leg með öllu. Ef þjálf­ari ger­ist sekur um ein­hver brot gagn­vart iðk­endum, líkt og Arnar var sak­aður um eða gefið í skyn að hann hafi gert í þessu bréfi, er frá­leitt að við­kom­andi sleppi við frek­ari rann­sókn vegna þess eins að hann sé hættur störfum hjá félag­inu þar sem meint brot áttu sér stað. Sam­band­inu ber að mínu mati skylda til að kæra við­kom­andi til lög­reglu, í það minnsta að sjá til þess að málið sé rann­sakað að fullu ef rök­studdur grunur er á sekt hans/hennar. Reynist við­kom­andi sekur á hann ekk­ert að koma aftur að störfum með börnum og ung­mennum. Reynist hann sak­laus verða þau sem bera ábyrgð á róg­burði að svara fyrir sínar gjörðir. Það á aldrei að vera í boði að bera slíkar ásak­anir á borð ef þær eru ekki byggðar á stað­reyndum og/eða atburðum, fólk verður að þurfa að standa fyrir máli sínu. Orð bera ábyrgð og það er löngu tíma­bært að við áttum okkur á því.“

Samúel kemur einnig inn á það hversu fljótt og auð­velt er að koma af stað kjafta­sögum.

„Í dag virð­ist ekki skipta miklu máli hvort þú ert sekur eða sak­laus þegar orðróm­ur­inn fer af stað og þessi hópur hefur aldeilis séð til þess að orðrómur um að Arnar hefi hegðað sér ósæmi­lega gagn­vart iðk­endum sínum lifi vel í hand­bolta­sam­fé­lag­inu hið minnsta. Ég frétti síð­ast af slíku umtali fyrir viku síðan, rúmum mán­uði eftir að hann hvarf. Það elska líka allir að heyra eitt­hvað krassandi um náung­ann, smjatta vel á því og segja öðrum hvað ein­hver á að hafa gert, eða hvað? Frá­sögnin breyt­ist svo hægt og rólega í eitt­hvað sem hann eða hún gerði. Snjó­bolt­inn fer að rúlla og sög­urnar hlaða á sig fleiri krúsídúllum eftir því sem fleiri bera hana á milli sín og hver og einn segir hana oftar. Áður en þú veist af er allt orðið stað­fest því þú ert búinn að heyra það svo oft og jafn­vel „frá ein­hverjum sem þekkir vel til máls­ins“. Fram á sviðið stíga sjálf­skip­aðir sér­fræð­ingar sem reyna að upp­hefja sjálfan sig og stöðu sína innan hreyf­ing­ar­innar með því að vera með upp­lýs­ingar „úr innsta hring“ að eigin sögn. Í raun hafa þessir sér­fræð­ingar ekk­ert annað en eitt­hvað kjaftæði sem þeir hafa heyrt af frá fleiri en einum og tveimur.“

Bróður sínum lýsir Samúels sem ljúfum og skemmti­legum og að sam­kvæmt skóla­stjórn­endum Kópa­vogs­skóla, hafi hann átt „sér­stakan stað hjá börn­unum sem hann kenndi þetta skóla­árið.“

„Við sem þekktum hann tengjum ekki saman hljóð og mynd í þessu máli, þessar ásak­anir eru svo fjarri mann­inum sem við þekktum og var okkur svo kær. Arnar var ekki allra og hleypti sömu­leiðis ekki hverjum sem er inn í sinn innsta hring, en hann var traustur og tryggur, með sterkar skoð­anir á mál­efnum, ófeim­inn við að láta þær í ljós og taka rök­ræður, fag­legur í allri sinni nálgun í leik og starfi. Hann var ein­stak­lega lag­inn með börn og ung­menni, ljúfur og skemmti­legur.

Samkvæmt stjórn­endum Kópa­vogs­skóla á hann sér­stakan stað hjá börn­unum sem hann kenndi þetta skóla­árið fram að and­láti sínu. Þar eru allir miður sín yfir því að hafa misst hann. Ég meina, hvaða topp­ein­tak af kenn­ara getur endað tím­ana sína á því að kalla yfir hóp­inn „allir í frímó“ og fá til baka sam­hljóma svarað „og hlusta á Skímó!“. Eins hafa fyrrum sam­starfs­menn, iðk­endur og for­eldrar úr Selfossi og Fjölni, þar sem Arnar starf­aði í 10 og 4 ár, fært okkur sem næst honum standa heilan haug af fal­legum sögum sem mála mynd af miklum fag­manni og mann­vini. Einhver sem lét vel­ferð iðk­enda sinna sig mikið varða og gerði allt sem í hans valdi stóð til að hjálpa þeim innan vallar sem utan. Margir hverjir leit­uðu áfram til hans þótt hann væri löngu hættur að þjálfa þá og hann var alltaf boð­inn og búinn að hjálpa þeim sem það gerðu.“

Í loka­orðum Samúels segir hann að sárin í hjörtum þeirra sem þekktu Stefán Arnar, muni aldrei gróa að fullu.

„Á end­anum hafði Arnar minn ekki kraft­inn til að standa af sér þennan storm, þrátt fyrir að hann hefði þéttan vina­hóp á bak við sig, þar á meðal ein­stak­linga innan íþrótta­fé­lags­ins HK. Þið sem stóðuð að baki þessum stormi megið bera skömm­ina að eilífu og ættuð að mínu mati að halda ykkur fjarri öllu íþrótta og tóm­stunda­starfi héðan í frá, þið eruð ekki hæf til verks­ins. Felu­leikur þeirra seku varpar einnig skugga á alla hina for­eld­rana í þessum hóp, sem liggja hvert og eitt undir grun um alvar­lega aðför að mann­orði Arnars á meðan svo er. Aðför sem ýtir honum hægt en örugg­lega að bjarg­brún­inni og að lokum fram af henni. Við þessa aðila vil ég að lokum segja. Það er vegna fram­komu ykkar og gjörða að far­inn er frá okkur einn allra fær­asti þjálf­ari lands­ins, afbragðs kenn­ari, mann­vinur og ynd­is­legur drengur. Við sem þekktum hann munum sakna hans og syrgja svo lengi sem við lifum, sárin í hjörtum okkar munu aldrei gróa að fullu.“

Hægt er að lesa færsl­una í heild sinni hér að neðan:

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band viðPíeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ